Kjaramál

Umdeild launahækkun Björns Zoëga í kastljósi sænskra fjölmiðla
Mánaðarlaun Björns Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð, hækkuðu á síðasta ári um nærri 30 þúsund sænskar krónur, jafnvirði um 430 þúsund íslenska króna. Laun hans eftir hækkunina nema rúmlega 270 þúsund sænskum krónum eða 3,9 milljónum íslenskra króna.

Ragnar Þór segir þróun hlutabréfaverðs ekki til marks um áhyggjur fjárfesta af launahækkunum
Formaður VR segir kröfugerð félagsmanna VR inn í kjaraviðræður vera í fullum gangi og stefnt að því að hún verði klár á vormánuðum.

Verkfall væri sérkennilegt útspil kennara í heimsfaraldri
Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning við sveitarfélögin í dag. Deilan fer nú aftur til ríkissáttasemjara sem gæti reynst erfitt að greiða úr málinu. Formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) er undrandi yfir málinu.

Ólöf Helga fremst á lista Eflingar
Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og fyrrverandi hlaðmaður hjá Icelandair, er formaður á lista sem uppstillinganefnd Eflingar lagði fram í dag og stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum.

Grunnskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning
Mikill meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara felldi nýjan kjarasamning félagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nei sögðu 73,71 prósent en já sögðu 24,82 prósent.

Skipaður skrifstofustjóri kjara- og mannauðssýslu ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að skipa Jökul Heiðdal Úlfsson í embætti skrifstofustjóra kjara- og mannauðssýslu ríkisins, sem fer með vinnuveitendahlutverk fyrir ríkið í heild. Skipunin er til fimm ára.

Listamannalaunin hækka um 80 þúsund krónur á árinu
Listamannalaunin hækkuðu um tæpar 20 þúsund krónur um áramótin, til samræmis við launa- og verðlagshækkun fjárlaga 2022. Þau munu hækka enn meira á árinu vegna ákvörðunar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra um að hækka framlög til launasjóðs listamanna um 100 milljónir króna.

Formaður Eflingar eigi að vera diplómat en harður í horn að taka
Guðmundur Jónatan Baldursson er annar tveggja frambjóðanda sem gefið hafa kost á sér til formennsku í stéttarfélagi Eflingar.

Verðbólgudraugar Verbúðar
Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að leggja sitt af mörkum fyrir umhverfi lágra vaxta, hóflegrar verðbólgu og stöðugleika. Það er óskandi að hægt sé að ná góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins til að stuðla að nauðsynlegu samspili þessara þátta.

Eiga konur að fá lægri laun?
Ein mesta kvennastétt í landinu, og jafnframt ein sú mikilvægasta, eru sjúkraliðar. Um 98% sjúkraliða á Íslandi eru konur. Óumdeilt er það mikilvægi sem sjúkraliðar gegna hjá heilbrigðisstofnunum um allt land.

Verkalýðshreyfingin ætlar í mál við ríki og sveitarfélög
Verkalýðshreyfingin hyggst fara í mál við ríki og sveitarfélög vegna ágreinings um nýtingu orlofsréttar þegar starfsmenn lenda í sóttkví.

Tillaga borgaryfirvalda grátbrosleg
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær tillögu skóla- og frístundasviðs um 20 milljóna króna stuðning sem á að liðka fyrir ráðningum á leikskólum borgarinnar. Fimm milljónir fara beint í að greiða starfsfólki fyrir að sannfæra aðra um að koma til starfa. Formaður Félags leikskólakennara segir tillöguna grátbroslega.

Stefnir í spennandi formannsslag
Allt stefnir í æsispennandi formannsslag innan Eflingar á næstu vikum. Tveir stjórnarmenn stéttarfélagsins hafa gefið kost á sér til formennsku en þeir hafa verið sitt hvoru megin línunnar í deilum sem komu upp innan félagsins í haust þegar fyrrverandi formaður þess sagði af sér.

Vill stilla til friðar innan Eflingar og býður sig fram til formanns
Guðmundur Jónatan Baldursson, stjórnarmaður í stéttarfélaginu Eflingu, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formennsku félagsins. Þetta staðfestir hann í samtali við fréttastofu. Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér embætti formanns í lok október á síðasta ári. Guðmundur segist vilja koma á friði innan félagsins.

Býður sig fram til formanns Eflingar
Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar og fyrrverandi hlaðmaður hjá Icelandair, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Eflingu.

Ættum að draga okkur inn í skel til að halda atvinnulífinu gangandi
Allar hugmyndir um að veita atvinnurekendum vald til að kalla fólk í sóttkví í vinnu hafa verið slegnar út af borðinu. Almannavarnir reyna nú að finna nýjar lausnir til að geta haldið atvinnulífinu á floti næstu vikur á meðan metfjöldi Íslendinga er í einangrun og sóttkví.

Tækifæri kjörtímabilsins
Samkeppnishæfni Íslands, sem segir til um hvernig okkur gengur að sækja betri lífskjör samanborið við aðrar þjóðir, á sitt ekki síst undir umbótum á vinnumarkaði. Það er alls ekki eðlilegt að Samtök atvinnulífsins þurfi að gera hundruði kjarasamninga við verkalýðsfélög, þar sem hver klifrar upp á bakið á hinum til að sækja frekari launahækkanir en þeir sem fyrstir komu.

Söguleg undirritun kjarasamnings grunnskólakennara
Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður hjá embætti ríkissáttasemjara í gær. Þetta er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem ritað er undir kjarasamning grunnskólakennara áður en gildandi samningur rennur út.

Fyrirgefið orðbragðið, „andskotans“ hræsni sem þetta er!
Eins og allir vita liggur verkalýðshreyfingin oft undir mikilli gagnrýni frá stjórnvöldum og Seðlabankanum um að hreyfingin sé óábyrg og sé ítrekað að ógna hinum margumtalaða stöðugleika með óraunhæfum kjarasamningum.

Eru launataxtar verkafólks að ógna stöðugleika á íslenskum vinnumarkaði?
Það er eins og við manninn mælt þegar fer að styttast í að kjarasamningar verkafólks á hinum almenna vinnumarkaði fara að losna, að þá spretta sérhagsmunaaðilar atvinnulífsins fram með hræðsluóróður eins og enginn sé morgundagurinn.

Ný þjóðarsátt á nýju ári?
Stór hluti verkalýðshreyfingarinnar virðist því miður í litlu sambandi við hinn efnahagslega raunveruleika, sem við blasir. Þannig hækkaði Seðlabankinn stýrivexti í nóvember, m.a. með vísan til mikilla launahækkana, sem stuðluðu að verðbólgu. Viðbrögð forystu ASÍ voru að boða meiri hörku í næstu kjaraviðræðum og meiri launahækkanir!

Viðspyrnuárið 2022?
Viðskipti við útlönd eru undirstaða lífskjara á Íslandi. Þannig hefur það verið frá því að samfélagið tók að þróast hratt í átt að nútímanum upp úr miðri 20. öldinni.

Skattlaust ár fyrir heilbrigðisstarfsfólk í bráðaþjónustu?
„Hvernig væri að veita heilbrigðisstarfsfólki í bráðaþjónustu skattlaust ár?“ spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítalans, í Facebook-færslu.

„Ruglingslegum og mótsagnakenndum“ kröfum um björgunarlaun vísað frá dómi
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Austurlands um að vísa máli fyrrverandi áhafnarmeðlims olíuflutningaskips, sem fór fram á björgunarlaun vegna strands frystiskipsins M/V Green Freezer í Fáskrúðsfirði árið 2014, frá dómi.

Sjúkraliðar og hinn nýi stjórnarsáttmáli
Nú hefur ný ríkisstjórn litið dagsins ljós og er ástæða til að óska henni velfarnaðar í starfi. Það skiptir okkur öll miklu máli að vel takist til, ekki síst á tímum heimsfaraldurs og áskorana í efnahagsmálum.

Hlutfall launa af launakostnaði 79,4 prósent árið 2020
Hlutfall launa af launakostnaði var 79,4 prósent árið 2020 en hlutfall annars launakostnaðar, til að mynda mótframlaga í lífeyris- og séreignasjóði og orlof, var 20,6 prósent.

Kennarar vísa viðræðum til ríkissáttasemjara: „Öllu hefur verið hafnað sem við höfum lagt fram“
Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara. Kjarasamningar grunnskólakennara renna út um áramótin.

Costco ber að greiða ferðir starfsmanna utan áætlunartíma strætó
Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Costco sé skylt að greiða starfsmönnum fyrir ferðir til og frá vinnu í verslunina við Kauptún í Garðabæ á þeim tíma sem strætisvagnar ganga ekki, óháð því hvernig starfsmenn haga ferðum til og frá vinnu á öðrum tíma.

Kellogg hyggst ráða 1.400 starfsmenn í stað þeirra sem eru í verkfalli
Stórfyrirtækið Kellogg hyggst ráða nýja starfsmenn í stað 1.400 starfsmanna sem hafa verið í verkfalli frá því í október síðastliðnum. Starfsmennirnir höfnuðu á dögunum samningi til fimm ára sem hljóðaði upp á 3 prósenta launahækkun.

Eru launahækkanir að sliga íslenskt atvinnulíf?
Fyrir að verða tveimur árum skall heimsfaraldur Covid-19 á Íslandi. Ferðaþjónusta hér á landi eins og um allan heim hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiðleika vegna faraldursins og hefur eitt helsta markmiðið undanfarin misseri verið að halda rekstri fyrirtækjanna á lífi.