Nóbelsverðlaun

Fréttamynd

Hættan aldrei verið meiri

"Við erum í kapphlaupi við tímann," sagði Mohamed ElBaradei, yfirmaður kjarnorkueftirlits Sameinuðu þjóðanna, þegar hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Noregi í gær. ElBaradei sagði hættuna á kjarnorkuhörmungum vera meiri en nokkru sinni, nú fimmtán árum eftir lok kalda stríðsins og sextíu árum frá því kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki.

Erlent
Fréttamynd

Maístjarnan sungin afturábak

Í tilefni af því að 50 ár verða liðin frá því að Laxness hlaut Nóbelsverðlaun verður haldin viðamikil dagsskrá í Þjóðmenningarhúsinu næstkomandi laugardag. Umsjónarmaður er Viðar Eggertsson, og þar sem hann vildi ekki að hátíðarhöldin "væru eins og líkkista" fékk hann Nýhilhópinn til að ljúka dagskránni, til að minna á framtíð íslenskrar ritlistar.

Menning
Fréttamynd

Pinter fékk Nóbelsverðlaun

Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels þetta árið. Valið kom heldur á óvart og Pinter sjálfum varð víst orða vant við fréttirnar, en það ku ekki gerast oft.

Erlent
Fréttamynd

Hlutu Nóbelsverðlaun í eðlisfræði

Tveir Bandaríkjamenn og Þjóðverji hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar í ljósfræðum, sem leitt hafa til mikilla umbóta á nákvæmum tímamælingum, staðsetningarkerfum og leisertækni - og í framtíðinni má búast við að þrívíddarsjónvörp verði byggð á tækni sem rannsóknir þeirra byggja á.

Erlent
Fréttamynd

Gáfnafar kynjanna

Karlar eru gáfaðri en konur. Þetta hefur gáfaðri helmingur mannkyns svo sem alltaf vitað, en nú er komin vísindaleg staðfesting og það frá femínista. </font />

Lífið
Fréttamynd

Wangari fær nóbelsverðlaun í dag

Umhverfisverndarsinnin Wangari Maathai tekur við friðarverðlaunum Nóbels í Osló í dag. Maathai er frá Kenía og fyrsta konan frá Afríku sem hlýtur verðlaunin. Hún er forsvarsmaður hreyfingar sem kallast Græna beltið og hefur látið gróðursetja þrjátíu milljónir trjáa víðs vegar í Afríku.

Erlent
Fréttamynd

Höfundar, krítík og móralskt vald

Eitt sinn lenti ég í því að höfundur sem ég hafði fjallað um hrækti á eftir mér úti á götu. Annar sem ég gaf slæman dóm horfði árum saman á mig eins og sært dýr, en Kristmann ætlaði að láta lemja mig...

Fastir pennar
Fréttamynd

Nóbel Halldórs var umdeildur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að Halldór Laxness hafi stuðst við skáldsögu frá Mið-Evrópu þegar hann ritaði Atómstöðina. Hann hefur einnig fundið gögn um að mikil andstaða hafi verið innan sænsku akademíunnar við því að Halldóri yrðu veitt Nóbelsverðlaunin.

Innlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn fá flest verðlaun

Enn einu sinni voru Bandaríkjamenn fjölmennastir í hópi þeirra sem hlutu Nóbelsverðlaun í vísindagreinum. Evrópa hefur dregist langt aftur úr en leitar leiða til að vinna upp forskot Bandaríkjamanna. </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Önnur Nóbelsverðlaun vestur um haf

Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði falla þetta árið í hlut þriggja bandarískra vísindamanna, David J. Gross, H. David Politzer og Frank Wilczeck fyrir rannsóknir þeirra á aflinu sem bindur öreindir inni í atómkjarna.

Erlent
Fréttamynd

Kanar fengu nóbelsverðlaun

Tveir bandarískir vísindamenn hlutu Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir rannsóknir á lyktarskyni manna. Richard Axel og Linda B. Buck leituðust við að útskýra hvernig fólk skynjar lykt og hvernig skilaboð um hana berast til heilans.

Erlent
Fréttamynd

Nóbelsverðlaun fyrir fyndni

Ig-nóbelsverðlaunin voru afhent í fjórtánda skiptið síðastliðinn föstudag. Þessi nóbelsverðlaun eru veitt fyrir rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum sem tekst fyrir það fyrsta að fá fólk til að hlæja, og síðan til að hugsa.

Erlent