Írak

Fréttamynd

Umdeilt dráp í mosku

Bandaríski herinn er að rannsaka hvers vegna bandarískur hermaður skaut Íraka sem lá særður inni í mosku í Falluja.

Erlent
Fréttamynd

Hassan tekin af lífi

Íraskir gíslatökumenn hafa myrt Margaret Hassan, stjórnanda hjálparsamtakanna CARE, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera. Sjónvarpsstöðin sagðist í gær vera með myndbandsupptöku af morðinu undir höndum en birti hana ekki.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist gegn vígamönnum í Mosul

Á annað þúsund bandarískir og íraskir hermenn réðust gegn vígamönnum í Mosul til að koma á kyrrð í borginni. Vígamenn réðust á lögreglustöðvar í borginni meðan athygli Bandaríkjahers beindist að mestu að Falluja og náðu lögreglustöðvunum á sitt vald.

Erlent
Fréttamynd

Bardagar breiðast út

Bandarískar herþotur vörpuðu sprengjum á vígamenn í Baquba og Falluja í gær þar sem harðir bardagar geisuðu milli vígamanna annars vegar og bandarískra og íraskra hermanna hins vegar. Tugir manna féllu í bardögum sem hafa breiðst út um Írak í kjölfar árásarinnar á vígamenn í Falluja.<font face="Helv" color="#008080"></font>

Erlent
Fréttamynd

Falluja í hendur Bandaríkjanna

Eftir tæplega vikulanga bardaga segjast bandarískir og íraskir hermenn í Falluja í Írak hafa náð stjórn á næstum allri borginni, en hún var áður undir yfirráðum skæruliða.

Erlent
Fréttamynd

600 uppreisnarmenn drepnir

Bandarískar herflugvélar og stórskotalið gerðu árásir á suðurhluta borgarinnar Falluja í gær. Þar er talið að meginkjarni íraskra uppreisnarmanna haldi sig og reynir bandaríski herinn að þrengja að þeim.

Erlent
Fréttamynd

Að mestu á valdi hersetuliðsins

Sprengjuregnið í borginni Fallujah í Írak hófst á ný snemma í morgun eftir nokkur hlé þar í nótt. Talsmenn Bandaríkjahers segja borgina að mestu á valdi hersetuliðsins en andspyrna er þó enn töluverð á nokkrum stöðum í borginni þar sem skæruliðar og hryðjuverkamenn halda sig.

Erlent
Fréttamynd

Ættingjum Allawis rænt

Hópur íslamskra öfgamanna, sem kallar sig Ansar al-Jihad, greindi frá því í yfirlýsingu sem þeir birtu á Netinu fyrir stundu að þeir héldu þremur ættingjum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, í gíslingu. Hópurinn hótar að drepa fólkið innan tveggja sólarhringa, verði árásum bandarískra og írakskra hersveita á Fallujah ekki hætt.

Erlent
Fréttamynd

Hörmungarástand í Falluja

Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Tíu bandarískir hermenn fallnir

Sprengjum hefur rignt yfir Fallujah í Írak í nótt en áhlaup Bandaríkjahers og írakskra hersveita á borgina stendur þar nú sem hæst. Ekki færri en tíu bandarískir hermenn hafa fallið í bardögunum.

Erlent
Fréttamynd

Sláturhús gíslanna fundið

Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu.

Erlent
Fréttamynd

Komnir inn í miðborgina

Fjörutíu og fimm írakskir löggæslumenn féllu í árásum skæruliða skammt frá Bagdad í morgun. Harðir bardagar geisa í Fallujah og hafa bandarískar hersveitir komið sér fyrir í hjarta borgarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Barist hús úr húsi

Harðir bardagar geisuðu í Falluja annan daginn í röð. Herferðin gegn vígamönnum þar hefur valdið úrsögnum úr írösku bráðabirgðastjórninni. Tugþúsundir óbreyttra borgara eru enn í borginni og halda sig innandyra. </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Sókn hernámsliðsins heldur áfram

Harðir bardagar geisa nú í borginni Fallujah í Írak. Hátt í fimmtán þúsund hermenn Bandaríkjamanna og Íraka héldu í nótt áfram sókn sinni inn í borgina og mæta þar harðri andstöðu. Árásinni er beint gegn uppreisnarmönnum úr röðum súnníta en talið er að nokkur þúsund þeirra séu í Fallujah.

Erlent
Fréttamynd

Stórárás hafin á Fallujah

Bandaríkjamenn og íraskir þjóðvarðliðar hafa hafið stórárás á borgina Fallujah og þar geisa nú harðir bardagar. Flestir borgarbúa eru flúnir. Talið er að um þrjátíu þúsund hermenn taki þátt í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjum rigndi yfir Falluja

Bandarískir og íraskir hermenn brutu sér leið inn í Falluja í gær þegar þeir hófu stórsókn gegn vígamönnum í borginni. Harðir bardagar geisuðu fram eftir degi. Tugir vígamanna og nokkur fjöldi íbúa lést </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Harðir bardagar í Fallujah

Bandarískir skriðdrekar og fótgönguliðar hafa ráðist á járnbrautarstöð rétt innan borgarmarka Fallujah og láta skothríðina dynja á uppreisnarmönnum sem þar halda til. Árásarþyrlur og orrustuþotur sveima yfir borginni, reiðubúnar að leggja til atlögu þar sem mótstaðan verður mest.

Erlent
Fréttamynd

Leyniskyttur skutu verktaka

Leyniskyttur skutu til bana fjóra írakska verktaka sem voru á leið frá bandarískri herstöð í morgun. Átök í Írak hafa farið harðnandi undanfarið en bandarískir hermenn hafa ráðist til atlögu á borgina Fallujah. Uppreisnarmenn hafa haft aðsetur í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjur dynja á Fallujah

Harðir bardagar geisa í Fallujah í Írak eftir að forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar heimilaði bandarískum hersveitum að gera árás á uppreisnarmenn úr röðum súnníta. Sprengjuárásir dynja á borginni og hafa fjölmargir uppreisnarmenn fallið.

Erlent
Fréttamynd

Neyðarástandi lýst yfir

Bráðabirgðastjórnin í Írak lýsti í gær yfir 60 daga neyðarástandi í landinu. Í gærkvöld var ekki ljóst hvað þessi yfirlýsing þýddi í raun, en talið er líklegt að sett verði útgöngubann og enn meiri áhersla lögð á öryggisgæslu.

Erlent
Fréttamynd

21 lögreglumaður drepinn

Að minnsta kosti tuttugu og einn lögreglumaður var skotinn til bana í árás írakskra andspyrnumanna á lögreglustöð í Haditha sem er 200 kílómetra vestur af Bagdad. Lögregla segir að andspyrnumenn hafi stormað inn, afvopnað lögreglumennina, raðað þeim upp og myrt.

Erlent
Fréttamynd

Írökskum ráðherra sýnt banatilræði

Fjármálaráðherra Íraks var sýnt banatilræði þegar öflug bílsprengja sprakk við hús hans í miðborg Bagdad í dag. Ráðherrann, Adel Abdul , sagði í samtali við Reuters-fréttastofuna fyrir stundu að hann hafi ekki verið heima þegar sprengjan sprakk og því væri hann heill á húfi. Einn lífvarða Mahdis og einn lögreglumaður létust hins vegar í sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Vonast eftir friðsamlegri lausn

Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, segist vona að friðsamleg lausn finnist áður en til þess komi að hernámsliðið í landinu ráðist inn í Falluja eins og hefur verið í bígerð. Borgin er á valdi skæruliða og hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra hug á að breyta þeirri skipan mála.

Erlent
Fréttamynd

37 hafa farist í Samarra

Að minnsta kosti þrjátíu sjö hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Bandarískir og írakskir hermenn réðust inn í Samarra í síðasta mánuði til að ná borginni úr höndum uppreisnarmanna sem berjast hatrammlega á móti.

Erlent
Fréttamynd

Deilt um kosningarnar í Írak

Írakar munu eyða 90 milljónum dollara, sem samsvarar tæpum sjö milljörðum íslenskra króna, til að gera írökskum ríkiborgurum sem búa utan heimalandsins kleift að taka þátt í kosningunum sem fram fara í landinu á næsta ári. Sameinuðu þjóðirnar eru á móti þessari ráðagerð og segja hana of dýra, erfiða í framkvæmd og opna leiðir fyrir hugsanleg svik.

Erlent
Fréttamynd

30 látnir og tugir særðir

Að minnsta kosti þrjátíu hafa farist í nótt og í morgun og tugir særst í fjórum bílsprengjum í Samarra-borg í Írak. Andspyrnumenn réðust auk þess inn á þrjár lögreglustöðvar þar sem kom til átaka og margir særðust.

Erlent
Fréttamynd

Þrír breskir hermenn létust í Írak

Þrír breskir hermenn létu lífið þegar ráðist var á þá. Hermennirnir voru meðlimir hersveitar sem var nýlega flutt frá bresku herstjórnarsvæðunum við Basra inn á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers þar sem hefur verið mun meira um árásir en á breska svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

9 flugvallarstarfsmenn drepnir

Að minnsta kosti níu létust þegar sprengja sprakk í rútu með starfsmönnum alþjóðaflugvallarins í Bagdad í morgun. Ekki er vitað um fjölda særðra. Einn starfsmaður olíumálaráðuneytis Íraks var jafnframt drepinn þegar byssumenn skutu hann til bana í höfuðborginni.

Erlent
Fréttamynd

Aðstoðarborgarstjóri Bagdad myrtur

Aðstoðarborgarstjóri Bagdad var í dag skotinn til bana af byssumönnum í borginni stríðshrjáðu. Fjórir lífverðir borgarstjórans særðust í árásinni. Skæruliðasamtökin „Her Ansar al-Sunna“ hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.

Erlent