Heilbrigðismál

Íslendingarnir á Alicante ekki með Wuhan-veiru
Greint var frá því í gær að grunur væri um að fólkið hefði smitast af Wuhan-kórónaveiru.

Páll um bæturnar: „Svo himinhrópandi að þetta tekur eiginlega engu tali“
Páll Magnússon, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segist skilja reiði fólks varðandi samanburð á bótagreiðslu ríkisins vegna brots á jafnréttislögum annars vegar og dauða ungabarns vegna mistaka hins vegar.

Lýsa yfir óvissustigi vegna kórónaveirunnar
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveirunnar. Ekkert smit hefur verið staðfest á Íslandi.

Segir Íslendinga skelfilega eftirbáta Norðurlandaþjóðanna í heimahjúkrun
Íslendingar eru skelfilegar eftirbátar Norðurlandaþjóðanna þegar kemur að heimahjúkrun segir varaformaður Velferðarnefndar. Með því að auka heimahjúkrun væri hægt að minnka fráflæðisvanda Landspítalans til muna og skapa þar með betri starfsaðstæður fyrir hjúkrunarfræðinga.

Fleiri dauðsföll, annar neyðarspítali og „alvarlegt“ ástand
Alls hafa nú 56 látist af völdum Wuhan-veirunnar, nýs afbrigðis af kórónaveiru.

Segir sambýlið úrelt og henta illa fyrir fólk með fötlun
Forstöðumaður á sambýli fyrir fatlað fólk segir að húsnæði fólksins sé úrelt. Það uppfylli hvorki lög um fatlaða né nútímakröfur. Þrír af fjórum íbúum sambýlisins bjuggu á Kópavogshælinu og hafa fengið sanngirnisbætur vegna slæms aðbúnaðar þar.

Mistök í svari ráðuneytis um laun hjúkrunarfræðinga
Mistök voru gerð við vinnslu svars heilbrigðisráðherra við fyrirspurn um launamun hjúkrunarfræðinga eftir sjúkrahúsum.

Talið líklegt að Wuhan-veiran berist til Evrópu
Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) telur líklegt að Wuhan-veiran geti borist til Evrópu og þá sérstaklega til landa og/eða svæða sem eru með beinar flugsamgöngur til Wuhan-borgar í Kína.

„Í svona máli þá bæta peningar aldrei neitt“
Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður hjóna, sem fá milljónir í bætur í ríkinu vegna alvarlegra mistaka sem gerð voru á fæðingardeild Landspítalans sem leiddu til þess að nýfæddur sonur þeirra lést, segir upphæð bótanna byggða á tíu ára gömlu dómafordæmi Hæstaréttar í sambærilegu máli.

Sigga Kling greindist með krabbamein rétt fyrir áramót
Spákonan Sigga Kling greindist með sortuæxli rétt fyrir áramót og var í innlögn á Landspítala yfir hátíðirnar.

Geðrof er ekki lögbrot
Það ætti að samþætta þjálfun lögreglumanna í valdbeitingu og fræðslu um mismunandi handtökuaðferðir í ólíkum aðstæðum. Þetta segir forstöðumaður menntaseturs lögreglunnar. Formaður velferðarnefndar segir ástæðu til að nefndin skoði verkferla við erfið útköll.

Íslenskt app mun stórefla öryggi í heimahjúkrun
Origo vinnur að nýju appi sem stórauka á öryggi í heimahjúkrun. Appið, sem nefnist Smásaga frá Origo, gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að skrá sjúkragögn í gegnum snjalltæki og þannig koma í veg fyrir rangar skráningar og að gögn glatist.

Fá fimm milljónir í bætur frá ríkinu vegna andláts barns síns
Dauði nýfædds drengs á fæðingardeild Landspítalans var rakinn til vanrækslu starfsfólks spítalans.

Bað þingmenn að byggja málflutning sinn á staðreyndum
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki brugðist nægilega vel við þeim skorti sem sé á hjúkrunarrými fyrir aldraða.

Ormarnir í maga Kristínar bárust líklega með grænmeti
Kristín Sigurjónsdóttir ritstjóri Trölla.is greindist með ormasýkingu í fríi á Kanaríeyjum síðla árs í fyrra.

Dusta rykið af viðbragðsáætlunum og stilla saman strengi vegna Wuhan-veirunnar
Fulltrúar landlæknisembættisins munu síðar í dag eiga símafund með evrópskum heilbrigðisstofnunum til að ræða viðbúnað vegna Wuhan-veirunnar.

Heilbrigðiskerfi fyrir alla
Það skiptir okkur öll máli að heilbrigðiskerfið virki og þjónustan sé til reiðu þegar við þurfum á henni að halda. því ekki undarlegt að umræða um heilbrigðismál verði oft tilfinningaþrungin.

Aðalatriði að krabbamein verði langvinnur sjúkdómur en ekki bráðdrepandi
Vísindamenn í Cardiff telja sig hafa fundið leið til að vinna gegn flestum tegundum krabbameins. Íslenskur krabbameinslæknir segir rannsóknir þeirra á byrjunarstigi, hann hafi gert sambærilega rannsókn fyrir tíu árum.

Maðurinn sem varð fyrir bótúlismaeitrun liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi
Lömunin getur staðið yfir í nokkrar vikur.

„Eitt virkasta eiturefni sem til er“
Íslendingur á fimmtugsaldri liggur mjög veikur á sjúkrahúsi af völdum bótúlismaeitrunar.

Greindist með bótúlismaeitrun á Íslandi
Bótúlismi var greindur í fullorðnum einstaklingi hér á landi þann 18. janúar síðastliðinn.

126 kvartanir bárust landlækni í fyrra
Málsmeðferðartími kvartanamála er að jafnaði á bilinu sjö mánuðir og allt upp í tvö ár í einstaka tilfellum.

Telja mögulegt að lækna allar tegundir krabbameins með nýrri aðferð
Vísindamenn telja sig hafa fundið áður óþekktan hluta ónæmiskerfis manna sem mögulega sé hægt að nota til að lækna margar, ef ekki allar, tegundir krabbameins.

Engin ástæða til að óttast Wuhan-veiruna hér á landi enn sem komið er
Fjöldi einstaklinga, sem greinst hefur með hinn dularfulla kórónavírus, þrefaldaðist um helgina og eru 200 tilfelli sögð hafa komið upp í Kína. Sóttvarnarlæknir segir enga ástæðu ennþá til að bregðast sérstaklega við en heilbrigðisþjónustunni hér á landi hafi verið gert viðvart.

Að hengja bakara fyrir smið eða skjóta sendiboðann? Eða bæði?
Landspítali háskólasjúkrahús (LSH) er BRÁÐASJÚKRAHÚS OG KENNSLUSJÚKRAHÚS. Ég er orðin rúmlega langþreytt á því að um hann sé rætt eins og um sé að ræða feitan illa uppalinn krakka sem endalaust öskrar á meira nammi!

Fyrirmunað að skilja skipan nefndar um vanda bráðamóttöku
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir að búið sé að benda á það í mörg ár að hjúkrunarfræðingar fái hærri laun velji þeir að taka frekar aukavaktir en að skrá sig í hærra starfshlutfall.

Aðdáunarvert og sársaukafullt að fylgjast með baráttu Ölmu
Sigríður Karlsdóttir sem safnar nú fyrir krabbameinsveika móður með því að gefa út ljóðabók um dauðann.

Afhentu ljósmæðrum á þriðja hundrað myndir, nuddtæki og kökur
Ljósmæður á Landspítalnum fengu í dag afhentar á þriðja hundrað myndir af börnum sem þær tóku á móti í fyrra. Nýbakaðar mæður segjast vilja sýna ljósmæðrum þakklæti. Þá afhentu þær þeim einnig nuddtæki og kökur.

Segir fjárframlög til Landspítala ekki í samræmi við boðaða stórsókn í heilbrigðismálum
Þingmaður Samfylkingarinnar segir að setja þurfi tölur um fjárveitingar til Landspítalans í samhengi við íbúafjölgun og aðrar breytur. Að teknu tilliti til þeirra sé aukning fjárframlaga hins opinbera til Landspítalans á síðustu þremur árum einungis fimm prósent.

Átakshópur skipaður vegna bráðamóttökunnar
Átakshópur verður skipaður til að finna lausnir á brýnum vanda bráðamóttökunnar og hrinda þeim í framkvæmd. Þetta er sameiginleg niðurstaða fundar heilbrigðisráðherra, landlæknis og forstjóra Landspítalans sem haldinn var í heilbrigðisráðuneytinu í dag.