Norður-Ameríka

Kynferðisbrot í kaþólskum drengjaskóla komst upp á samfélagsmiðlum
Átta nemendur kaþólska drengjaskólans St. Michael's College School í Toronto voru reknir og einn sendur í leyfi eftir að myndbönd af ofbeldisverkum innan veggja skólans komust í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Hundruð úr hópi förufólksins hafa náð landamærunum
Nokkur hundruð úr hópi förufólksins sem hafa farið fótgangandi frá ríkjum í Mið-Ameríku í átt að Bandaríkjunum síðustu vikurnar hafa náð landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna.

Leikarinn sem ljáði Hal rödd sína í 2001 er látinn
Kanadíski leikarinn Douglas Rain er látinn, níutíu ára að aldri.

Hundruðir halda áfram ferð sinni að landamærunum
Um fimm hundruð flóttamanna héldu í dag frá Mexíkóborg í átt að landamærum Bandaríkjanna. Þúsundir bíða enn færis til þess að komast yfir. Hópurinn byrjaði á því að taka neðanjarðarlest nyrst í borgina og fóru svo gangandi með fram hraðbraut í lögreglufylgd.

Breytt veður leiðir hvalina af leið
Kanadamenn velta því nú fyrir sér hvort hvalir séu að breyta ferðavenjum vegna loftslagsbreytinga, að því er grænlenska útvarpið segir.

Munu ekki geta sótt um hæli í Bandaríkjunum
Fólk sem kemur ólöglega yfir suðurlandamæri Bandaríkjanna mun héðan í frá ekki geta sótt um hæli í Bandaríkjunum.

Umdeilt að senda hermenn að Mexíkó
Flóttamannalestin hélt áfram í átt að Bandaríkjunum í gær. Málið mikið rætt í kosningabaráttunni. 5.000 hermenn verða sendir til að tryggja öryggi á landamærunum við Mexíkó. Trump forseti ætlar að hætta að veita börnum ólöglegra innflytjenda ríkisborgararétt.

Bandaríkjastjórn segist ætla að flytja þúsundir hermanna að landamærunum
Aðgerðin virðist liður í tilraunum Trump forseta til að gera innflytjendamál að meginstefinu í baráttunni fyrir þingkosningar sem fara fram í Bandaríkjunum í næstu viku.

Nýr hópur förufólks stefnir á Bandaríkin
Hópurinn lagði af stað frá höfuðborg El Salvador fyrr í dag.

Senda hermenn að landamærunum að Mexíkó
Liðsflutningarnir eru sagðir beint svar við áhyggjum Trump forseta af hópi flóttafólks frá Hondúras sem reynir að komast fótgangandi til Bandaríkjanna í gegnum Mexíkó.

Þúsundir ganga enn í norðurátt
Afar fjölmenn flóttamannalest hélt áfram för sinni til Bandaríkjanna. Kvef hrjáir flóttamennina. Enn er langt í Bandaríkin. Þar ræða Repúblikanar lestina af miklum móð. Demókratar halda sig hins vegar til hlés.