Kjaramál

Fréttamynd

Vísar gagn­rýni verkalýðs­leið­toga til föður­húsanna

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs vísar athugasemdum formanns BSRB um úttekt ráðsins á veikindarétti opinberra starfsmanna á bug. Hann hafnar því að alvarlegar misfellur séu í greiningu ráðsins sem dregur þá ályktun að veikindaréttur þeirra geti verið sjöfaldur á við starfsmann með sama starfsaldur í einkageiranum.

Innlent
Fréttamynd

Skjald­borg um sjöfaldan veikindarétt

Viðskiptaráð birti í vikunni úttekt á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þar er ljósi varpað á þá staðreynd að veikindaréttur hjá hinu opinbera er allt að sjöfaldur miðað við einkageirann. Samhliða þessum ríkari réttindum eru veikindafjarvistir tvöfalt algengari hjá hinu opinbera.

Skoðun
Fréttamynd

Til­raun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu

Í liðinni viku ákvað Viðskiptaráð, ja eða einstaklingar á þeirra vegum, að gera tilraun til Íslandsmets í niðurrifsorðræðu með atrennu. Tilraunin fólst í aðför að veikindarétti hóps sem af einhverjum ástæðum virðist vera í miðjupunkti píluspjaldsins hjá Viðskiptaráði. Opinbert starfsfólk.

Skoðun
Fréttamynd

Verka­lýðs­leið­togar hjóla í Við­skipta­ráð

Formenn stéttarfélaganna BHM og BSRB gagnrýna harðlega úttekt Viðskiptaráðs á veikindarétti opinberra starfsmanna. Þær segja skýrsluna unna út frá misvísandi gögnum og að tillaga ráðsins um að færa veikindarétt opinberra starfsmanna til jafns við einkageirann sé ómanneskjuleg. 

Innlent
Fréttamynd

Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnar­firði

Hafnarfjarðarbær hefur greitt þremur fyrrverandi starfsmönnum alls vel rúmlega fimm milljónir króna í sáttagreiðslur á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hafa verið gerðir sextán starfslokasaminga sem eru umfram þriggja mánaða uppsagnarfrest.

Innlent
Fréttamynd

Rang­færslur Við­skipta­ráðs

Það er villandi þegar Viðskiptaráð dregur fram tölur um veikindafjarveru opinberra starfsmanna frá árinu 2020 og notar þær sem rök í dag. Fyrsta ár Covid-19 einkenndist af fordæmalausum aðstæðum. Framlínustarfsfólk, sem hélt samfélaginu gangandi, var í gjörólíkum aðstæðum en þau sem gátu unnið heima og voru eðli málsins samkvæmt í mun meiri hættu á að veikjast. Fleiri skráðir veikindadagar á opinberum markaði árið 2020 eru því eðlileg niðurstaða af mismunandi starfsaðstæðum fólks á almennum og opinberum vinnumarkaði.

Skoðun
Fréttamynd

Ofurlaun fyrir leik­skóla­kennara

Verandi foreldri barns á leikskólaaldri hef ég skoðun á leikskólamálum í Reykjavík og sérstaklega á kjörum og aðbúnaði leikskólakennara sem og annars starfsfólks leikskóla. Nýverið hef ég tekið þátt í aðlögun míns eigins barn á leikskóla.

Skoðun
Fréttamynd

„Fjöl­skyldur eru margar í al­gjörri spenni­treyju“

Oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Eflingar telja nýjar tillögur Reykjavíkurleiðarinnar betri en þær sem voru kynntar í haust. Formaður Eflingar hefur áhyggjur af því að ekki sé nóg gert til að bregðast við alvarlegri stöðu innan leikskóla en er vongóð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af áhrifum breytinganna á fjölskyldur og er ekki hrifin af tekjutengingu í gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

Borgin taki til sín fimmtung launa­hækkunar barnafólks

VR gerir ráð fyrir því að Reykjavíkurborg taki um 20 prósent, eða fimmtung, af kjarasamningsbundnum launahækkunum barnafjölskyldna í borginni á þessu ári. Mest muni þar í krónum talið um nýkynnta hækkun á leikskólagjöldum en hitaveitukostnaður vegi einnig hlutfallslega þungt. 

Innlent
Fréttamynd

Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar ör­yrkja

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur þungar áhyggjur af því að myndast hafi öfugur hvati fyrir atvinnuþátttöku launafólks sem greint hefur verið með tímabundna örorku. „Ef smyrja á þessu yfir allt,“ segir Vilhjálmur og vitnar í glæný gögn.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um kjör Wolt-sendla

Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Getur ekki séð að „heims­enda­spár gagn­rýn­endanna“ séu að rætast

Nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum var kynnt í dag. Leikskólastjórar, sem kröfðust breytinga fyrr í mánuðinum segja nýja kerfið hafa bæði kosti og galla. Formaður Eflingar segir tillögurnar jákvæðar, loks sé verið að grípa til aðgerða sem eru bæði í þágu starfsmanna leikskólanna en einnig þeirra á almennum vinnumarkaði.

Innlent
Fréttamynd

„Al­gjör­lega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undan­farin ár“

Með nýju Reykjavíkurmódeli í leikskólamálum gætu leikskólagjöld lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira. Markmiðið er meðal annars að bæta mönnun, starfsaðstæður og faglegt starf á leikskólum. Oddviti Vinstri grænna segir frekari aðgerðir í farvatninu í leikskólamálum, staðan undanfarin ár hafi verið óboðleg. Formaður Samtaka foreldra leikskólabarna segir vonbrigði að borgaryfirvöld varpi með þessu frekara samviskubiti yfir á foreldra.

Innlent
Fréttamynd

Stærstur hluti for­eldra falli al­gjör­lega utan af­sláttar­kerfis

Formenn VR og BSRB gagnrýna breytta Reykjavíkurleið. Formaður VR segir tekjutengingu leikskólagjalda fátæktargildru og formaður BSRB segir flesta foreldra nú standa frammi fyrir því að greiða meira eða þurfa að draga úr vinnu. Hún segir umhugsunarvert að svo stórar kerfisbreytingar hafi orðið án nokkurrar pólitískrar umræðu og gagnrýnir að starfsfólki og foreldrum sé stillt upp sem andstæðum hópum.

Innlent
Fréttamynd

Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl

Í nýrri Reykjavíkurleið er gert ráð fyrir að gjaldfrjálsi 36 tíma dvöl í leikskóla, að undanskildu fæðisgjaldi sem er rúmar 15 þúsund krónur. Allir einstæðir foreldrar fá afslátt og fólk í sambúð sem þénar minna en 18 milljónir á ári. Skráningardagar eru um 11 á ári og mun hver þeirra kosta 5000 krónur. Markmið með breytingum er að fá foreldra til að skrá raundvalartíma barna sinna. 

Innlent
Fréttamynd

Kynna breytta Reykjavíkurleið

Reykjavíkurleiðin, leikskólaleiðin í Reykjavík, verður kynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Reykjavíkurleiðin var fyrst kynnt síðasta haust og fór þá í samráð. Eftir samráð var tillögunum breytt og þær sendar í jafnréttismat. Breyttar tillögur verða kynntar í ráðhúsinu klukkan 11 í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning

Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogi segir um mistök í stjórnsýslunni að ræða og lækkunin sem ákveðin var í apríl í fyrra hafi ekki komist til framkvæmda. En um leið og þetta uppgötvaðist var haft samband við bæjarfulltrúa og þeim tjáð að þeir hafi fengið ofreiknuð laun eða þóknun og þurfi því að endurgreiða þóknunina.

Innlent
Fréttamynd

Tveir veiði­menn fengu tvær milljónir frá Hval

Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt Hval hf. til að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum rúmar 2,1 milljónir króna hvorum í vangoldin laun vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023. Fyrirtækið var hins vegar sýknað af kröfum þriggja annarra starfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýnin byggi „að miklu leyti á mis­skilningi“

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að svo virðist sem misskilnings hafi gætt í umræðu um frumvarp Flokks fólksins er varðar tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Málið hefur sætt mikilli gagnrýni en Ragnar vill meina að sú gagnrýni sé að miklu leyti byggð á misskilningi. Þegar sé sleginn varnagli í frumvarpinu sem komi í veg fyrir hinn svokallaða „tvöfalda lás“ sem hefur sætt gagnrýni.

Innlent
Fréttamynd

Mis­skilningur um launa­vísitöluna

Launavísitölufrumvarpið svo kallaða er nú til meðferðar á Alþingi, og hefur málið verið talsvert í fréttum undanfarna daga. Um er að ræða eitt af lykilmálum Flokks fólksins, um að tryggja að ellilífeyrir og örorkulífeyrir taki árlega breytingum til samræmis við launavísitölu, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Skoðun
Fréttamynd

Ríkisfjármálaleg tíma­sprengja, mis­tök eða tíma­bært rétt­lætis­mál?

Varhugavert, ríkisfjármálaleg tímasprengja, möguleg hagstjórnarmistök í uppsiglingu og sjálfvirk útgjaldaaukning sem stuðlað getur að ósjálfbærni ríkissjóðs. Þessi orð hafa meðal annars verið notuð til að lýsa einu helsta þrætueplinu á Alþingi undanfarnar vikur. Hér er þó ekki verið að vísa í orð stjórnarandstöðunnar, heldur sérfræðinga, meðal annars úr röðum akademíunnar, Fjármálaráðs og fjármálaráðuneytisins. 

Innlent
Fréttamynd

„Að­ferða­fræðin við þetta mál er al­veg galin“

Þingflokksformaður Flokks fólksins segir málflutning Sjálfstæðismanna um breytingar á örorku- og ellilífeyrisbótum sorglegan. Breytingunum sé aðeins ætlað að stöðva kjaragliðnun sem hafi átt sér stað síðustu ár. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir aðferðarfræðina við breytingarnar galna.

Innlent
Fréttamynd

Segja gögn um verk­taka­greiðslur tekin úr sam­hengi

Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi.

Innlent
Fréttamynd

Þetta eru launin sem fram­bjóð­endur geta vænst með kjöri í vor

Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Yfir átta­tíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfs­loka Páls

Mennta- og barnamálaráðuneytið og undirstofnanir þess hafa á árunum 2018 til 2025 gert ellefu starfslokasamninga og nemur kostnaður vegna þeirra samtals 84,1 milljón króna. Munar þar langmestu um tvo starfslokasamninga sem ráðuneytið sjálft gerði árin 2023 og 2025 sem kostað hafa ráðuneytið samtals tæpar 45 milljónir. Þá gerði Fjölbrautaskólinn í Garðabæ einn starfslokasamning árið 2024 upp á 12,8 milljónir, en það er árið sem skólinn gerði starfslokasamning við Pál Vilhjálmsson framhaldsskólakennara sem rataði í fréttir á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Skila af sér breyttri Reykja­víkur­leið í febrúar

Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, segir brýningu leikskólastjóra borgarinnar um stöðu leikskólanna, mönnunar og innleiðingu styttingar vinnuvikunnar mikilvæga. Hún áætlar að stýrihópurinn muni skila af sér í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

„Skýrar og síendur­teknar hótanir í garð verkalýðs­hreyfingarinnar“

Vilhjálmur Birgisson er ekki ánægður með skilaboð Seðlabanka Íslands til launafólks en seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri sögðu í morgun að bankinn myndi ekki hika við að hækka stýrivexti ef laun hækka. Sérstaklega var minnst á brugðist yrði við ef forsenduákvæði kjarasamninga yrði beitt í september. Það mælir fyrir um að rifta megi samningum ef verðbólga mælist yfir fimm prósentum í ágúst. „Ef forsendur kjarasamninga standast ekki í september þá ber að segja þeim upp,“ segir Vilhjálmur.

Viðskipti innlent