Tryggingar

Nær ómöglegt að hætta við kaupin
Nær ómögulegt er fyrir Landsbankann að hætta við að kaupa TM að mati dósents við Háskóla Íslands. Hætti bankinn við séu allar líkur á að hann baki sér skaðabótaskyldu. Fjármálafyrirtæki hafi undanfarið keypt tryggingafyrirtæki og því ekkert óeðlilegt við kauptilboðið.

Brýnt að undið verði ofan af kaupunum
Þingmaður Viðreisnar segir brýnt að undið verði ofan af kaupum Landsbanks á TM tryggingum. Ekki gangi upp að banki sem er nánast að fullu í eigu ríkisins taki sér það vald, án þess að spyrja kóng eða prest, að að kaupa tryggingafélaga og færa þannig út kvíarnar inn á nýjan markað. Þingmaður Samfylkingar segir fjármálaráðherra hafa brugðist skyldum sínum.

Samfylkingin slær ryki í augu almennings
Málflutningur Samfylkingarinnar í máli fyrirhugaðra kaupa Landsbankans á Tryggingamiðstöðunni veldur miklum vonbrigðum.Það var til að mynda ótrúlegt að hlusta á formann Samfylkingarinnar í Kastljósi í gærkvöldi. Í aðra röndina talaði hún um sjálfstæði Bankasýslunnar, en í hina lýsti hún mikilli furðu yfir því að fjármálaráðherra hefði ekki stigið sjálf fyrirfram inn í kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni.

Landsbankinn gæti bakað sér bótaskyldu með því að hætta við
Fari svo að Landsbankinn dragi skuldbindandi kauptilboð í allt hlutafé TM trygginga af Kviku banka til baka gæti síðarnefndi bankinn að öllum líkindum krafist skaðabóta. Fjármálaráðherra hefur sagt að kaupin gangi ekki í gegn með hennar samþykki nema söluferli á Landsbankanum hefjist samhliða. Það hefur forsætisráðherra sagt ekki koma til greina á hennar vakt.

Ríkisvæðing og ríkisstjórnarmenning
Að færa fé til hluthafa Kviku til þess eins að ríkið eignist tryggingarfélag er eitthvað sem maður sá ekki fyrir. Þótt ekkert komi lengur á óvart þegar þessi ríkisstjórn er annars vegar.

Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög
Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi.

Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum
Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur, ásamt lögmannsstofu sinni ESJA Legal, verið dæmdur til að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 490 þúsund krónur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu síðastliðinn fimmtudag.

Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin
Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar.

Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað tryggingafélagið VÍS og ferðaþjónustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri af bótakröfu ungrar konu sem lenti í slysi í fjórhjólaferð á vegslóða við Suðurstrandarveg árið 2021. Dómarinn í málinu mat konuna hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi enda hafi hún ekki verið komin með ökuréttindi þegar slysið varð.

Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki
Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra.

„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða.

Samþykkja tilboð Landsbankans í TM
Kviku banka hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis.

Var í símanum undir stýri og fær kaskótryggingar ekki endurgreiddar
Vátryggingafélag Íslands þarf ekki að endurgreiða manni kaskótryggingar, sem félagið hafði endurkrafið manninn um í kjölfar umferðarslyss sem hann olli. Maðurinn hafði ekið aftan á röð bifreiða á Reykjanesbraut á meðan hann var í símanum undir stýri og urðu fjórir bílar fyrir skemmdum.

Mat á skemmdum eigna í Grindavík nánast lokið
Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) hafa lokið við að skoða og meta skemmdir á flestum íbúðar- og atvinnueignum í Grindavík. Unnið er að kostnaðarmati og gerð matsgerða en fyrstu húsnæðiseigendur bæjarins fá matsgerðir kynntar í lok næstu viku.

Einn af hverjum hundrað lendir í vinnuslysi sem orsakar fjarveru frá vinnu
Það á ekki að geta gerst að einhver fari í vinnuna og snúi aldrei heim aftur. Fólk selur tíma sinn og hæfni til atvinnurekandans en ekki líf sitt. Líf hverrar manneskju er svo óendanlega miklu meira virði en sá kostnaður sem settur er í forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir.

Ekkjan gafst ekki upp og fékk meirihluta dánarbótanna
Ekkja flugmanns sem lést í flugslysi á Rangárvöllum sumarið 2019 fær tvo þriðju dánarbóta frá tryggingafélaginu. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Tekist var á um hvort flugmaðurinn hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi sem orsakaði slysið.

Hæstiréttur tekur eggjastokkamál fyrir
Hæstiréttur hefur veitt Sjúkratryggingum Íslands áfrýjunarleyfi í máli sem snýr að læknamistökum þegar eggjastokkur konu var fjarlægður án hennar vitneskju. Sjúkratryggingar voru dæmdar til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur í Landsrétti.

Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með appi án aukagjalda
Verna hefur opnað appið sitt fyrir öll, hvort sem bíllinn er tryggður hjá Verna eður ei. Meðal nýjunga í appinu er sá möguleiki að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Í notkun á appinu felst engin skuldbinding, bara ávinningur þar sem notendur geta nýtt sér ýmis sértilboð og fríðindi. Notendur sem ná í appið fyrir 1. mars nk. geta unnið 100 þúsund króna gjafabréf frá Play.

Varanlega hreyfihömluð en fær ekki bíl vegna skorts á vottorði
Margrét Lilja Arnheiðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra, segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við Tryggingastofnun ríkisins. Hún hefur í tuttugu mánuði undirbúið bílakaup en þarf að byrja upp á nýtt þar sem áður samþykktur styrkur hefur verið felldur úr gildi. Ástæðan er sú að hreyfihömlunarvottorð hennar rann út um áramót. Margrét Lilja er varanlega hreyfihömluð.

Snuðuðu mann með heilaskaða um ellefu milljónir króna
Tryggingafélagið TM mátti ekki skerða bætur til karlmanns sem slasaðist alvarlega á hestbaki. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi ósanngjarnt og óheiðarlegt af fyrirtækinu að bera fyrir sig kvittun fyrir fullnaðargreiðslu.

Góð ráð til að fljúga ekki á hausinn
Snjókoma, frost og bleyta undanfarna daga hefur framkallað hálku og margir sem hafa leitað á bráðamóttöku eftir byltu. Afleiðingar þess að detta geta verið allt frá öri á sálinni yfir í brot á útlimum og höfuðhögg. Þegar verst lætur og hálkan er mest þurfa tugir að leita sér aðstoðar á dag vegna hálkuslysa.

Stjórnvöld hafi dregið lappirnar
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að stjórnvöld hefðu átt að vera fyrr tilbúin með að sú sviðsmynd kæmi fram að ekki væri hægt að búa í Grindavík næstu mánuði eða jafnvel ár. Það þurfi að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir enn meira tjón hjá Grindvíkingum.

Raunsæi í stað bjartsýni: „Ég býst ekki við því að flytja heim aftur“
Sunna Jónína Sigurðardóttir, íbúi við Efrahóp í Grindavík - götuna þar sem hús hafa orðið hrauninu að bráð, segir kominn tíma til að horfa raunsætt á hlutina og hætta að vera bjartsýn. Hún sér ekki fyrir sér endurkomu til Grindavíkur.

Hætta að meta tjón í Grindavík í bili
Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum.

Forðumst flugeldaslys
Áramót á Íslandi fara vart fram hjá neinum þegar miklu magni flugelda er skotið á loft. Með kaupum á flugeldum styrkja flestir starf björgunarsveita og njóta þess að kveðja árið með stæl. Flugeldar eru þó ekki hættulausir því árlega verða mörg slys við notkun þeirra og þeim fylgir hávaða- og loftmengun.

Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM
Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu.

Pissar í flösku og fær ekki aukaáklæði á hjólastólinn
Karlmaður sem notar hjólastól fær ekki þriðja áklæðið á sessu hjólastólsins greitt af Sjúkratryggingum Íslands. Í kæru mannsins til úrskurðarnefndar velferðarmála segir að ástæðan fyrir aukaáklæði sé út frá hreinlætissjónarmiðum og sýkingarhættu en hann noti flösku til að kasta af sér þvagi en það gerist oft að það leki fram hjá og ofan í áklæðið.

Bæjarstjórn tekur fyrir altjónslista í næstu viku
Altjónslisti frá Náttúrutryggingum Íslands (NTÍ) yfir hús í Grindavík verður tekinn fyrir af bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á milli jóla og ný árs. Íbúi segist hafa fengið þau svör að ekki verði hægt að bæta tjón fyrr en afstaða liggi fyrir í málinu.

Mögulegt gáleysi að láta leigutaka ekki vita af mölflugum
Formaður Neytendasamtakanna segir að skoða verði hvort leiga á geymslu falli undir þjónustusamning en ekki húsaleigusamning. Kona sótti búslóð sína úr geymslu fyrr á árinu og hefur frá því barist við mölflugur á heimilinu. Hún segir tjónið verulegt.

Á ekki rétt á bótum eftir Hraunbæjarmálið
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar um að sýkna Vátryggingafélag Íslands, VÍS, af kröfum fyrrverandi sérsveitarmanns sem glímdi við sálfræðilegar afleiðingar þess að taka þátt í aðgerðum sérsveitarinnar sem leiddu til dauða manns í Árbæ í Reykjavík í desember 2013.