Sveitarstjórnarmál

Fréttamynd

Aukna þjónustu til sveitarfélaga

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér.

Innlent
Fréttamynd

400 milljóna rekstrafgangur

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir tæplega 400 milljóna króna rekstrarafgangi en áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri segir vöxt og grósku hafa sett mark á bæjarbraginn á Akureyri undanfarin ár og svo verði áfram.

Innlent
Fréttamynd

Borguðu fyrir eiginkonurnar

Fjórir bæjarráðsfulltrúar Akraness fóru með forsvarsmönnum HB Granda til Leeds í Englandi. Þeir hittu Alex Ferguson sem fékk heimboð upp á Skaga.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að tvöfalda íbúafjöldann

Hreppsstjórn Vatnsleysustrandar stefnir að því að tvöfalda íbúafjöldann á næstu fimm árum. Gangi það eftir verða íbúarnir orðnir tvöþúsund við lok þessa áratugar, hátt í þrefalt fleiri en þeir voru um miðbik síðasta áratugar.

Innlent
Fréttamynd

Vatnsleysuströnd verður að bæ

Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur.

Innlent
Fréttamynd

Já símaskrá ekki til sölu

Hvorki Já símaskrá né starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði eru til sölu. Þetta voru svörin sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, fékk á fundi sínum með stjórnarformanni Já símaskrár í dag að því er fram kemur á vef Bæjarins besta.

Innlent
Fréttamynd

Meiri afgangur en búist var við

Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Bærinn vill kaupa starfsstöðina

Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara

Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna.

Innlent
Fréttamynd

Göngubrúin er slysagildra

Aðstæður fyrir gangandi vegfarendur við Hringbraut eru víða erfiðar og hættulegar. Göngubrú yfir götuna endar í lausu lofti.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir

Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði.

Innlent
Fréttamynd

Deildarstjóri fái miskabætur

Akureyrarbær verður að greiða deildarstjóra hjá bænum sjö hundruð þúsund krónur í miskabætur samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Maðurinn heldur jafnframt starfi sínu hjá bænum en hann og bæjaryfirvöld deildu um hvort hann ætti enn rétt á starfinu eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Borgin fær hálfan milljarð

Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi.

Innlent
Fréttamynd

Kosið um 16 sameiningartillögur

Kosningar um sameiningu 61 sveitarfélags hér á landi fara fram næstkomandi laugardag. Kosið er um 16 sameiningartillögur en tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið. Á kjörskrá eru 69.144. Fæstir eru á kjörskrá í Mjóafjarðarhreppi, eða 32, en flestir í Hafnarfirði, eða 15.570.

Innlent
Fréttamynd

Tekur fyrir uppsagnartillöguna

Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í dag taka afstöðu til tillögu sem Gísli Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar, hyggst leggja fram um uppsögn Ársæls Guðmundssonar, sveitarstjóra Skagafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Hótar sameiningu með lögum?

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra hafa hótað þeim, sem ekki samþykktu sameiningu sveitarfélaga í kosningunum nú, að sveitarfélögin verði sameinuð með lögum. Hann segir Árna nær að skoða réttlátari og sanngjarnari tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. 

Innlent
Fréttamynd

Allir andvígir sameiningu

Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja til að hafna sameiningu

Samtök sem ætla að hvetja landsmenn til að hafna sameiningu sveitarfélaga í kosningum í næsta mánuði eru að verða til í Svarfaðardal. Bitur reynsla heimamanna af sameiningu norðanlands veldur því að forsvarsmenn sjá ástæðu til að vara aðra landsmenn við.

Innlent
Fréttamynd

Dróst vegna fjarveru starfsmanna

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, hefur svarað fyrirspurnum Oktavíu Jóhannesdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, um umdeilda lífskjararannsókn sem unnin var fyrir bæjarstjórn Akureyrar. Í svörum bæjarstjórans segir að ástæða þess að kynning niðurstaðna dróst frá maí fram í júlí hafi verið veikindi og fjarvera starfsmanna og bæjarfulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

Leyndi því að stjórnin væri fallin

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, virðist hafa ætlað að leyna því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn, samkvæmt skoðanakönnum Gallups fyrir Akureyrarbæ í vor.

Innlent
Fréttamynd

Hætt við spillingu í lóðaúthlutun?

Síðustu lóðum Kópavogsbæjar við Elliðavatn verður úthlutað í sumar. Í Kópavogi er hvorki lóðaútboð né lotterí, heldur úthlutar bæjarráð lóðunum. Formaður skipulagsnefndar segir þetta fyrirkomulag ekki þurfa að bjóða upp á spillingu - flestir sem vilji byggja í Kópavogi fái á endanum lóð.

Innlent
Fréttamynd

Athugasemdir vegna sameiningar

Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Leikskólinn á Súðavík gjaldfrjáls?

Hreppstjórn Súðavíkur veltir nú fyrir sér að gera leikskólann á staðnum gjaldfrjálsan. Gjald fyrir átta tíma dvöl á dag er nú tæpar tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði með fæði. Einnig er möguleiki að byggingarlóðir verði ókeypis og húsbyggjendum verði gefinn kostur á byggingarframlagi frá sveitarfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Skerjafjarðarbraut þótti óhagkvæm

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu höfnuðu tengingu miðborgar Reykjavíkur og Álftaness með Skerjafjarðarbraut fyrir þremur árum þar sem hún var talin óhagkvæm.

Innlent
Fréttamynd

Óánægðir leikskólastjórar

"Ég get fullyrt að leikskólastjórar njóta virðingar hér í bæjarfélaginu og þeir eru ekki notaðir til uppfyllingar frekar en aðrir," segir Gunnsteinn Sigurðsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs vegna óánægjubréfs sem fjórtán leikskólastjórar hafa ritað honum.

Innlent
Fréttamynd

Umfangsmesta friðun hér á landi

Nú eru á lokastigi umfangsmestu friðunaraðgerðir sem gerðar hafa verið hér á landi. Allt sauðfé í Landnámi Ingólfs verður girt inni í beitarhólfum, en svæðið verður að öðru leyti friðað. Þau 20. 30.000 tonn af hrossataði sem falla til á höfuðborgarsvæðinu geta farið til uppgræðslu. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Skorradalshreppur gegn sameiningu

Skorradalshreppur var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi.

Innlent
Fréttamynd

Kosið aftur innan sex vikna

Einn fámennasti hreppur landsins, Skorradalshreppur, var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var hins vegar samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi. Úrslitin þýða að Skorradalshreppur verður að kjósa aftur innan sex vikna.

Innlent
Fréttamynd

Framlögin hafa rúmlega tvöfaldast

Framlög ríkisins til jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hafa meira en tvöfaldast á síðustu sjö árum, úr 3,3 milljörðum króna árið 1998 í 7,1 milljarð 2005. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Hættir vegna trúnaðarbrests

Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn Skagafjarðar, hefur hætt þátttöku í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Vinstri - grænna. Bjarni segir ástæðu þessa vera trúnaðarbrest á milli hans og Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar.

Innlent