Kjaramál

Á sjötta tug missa vinnuna hjá Ístaki
Verktakafyrirtækið Ístak hefur sagt upp 31 fastráðnum starfsmanni og þá verða samningar við 25 starfsmenn sem starfað hafa fyrir fyrirtækið í gegnum starfsmannaleigu ekki endurnýjaðir.

Segir fjármálaráðherra tala niður til verkafólks í landinu
Formaður Framsýnar á Húsavík segir stöðuna í kjaramálum þannig að ráðherrar og deiluaðilar þurfi að hittast og finna lausnir. Fari fram sem horfir geti deilan orðið nánast óleysanleg. Hann segir málflutning fjármálaráðherra olíu

Ferðamálaráðherra segir fólk ekki nærast á verðbólgu og vaxtahækkunum
Ferðamálaráðherra segir fólk ekki borða óstöðugleika, verðbólgu og vaxtahækkanir frekar en meðaltöl í launahækkunum.

Birta mynd af „skammarlistanum“ í almennu rými
Framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðasviðs hjá Íslandshótelum, sem eiga Grand hótel, þvertók fyrir það að listinn hefði hangið uppi á hótelinu í samtali við Mbl í dag.

Um 500 manns hafa greitt atkvæði hjá Eflingu
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir jákvætt að viðræður við öll félög á almenna vinnumarkaðnum séu nú komnar á vettvang ríkissáttasemjara.

Sammála um aðkomu lífeyrissjóðanna að leigumarkaðnum
María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins, segir að félagið hafi fundað með VR og þar hafi komið í ljós mikill samhljómur um leigumarkaðinn.

Hækkaði forstjóra ISAVIA áður en hann hækkaði sjálfur
Stjórn Íslandspósts hóf umræðu um launabreytingu forstjóra fjórum dögum eftir að forstjóri ISAVIA var hækkaður í launum. Stjórnarformaður ISAVIA segir hækkunina í samræmi við starfskjarastefnu.

Áhyggjur innan hótelgeirans
Þungt hljóð í rekstraraðilum innan hótelgeirans. Framkvæmdastjóri Hótel Sögu segir launakostnað víða um helming útgjalda. Framkvæmdastjóri Íslandshótela segir svigrúm til launahækkana, en ekki mikilla.

Gengið vel að ná til erlendra starfsmanna
Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun starfsmanna Eflingar sem starfa við þrif og hreingerningar á hótelum og gistihúsum hófst í gær. Samtök atvinnulífsins telja atkvæðagreiðsluna ekki standast lög og hvetja Eflingu til að stöðva hana.

Iðnaðarmenn hjóla í verkalýðshreyfinguna
Fjölmennur fundur fagaðila í iðnaði, sem haldinn var í gær, fordæmdi harðlega það sem þeir telja óforskömmuð vinnubrögð verkalýðshreyfingarinnar þar sem þeir hafi gengið freklega fram hjá innlendri framleiðslu við innflutning á fullbúnum húsum, innréttingum og húsgögnum hingað til lands.

Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara
Iðnaðarmenn vilja fá meiri gang í kjaraviðræðurnar undir stjórn Ríkissáttasemjara

„Breiðu bökin í ferðaþjónustunni“ skotmörk verkfalla
Fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir beinast að "breiðu bökunum“ í ferðaþjónustu en Ragnar Þór vildi ekki gefa upp hvaða fyrirtækjum umræddar aðgerðir beinast að.

Leggja til umfangsmiklar breytingar á staðgreiðslukerfinu
Vaxtabótakerfið er í eðli sínu flókið og ógangsætt samkvæmt nýrri skýrslu en sérfræðihópur á vegum fjármálaráðuneytisins leggur til að það verði einfaldað.

Draga fyrirhugaðar hækkanir á leigu til baka
Almenna leigufélagið mun draga til baka fyrirhugaðar hækkanir leigu sem áttu að koma til framkvæmda á næstu mánuðum og mun nú hefja viðræður við VR hvernig tryggja megi betur stöðu leigjenda.

Telja skynsamlegt að atkvæðagreiðslur á vinnustöðum fari fram í samráði við vinnuveitendur
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), segir að það sé skynsamlegt að atkvæðagreiðslur á vinnustöðum um boðun verkfalls hjá félagsmönnum í Eflingu fari fram í samráði við vinnuveitendur.

Bönnuðu vinnu við City Park Hótel í október þar sem aðstæður þóttu lífshættulegar starfsmönnum
Framkvæmdir áttu sér stað án byggingarleyfis frá borginni.

Kom til snarpra orðaskipta á milli hóteleiganda í Ármúla og formanns Eflingar
Til snarpra orðaskipta kom nú um hádegisbil á milli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Árna Vals Sólonssonar, eiganda Park City Hotel í Ármúla í Reykjavík, vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls á meðal starfsmanna hótelsins sem eru í Eflingu.

Telja atkvæðagreiðslu Eflingar ólögmæta og hóta félaginu málsókn
Samtök atvinnulífsins telja atkvæðagreiðslu Eflingar um boðun verkfalls starfsfólks á gistihúsum og hótelum ólögmæta en atkvæðagreiðslan hófst klukkan 10 í morgun og stendur til klukkan 22 á fimmtudagskvöld.

Ekki einsdæmi að félög deili sjóðum í verkfallsaðgerðum
Sú hugmynd samflotsstéttarfélaganna fjögurra að standa sameiginlega undir kostnaði við hugsanlegar verkfallsaðgerðir er ekki einsdæmi. Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR, segir þetta hafa verið gert áður, síðast í aðgerðum í álverinu í Straumsvík. VR og Efling leggja til um sjö milljarða sjóði.

Mínir svæsnustu fordómar
Fordómar eru í grunninn auðveld leið til þess að segja eitthvað misgáfulegt um alls konar dót sem maður veit ekkert um, fólk sem maður þekkir ekki og málefni sem maður hefur ekki kynnt sér af neinni dýpt.

Segir ræstingafólk tilbúið í aðgerðir
„Eins og ég sé stöðuna þurfa atvinnurekendur að finna fyrir þrýstingi, og finna fyrir því að við munum gera allt í okkar valdi til að breyta stöðunni,“ segir Zsófia Sidlovits, ræstitæknir á Hótel Borg og Apóteki hóteli.

Segir áherslur félaganna einkennilegar
Ferðamálaráðherra hefur áhyggjur af stöðunni sem upp er komin í deilu fjögurra verkalýðsfélaga við SA. Það skjóti skökku við að aðilar virðist ekki vissir um hvert þrætueplið sé.

Segir pattstöðuna ekki verkalýðsfélögum að kenna
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir viðræðurnar hafa farið fram af ábyrgum hætti af hálfu verkalýðsfélaganna en telur viðleitni hafi skort hjá viðsemjendum félaganna.

Segir atkvæðagreiðslu um verkfallsaðgerðir hefjast í næstu viku og vísar ummælum fjármálaráðherra á bug
Formaður VR segir að fyrstu verkfallsaðgerðir félagsins muni beinast að ferðaþjónustunni.

Veltir fyrir sér hvort valdastéttin hafi myndað „ósýnilegt bandalag“ sem stjórni landinu
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, veltir því fyrir sér hvort á Íslandi sé til svokallað djúpríki eða "Deep State“ eins og það er kallað á ensku.

Sakar verkalýðshreyfinguna um leikaraskap
Friðjón Friðjónsson, almannatengill, sakaði verkalýðsfélögin um leikaraskap í kringum kjaraviðræðurnar.

„Menn eru ekki einu sinni sammála um hvað var rætt um“
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir gagnrýni á skattatillögur ríkisstjórnarinnar vera illskiljanlega og er gáttaður á því að kjaraviðræður hafi tekið eins langan tíma og raunin er en á sama tíma hafi viðræður ekkert gengið og svo virðist sem að deiluaðilar viti ekki hvað verið sé að ræða.

Gul vesti voru áberandi í svokallaðri hungurgöngu
Gul vesti voru áberandi á Austurvelli í dag þar sem svokölluð hungurganga fór fram.

Birta sögur fólks sem búið hefur við fátækt: „Þú ert algerlega einn og öllum er sama“
Gulu vestin birtu örsögur fólks sem búið hefur við bágar aðstæður á Facebook-síðu sinni í dag.

Hvorki græðgi né frekja að vilja lifa af á launum sínum
Í ræðunni sinni varpaði Þuríður Harpa ljósi á þá alvarlegu stöðu sem fátækt fólk og öryrkjar búa við á Íslandi og sagði að frá þeirra sjónarhorni væri ísland svo sannarlega ekki land tækifæranna og velsældar. Fátækt sé þjóðarskömm í ríku landi.