Hælisleitendur

Þingpallarnir opnir eins og aðra daga
Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf.

Með hjartað á réttum stað
Það er óhætt að segja að útlendingamál hafa farið mikinn í samfélagsumræðunni á undanförnum vikum. Mismunandi sjónarmið, áherslur og skoðanir hafa átt sér stað, sem er ekki óeðlilegt í lýðræðissamfélagi. Við megum vera ósammála og við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna um málefni líðandi stundar.

Bergþór stríðir Samfylkingunni
Samfylkingin styður markmið útlendingafrumvarpsins sem er til umræðu á Alþingi og dómsmálaráðherra fagnar stefnubreytingu flokksins. Þingflokkur Vinstri Grænna gerir ýmsa fyrirvara við málið.

Hverjir hafa verið að koma og hverjir eiga að fá að vera?
Umsóknum um alþjóðlega vernd á Íslandi fjölgaði gríðarlega árin 2022 og 2023, ekki síst vegna umsókna einstaklinga frá Úkraínu og Venesúela. Ef þessi tvö ár eru tekin út fyrir sviga hafa hins vegar litlar breytingar orðið á fjölda umsókna síðustu ár.

„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp“
Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir tilefni til þess að skoða og endurmeta öryggismál á Alþingi í kjölfar atviks sem átti sér stað í dag þar sem lögregla og þingverðir þurftu að fjarlægja mann af þingpöllum Alþingis sem steig yfir handriði þeirra og öskraði að þingmönnum.

Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra
Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið.

Bubbi óttast púðurtunnu rasismans
Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna.

Nauðsynlegar breytingar á útlendingalögum
Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vaxandi áskorunum vegna hraðrar fjölgunar umsókna um alþjóðlega vernd. Umsóknum hefur fjölgað um 3700% á rúmum áratug og hafa valdið umtalsverðum kostnaði fyrir ríkið, eða um 20 milljörðum króna árið 2023, auk álags á alla okkar innviði.

Við og þau
Má maður ekki tala um útlendinga án þess að vera kallaður rasisti?

Rasískar íslenskar ömmur tilefni til að hafa áhyggjur
Dagur Hjartarson rithöfundur og kennari segir ekkert nýtt að sjá fúla afa tjá sig með rasískum hætti á vefmiðlum. En þegar hann sé farinn að verða jafn var við rasískar ömmur, sömu ömmur og samélagið hangir að stóru leyti saman á, er hann orðinn áhyggjufullur. Það slær hann.

Vonin við enda regnbogans
Samtökin ’78 þjónusta milli 60-70 einstaklinga sem leita að alþjóðlegri vernd á Íslandi eða hafa fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Okkar fólk er mislangt komið í ferlinu. Sum þeirra eru nýkomin til landsins, önnur hafa verið lengi, sum hafa fengið sjálfkrafa viðbótarvernd og önnur dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Öll bera þau þá von í brjósti að geta lifað lífinu sem þau sjálf.

Fór huldu höfði á landinu í samtals tvö ár
Hælisleitandi sem hafði farið huldu höfði í heilt ár fannst þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þjófnaðar í verslun við Tryggvagötu. Þá kom í ljós að hann hafði verið í felum á Íslandi tvisvar í samtals tvö ár yfir sex ára skeið. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti í dag.

Opin landamæri
Málefni flóttafólks á Íslandi eru í grunninn frekar einföld, þrátt fyrir tilraunir ýmissa afla til að þyrla upp ryki með ósannindum og upplýsingaóreiðu. Hér verður gerð ein tilraun af mörgum til þess að leiðrétta þrálátar staðreyndavillur í umræðunni.

Útlendingamál í ólestri
Það hefur lengi verið vitað að útlendingamálin í Reykjanesbæ eru í algjörum ólestri. Samkvæmt nýjustu tölum, sem komu fram vegna fyrirspurnar minnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, kemur í ljós að í Reykjanesbæ dvelja samtals 1.383 hælisleitendur og flóttamenn.

Tækifæri til að gera betur öllum til hagsbóta
Málefni fólks af erlendum uppruna hefur mikið verið til umræðu undanfarið. Umræðan er tímabær. Á sama tíma er mikilvægt að hún sé málefnaleg og mildi ríki í garð þeirra sem koma til Íslands af mismunandi ástæðum til varanlegrar eða tímabundinnar búsetu.

Hraðinn á fólksfjölguninni valdi vaxtaverkjum
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, segist hafa verulegar áhyggjur af því að stéttaskipting og ójöfnuður festist í sessi í íslensku samfélagi þegar að komi að innflytjendum. Hann telur innflytjendum hafa fjölgað of hratt hér á landi síðustu ár

Þegar óttinn ræður för
Það er mannlegt að óttast hið óþekkta. Fordómar gegn hinu óþekkta eru líka algeng og skiljanleg viðbrögð við þessum ótta en við megum ekki leyfa þeim að stjórna okkur. Við megum ekki leyfa fordómunum að varða veg mikilvægra ákvarðana því þeir byggja eðli málsins samkvæmt ekki á raunveruleikanum og staðreyndum heldur þessum tiltekna ótta við hið óþekkta.

„Lokað búsetuúrræði“ – pólitísk misnotkun tungumálsins
Nafnorðið úrræði er gamalt í málinu og er skýrt ʻmöguleiki til úrlausnar, kosturʼ í Íslenskri nútímamálsorðabók.

Skýr flokkslína í útlendingamálum
„Frumvarpið er afleitt. Það er því ekki hægt að kenna einum stjórnmálamanni um harðneskjulega stefnu í útlendingamálum. Flokkslínan virðist skýr.” Þetta voru viðbrögð formanns Samfylkingarinnar árið 2019 þegar breytingar á útlendingalögum voru lagðar fram, í fyrsta skipti af fimm.

„Íbúar Gasa eins og dýr í búri“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra sagðist deila áhyggjum Þórunnar Sveinbjarnardóttur Samfylkingu af stöðunni í Rafah.

„Ísland er uppselt“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins segist vilja stöðva flæði fólks til landsins sem óskar eftir alþjóðlegri vernd. Hún fullyrðir að Ísland taki á móti of mörgum og segist vilja undanþágu frá Schengen samstarfinu.

Ekki spennt fyrir lokuðum búsetuúrræðum
Þingflokksformaður Vinstri grænna fagnar því að ríkisstjórnin sammælist um heildarsýn í málefnum flóttafólks á Íslandi. Hann segir þingmenn flokksins ekki hafa áhuga á lokuðu búsetuúrræði á borð við það sem dómsmálaráðherra hefur kynnt.

Skilur ekki hvers vegna það er ekki allt brjálað vegna breytinganna
Talskona Stígamóta segir að með nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar sé verið að segja flóttafólki að það sé ekki velkomið til Íslands. Hún gagnrýnir sinn gamla flokk fyrir aðkomu sína að tilvonandi búsetuúrræði sem stangist á við stjórnarskrána.

Samfylkingin hafi áður barist harðast gegn hertari innflytjendalöggjöf
Prófessor í stjórnmálafræði segir verulega stefnubreytingu hafa átt sér stað í Samfylkingunni eftir að formaður flokksins viðraði skoðanir sínar á innflytjendamálum í síðustu viku.

Frumvarpið gangi gegn eigin markmiðum
Skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd verða þrengd og móttökumiðstöð fyrir flóttamenn stofnuð. Þetta er hluti af stefnu ríkisstjórnar í útlendindingamálum sem miðar að því að fækka umsækjendum. Þingmaður Pírata segir tillögurnar ganga gegn meintum markmiðum, meðal annars um aukna inngildingu og skilvirka málsmeðferð.

Hafa sammælst um nýja heildarsýn um flóttamenn og innflytjendur
Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Í tilkynningu segir að tekið verði utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með samhæfingu milli ráðuneyta og stofnana.

Stjórnleysi
Málefni hælisleitenda og flóttafólks er hitamál í íslenskum stjórnmálum. Það er erfitt að tala um málaflokkinn og skautun er staðreynd. Það er a.m.k. ljóst að ekki verður gert allt fyrir alla og ljóst að við munum aldrei neita að taka á móti fólki í neyð. Niðurstaðan er einhvers staðar þarna á milli.

Breytingar á útlendingalögum afgreiddar á bak við tjöldin?
Til stendur að kynna nýtt frumvarp um breytingar á útlendingalögum nú í vikunni en ágreiningur er sagður uppi milli stjórnarflokkanna um nákvæma dagsetningu.

Látum ekki hræða okkur
„Andaðu með nefinu” var vanalega setningin sem ég fékk að heyra þegar ég tjáði mig um útlendingamál á sínum tíma.

Sjálfstæðismenn skriðið í eina sæng með röngum bandamanni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, beindi fyrirspurn til Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á Alþingi nú áðan. Og vandaði Sjálfstæðisflokknum ekki kveðjurnar í leiðinni.