Fjármálafyrirtæki

Fréttamynd

Viðsnúningur í rekstri Akta með auknum eignum í stýringu

Eftir erfiðleika í rekstri undanfarin ár samhliða verðlækkunum á mörkuðum og útflæði úr sjóðum varð töluverður viðsnúningur í afkomu Akta á fyrri árshelmingi þegar félagið skilaði yfir áttatíu milljóna hagnaði. Framkvæmdastjóri Akta og stærsti hluthafinn seldi nýlega meira en þriðjunginn af öllum hlut sínum í félaginu.

Innherji
Fréttamynd

„Lán á bara að vera lán“

Lilja Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans segir að þó svo að verðtryggð lán séu leið margra til að komast inn á húsnæðismarkað sé það sýn hennar og bankans að verðtryggð lán séu ekki nauðsynleg til lengri tíma. Hún sjái fyrir sér framtíð þar sem vægi þeirra verður minna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum

Samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu eru sértækir skattar sem lagðir eru á íslenska viðskiptabanka rúmlega fimmfalt hærri en sértækir skattar sem lagðir eru á bankar í öðrum löndum Vestur-Evrópu og þrefalt hærri en þar sem skattarnir eru næst hæstir. Verði af fyrirhugaðri skattahækkun á íslensk fjármálafyrirtæki hækki hlutfallið enn frekar og Ísland fjarlægist Evrópu í vaxandi mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gæti gefið eftir með haustinu en munum ef­laust á­fram búa við sterka krónu

Góð staða helstu útflutningsgreina, sem birtist meðal annars í hækkandi afurðaverði í sjávarútvegi og „mjög sterku“ ferðamannasumri, samhliða háu vaxtastigi hefur ýtt undir gengishækkun krónunnar og er raungengið núna í hæstu hæðum. Sérfræðingur á gjaldeyrismarkaði segir að á meðan sú staða helst óbreyttu sé fátt sem bendi til þess að gengið muni hreyfast mikið og því áfram útlit fyrir sterka krónu.

Innherji
Fréttamynd

Skipu­lag sem má ekki borga sig!

Skipulögð brotastarfsemi hefur á undanförnum árum orðið umfangsmeiri og aðferðir brotahópa þróaðri og fjölbreyttari. Það kallar á öflug og samstillt viðbrögð þvert á ýmsa aðila m.a. stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta er sagt af mikilli virðingu“

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Djúp­fölsun nýtt til fjár­svika á gervi­fjar­fundum

Djúpfölsuð myndbönd þar sem ímynd þekktra einstaklinga er notuð verða sífellt algengari að sögn Defend Iceland. Tæknin sé orðin þannig að nánast hver sem er geti útbúið slíkt myndefni og til að koma í veg fyrir möguleg svik er fjölskyldum ráðlagt að nota lykilorð í samskiptum sín á milli.

Innlent
Fréttamynd

Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts

Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spá mestu verð­bólgu síðustu tveggja ára

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga aukist úr 5,3 prósentum í 5,6 prósent í ágúst með 0,15 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs. Það yrði mesta verðbólga frá ágúst árið 2024. Landsbankinn spáir einnig aukningu verðbólgu en ívið minni en Íslandsbanki.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Arion banki hækkar gjöld

Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent.

Neytendur
Fréttamynd

Að­eins 50 hafa nýtt sér með­eignarúrræðið: „Þetta eru fimm­tíu sem hafa komist í eigið hús­næði“

Fram til þessa hefur 44 kaupsamningum verið þinglýst þar sem notað er svokallað sameignarfyrirkomulag. Fyrirkomulagið hafur nú verið til staðar í tíu mánuði en HMS segir að útbreiðsla þess sé enn takmörkuð. Sjóðir sem buðu upp á slíkt sameignarfyrirkomulag spruttu upp eins og gorkúlur síðasta haust og báru heiti eins og SAFÍR20, REIR20, Kauplykill og ÞG Sjóður.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hækkanir á komu­gjöldum í heil­brigðis­kerfinu munu ýta undir verð­bólgu í ágúst

Boðaðar breytingar á verðskrá í heilbrigðiskerfinu, meðal annars tvöföldun komugjalda á heilsugæslum, munu hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs í ágústmánuði, að sögn greinenda. Miðað við spár er útlit fyrir að verðbólgan haldist á svipuðum slóðum í júlí í kringum 5,2 prósent en muni síðan hækka nokkuð í næsta mánuði, skömmu áður en reynir á forsenduákvæði kjarasamninga.

Innherji
Fréttamynd

Hluta­fé Fossa aukið um 300 milljónir til að styðja við vöxt á efna­hag bankans

Á meðan afkoman hjá Skaga var dræm af fjármálastarfsemi og fjárfestingum, meðal annars talsvert rekstrartap hjá Fossum, þá náði að vega á móti að áfram var góður gangur í tryggingarekstrinum á öðrum fjórðungi. Í lok síðasta mánaðar stóð móðurfélagið að baki hlutafjáraukningu í Fossum upp á þrjú hundruð milljónir sem á að styðja við aukna lánastarfsemi fjárfestingabankans.

Innherji
Fréttamynd

Hús­næðis­lán séu síðasta vígið en það muni falla

Sparisjóðurinn Indó hefur nú bætt langtímalánum við vöruframboð sitt en hingað til hefur aðeins verið boðið upp á yfirdráttarlán. Framkvæmdastjóri Indó segir að langtímamarkmiðið sé að bjóða upp á húsnæðislán og gera fólki þannig kleift að kveðja stóru bankana og stunda öll sín bankaviðskipti við Indó.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Upp­taka evru myndi ekki einungis hafa á­hrif á vexti

Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kreditkortavandi hjá Lands­bankanum leystur

Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu.

Neytendur