Fréttir
Sækir um sitt gamla starf Séra Hans Markús Hafsteinsson, sem nýverið var færður úr starfi sóknarprests í Garðakirkju og boðin staða héraðsprests í Reykjavíkurprófastdæmi norður, hefur nú sótt um sitt gamla embætti í Garðakirkju. Hans Markús vék úr þeirri stöðu fyrir skömmu eftir hatrammar deilur í sókninni. Sex aðrir prestar sækja um stöðuna. Innlent 23.10.2005 15:02
Fundað um fjárnámskröfu Lögmenn Jóns Ólafssonar og Hannesar Hólmsteins funda nú um fjárnámskröfu Jóns á hendur Hannesi í húsakynnum sýslumannsins í Reykjavík. Hannes hefur lýst því yfir að hann muni láta lögmann sinn gera þá kröfu að fjárnámskröfu á hendur sér verði vísað til héraðsdóms. Innlent 23.10.2005 15:02
Hróarskeldusvefnpokar gefnir Yfir 1.600 svefnpokar og 510 tjalddýnur, sem gestir Hróarskelduhátíðarinnar skildu eftir á tónleikasvæðinu í sumar, verða gefnir heimilislausum í Kaupmannahöfn. Erlent 23.10.2005 15:02
Írar í rafstöðvabraski hérlendis Rafstöðvar ganga nú kaupum og sölum úr sendiferðabifreiðum fimm eða sex Íra sem aka á milli byggingar- og iðnaðarsvæða og bjóða til sölu. Kvartanir og að minnsta kosti ein kæra hafa borist bæði til lögreglunnar í Hafnarfirði og Rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Innlent 23.10.2005 15:02
Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Hæstiréttur ómerkti og vísaði heim í hérað til aðalmeðferðar sýknudómi héraðsdóms yfir manni sem ákærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í fyrra. Maðurinn var sakaður um að hafa lagt til leigubílstjóra með óþekktu eggvopni, með þeim afleiðingum að bílstjórinn hlaut átján sentimetra langan skurð á hálsi. Innlent 23.10.2005 15:02
Allt stefnir í verkfall Allt virðist stefna í að til verkfalls komi hjá starfsmönnum Akranesbæjar eftir að kjarasamningur þeirra við launanefnd sveitarfélaga var kolfelldur með 75% greiddra atkvæða í gær. 235 voru á kjörskrá og tóku 175 manns þátt í kosningunni. Innlent 23.10.2005 15:02
Bort á lyfjalögum líðst ekki Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra kvaðst líta málið mjög alvarlegum augum væri það rétt hjá landlækni að menn væru að fara á svig við lyfjalög. „Það verður ekki þolað. Við höfum haft áhyggjur af þessu í ráðuneytinu um hríð sem og landlæknisembættið og lyfjastofnun." > Innlent 23.10.2005 17:31
Heimildir aukist um 16 milljarða Í frumvarpi til fjáraukalaga er lagt til að fjárheimildir ríkissjóðs verði auknar um tæpa sextán milljarða vegna ársins 2005. Þar af eru tæpir ellefu milljarðar hjá fjármálaráðuneytinu vegna fjármagnstekjukatts sem ríkissjóður greiðir og fjórir milljarðar vegna endurskoðaðrar áætlunar um afskrifaðar skattkröfur. Innlent 23.10.2005 15:02
Aðrar leiðir en innrás hugsanlegar Hollenski utanríkisráðherrann, Bernard Bot, viðurkenndi í dag að hugsanlega hefði verið hægt að leysa Íraksmálið með öðrum leiðum en að senda bandarískar hersveitir í landið. Hollensk stjórnvöld studdu innrás Bandaríkjahers. Innlent 23.10.2005 15:02
Hans Markús unir tilflutningi Hans Markús Hafsteinsson, fyrrverandi sóknarprestur í Garðasókn, hyggst una tilflutningi í nýtt embætti héraðsprests í Reykjavíkurprófastdæmi vestra. Þetta tilkynnti Sveinn Andri Sveinsson, lögfræðingur séra Hans Markúsar, síðdegis í dag eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Biskupsstofu. Innlent 23.10.2005 15:02
Átta ára brann inni Eldur kom upp í raðhúsi í Skævinge, nærri Hillerød á Sjálandi, og beið átta ára gamall drengur bana í eldsvoðanum. Erlent 23.10.2005 15:02
Bað Bandaríkjamenn um þolinmæði George Bush Bandaríkjaforseti bað Bandaríkjamenn að sýna þolinmæði varðandi stríðið í Írak og sagði stríð ekki vinnast án fórna. Forsetinn hefur sætt vaxandi gangrýni heima fyrir vegna ólgunnar í Írak og mannfalls í röðum Bandaríkjahers og mælist stuðningur við aðgerðir Bandaríkjanna í Írak nú aðeins 32 prósent samkvæmt könnun Gallup fyrir fjölmiðlana <em>CNN</em> og <em>USA Today</em>. Erlent 23.10.2005 15:02
Dýpsta höfn landsins Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vígir dýpstu höfn landsmanna á morgun. Höfnin, sem er 14,5 metra djúp og 380 metra breið, er ný álvershöfn Reyðfirðinga. Innlent 23.10.2005 15:02
Howard brýnir flokkinn gegn Brown Michael Howard, fráfarandi leiðtogi breska Íhaldsflokksins, hvatti í lokaræðu sinni á flokksþinginu í Blackpool í gær til einingar flokksmanna nú er þeir leita nýs leiðtoga. Erlent 23.10.2005 15:02
Vara við árás á jarðlest New York Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, greindi frá því í dag að hætta væri á hryðjuverkaárás á neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar á næstu dögum samkvæmt upplýsingum bandarísku alríkislögreglunnar. Bloomberg sagðist hafa vitað af ógninni í nokkra daga en hefði ekki greint almenningi frá því fyrr þar sem lögregla ynni að því að koma í veg fyrir slíka árás. Erlent 23.10.2005 15:02
Vestmannaeyjabær vill út Vestmannaeyjabær á í málaferlum til að losna út úr rekstri fyrirtækisins Skúlason ehf. sem efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit hjá í gær að beiðni bresku lögreglunnar. Innlent 23.10.2005 15:02
Hitti vafasama menn í leit að fé Eigandi fyrirtækisins Skúlason, sem gerð var húsleit hjá vegna breskrar rannsóknar á fjársvikum og peningaþvætti, segist hafa kynnst vafasömum mönnum í fjárfestaleit sinni í Bretlandi. Það sé líklega skýringin á því að fyrirtækið flækist í málið. Innlent 23.10.2005 15:02
Bóluefni verði fjöldaframleitt George Bush Bandaríkjaforseti mun hvetja lyfjaframleiðendur til þess að finna leiðir til framleiða bóluefni gegn fuglaflensu í miklu magni í ljósi þess að veikin getur orðið að heimsfaraldri. Erlent 23.10.2005 15:02
Níu fórust í sjálfsmorðsárás Níu fórust í sjálfsmorðsárás nærri olíumálaráðuneytinu í Bagdad í dag, og heimatilbún sprengja sprakk skammt frá hervagni í borginni. Ofbeldi setur mark sitt á síðustu dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá, sem fer fram á miðvikudaginn kemur. Hersveitir berjast nú af hörku gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta landsins. Erlent 23.10.2005 15:02
Slapp ómeidd úr eldsvoða Sautján ára stúlka slapp ómeidd út úr logandi kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi í gærkvöldi en mikill eldur var í íbúðinni þegar slökkvilið kom á vettvang. Allur stigagangurinn var rýmdur þar sem reykur barst um en slökkvistarf gekk vel. Innlent 23.10.2005 15:02
Nýjar tegundir risaeðlna finnast Tvær nýjar tegundir risaeðlna hafa fundist við fornleifauppgröft í Norðaustur Kína. Alþjóðlegur hópur vísindamanna greindi frá þessu í dag. Ummerki risaeðlanna eru steingervingar en þessar tvær tegundir tilheyra hópi skriðdýra, svokölluðum pterosaurs, sem voru vængjaðar eðlur sem gátu flogið. Erlent 23.10.2005 15:02
Mikið atvinnuleysi hjá ungu fólki Ungt fólk verður helst fyrir barðinu á atvinnuleysi í Evrópu. Hlutfall atvinnuleysis hjá fólki á aldrinum 15-24 ára í löndum innan Evrópusambandsins er helmingi meira en atvinnuleysi í Evrópu almennt. Erlent 23.10.2005 15:02
Remúlaði innkallað vegna örveru Bónus hefur innkallað svokallað Bónus-remúlaði vegna þess að örverutegund í vörunni er yfir viðmiðunarmörkum. Um er að ræða túbur sem hafa „best fyrir" dagsetninguna 09.01.06. Ekki er talið að remúlaðið geti verið hættulegt fólki en þó þykir ástæða til að biðja þá sem keypt hafa vöruna um að skila henni til verslana Bónuss. Innlent 23.10.2005 15:02
Kosið um 16 sameiningartillögur Kosningar um sameiningu 61 sveitarfélags hér á landi fara fram næstkomandi laugardag. Kosið er um 16 sameiningartillögur en tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið. Á kjörskrá eru 69.144. Fæstir eru á kjörskrá í Mjóafjarðarhreppi, eða 32, en flestir í Hafnarfirði, eða 15.570. Innlent 23.10.2005 15:02
Jólastemmningin hafin í Bretlandi Það er áttatíu og einn dagur til jóla og því ekki seinna vænna að hefja jólainnkaupaæðið. Sem betur fer ekki hér á landi, enn sem komið er, en á Bretlandi er jólastemmningin - ef hægt er að kalla það stemmningu - allsráðandi í verslunum. Erlent 23.10.2005 15:02
Tvær nýjar risaeðlutegundir Vísindamenn greindu frá því í gær að steingervingar af tveimur óþekktum risaeðlutegundum hefðu fundust við uppgröft í Norðaustur-Kína. Erlent 23.10.2005 15:02
Bjórblaðið þjónusta við lesendur Forsvarsmenn Blaðsins segja í leiðara í dag að sérstakt aukablað þeirra um bjór, sem brýtur væntanlega í bága við lög um áfengisauglýsingar, sé til að þjónusta lesendur. Erlendir miðlar hafi forskot á íslenska í tekjuöflun með áfengisauglýsingum og útgáfa aukablaðsins sýni líka þá hræsni sem í auglýsingabanninu felst. Ríkið sjálft á stærstu auglýsinguna í Blaðinu. Innlent 23.10.2005 15:02
Komu í veg fyrir eldsvoða Starfsmönnum Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði tókst fyrir snarræði að koma í veg fyrir eldsvoða undir kvöld í gær þegar kviknaði í stórri rafmagnstöflu í fiskverkunarhúsi, rétt í þann mund sem vinnu var lokið. Innlent 23.10.2005 15:02
Tekur við fjárnámskröfu Jóns Sýslumaðurinn í Reykjavík mun eftir hádegið í dag taka við fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor vegna skaðabóta sem Hannesi var gert að greiða Jóni í Bretlandi nýverið. Innlent 23.10.2005 15:02
ASÍ óánægt með fjárlagafrumvarpið Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórarinnar. Innlent 23.10.2005 15:02
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti