Fréttir Viðskiptahalli 11,6 milljarðar í ágúst Viðskiptahallinn við útlönd í ágústmánuði nam 11,6 milljörðum króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fluttar voru út vörur fyrirr 16,6 milljarða króna og inn fyrir 28,2 milljarða króna. Innlent 28.9.2006 09:50 Reiðir út af heimboði Erlent 28.9.2006 10:08
Viðskiptahalli 11,6 milljarðar í ágúst Viðskiptahallinn við útlönd í ágústmánuði nam 11,6 milljörðum króna samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fluttar voru út vörur fyrirr 16,6 milljarða króna og inn fyrir 28,2 milljarða króna. Innlent 28.9.2006 09:50
Ráðstefna um mikilvægi vetnistækni í Reykjavík Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra setti í dag ráðstefnu um mikilvægi vetnistækni fyrir sjálfbæra þróun. Ráðstefnan er haldin í Reykjavík. Innlent 28.9.2006 09:58
Eignatilfærsla hjá fjárfestingarfélaginu Eglu Stjórn fjárfestingarfélagsins Eglu hf., hefur ákveðið að 10,82 prósenta hlutur þess í KB banka færist beint undir hollenskt eignarhaldsfélag, Kjalar Invest BV. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:54
Vöruskipti óhagstæð um 11,6 milljarða Vöruskipti voru óhagstæð um 11,6 milljarða krónur í ágústmánuði. Þetta er 3,2 milljörðum krónum minna en á sama tíma fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru vöruskipti hins vegar neikvæð um 63,4 milljarða krónur sem er 31,2 milljörðum krónum meira en á fyrstu átta mánuðum síðasta árs. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:54
Eimskip í skipafélagsbandalag í Evrópu Eimskip hefur gengið frá kaupum á 65 prósenta hlut í finnska skipafélaginu Containerships og munu félögin tvö, ásamt litháenska skipafélaginu Kursiu Linija, sem er í eigu Eimskipa, mynda eitt stærsta flutningabandalag Evrópu í styttri siglingu. Félagið mun heita Containerships Group. Viðskipti innlent 28.9.2006 09:34
Fyrirfór sér eftir að hafa skotið gísl Gíslatökumaðurinn í skóla í Colorado í Bandaríkjunum fyrirfór sér eftir að hafa skotið stúlku sem hann hélt í gíslingu. Stúlkan, sem er nemandi í skólanum, lifði árásina af en er þó alvarlega slösuð. Erlent 27.9.2006 23:44
Kornþresking víða komin langt Kornþresking er víða langt komin að því fram kemur á fréttavef Landssambands kúabænda og er uppskera í góðu meðallagi að sögn Ingvars Björnssonar, ráðunautar hjá Búgarði. Þroski kornsins er hins vegar undir meðallagi. Innlent 27.9.2006 23:37
Einbreiðum brúm fækkað um átta á næsta ári Fækka á einbreiðum brúm á Hringveginum um átta á næsta ári samkvæmt Vegaáætlun. Einbreiðum eða einnar akgreinar brúm á Hringveginum hefur fækkað jafnt og þétt síðustu árin. Mest hefur verið fækkað um tíu brýr en það var árið 2003. Fjórar af einnar akgreinar brúnum sem hverfa á næsta ári eru í Norðurárdal í Skagafirði. Innlent 27.9.2006 23:10
Logaði í útikamri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Eiðistorgi á Seltjarnarnesi á sjöttatímanum í dag þar sem kveikt hafði verið í útikamri. Þegar komið var á staðinn logaði í ruslafötu sem troðið hafði verið ofan í innkaupaköfu og innkaupakörfunni svo troðið inn í kamarinn. Innlent 27.9.2006 22:49
Umsátri við framhaldsskóla lokið Umsátri lögreglu við framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum er lokið. Fréttavefurinn CNN greinir frá því að byssumaður, sem hélt tveimur stúlkum í gíslingu, sé látinn. Maðurinn réðst inn í skólann fyrr í dag, hóf skothríð og tók sex manns í gíslingu. Erlent 27.9.2006 22:39
Árekstur við Bústaðaveg Ökumaður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir árekstur við Bústaðaveg á fimmta tímanum í dag. Meiðsl hans eru þó ekki talin alvarleg. Innlent 27.9.2006 22:28
Aukinn viðbúnaður vegna myrkvunar Lögreglan í Reykjavík verður með aukinn viðbúnað annað kvöld þegar Reykjavíkurborg verður myrkvuð frá klukkan 22:00-22:30. Þá verður slökkt á allri götulýsingu en myrkvunin hefur þó ekki áhrif á öryggiskerfi og umferðarljós verða áfram virk. Innlent 27.9.2006 22:22
Tveir gíslar í haldi byssumanns Rýma þrufti bæði grunn- og framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum þar sem karlmaður vopnaður byssu hóf skothríð fyrr í dag. Maðurinn segist hafa sprengju meðferðis og hefur í haldi tvo gísla. Erlent 27.9.2006 20:55
Bergvin Oddsson sækist eftir 4.-5. sæti í Suðurkjördæmi Bergvin Oddsson gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi sem haldið verður 4. nóvermber næstkomandi. Bergvin sækist eftir 4.-5. sæti. Innlent 27.9.2006 20:30
Tappinn verður settur í Kárahnjúkastíflu í fyrramálið Tappinn verður settur í Kárahnjúkastíflu í fyrramálið og þá mun stærsta fljót Austurlands hætta að renna um farveg sinn, um leið og byrjað verður að safna vatni í Hálslón. Íbúar á Jökuldal segir það út í bláinn og dapurlegt að fólk skuli detta í hug að hætt verði við allt saman. Innlent 27.9.2006 20:17
Tilraun til bleikjueldis mistókst Tilraun til bleikjueldis í Klettsvík hefur mistekist og það þrátt þrátt fyrir að náttúrulegar aðstæður hafi verið eins og best verður á kosið. Fréttavefurinn Sudurland.is greinir frá þessu en þar segir að þetta sé mat þeirra sem að tilrauninni stóðu. Aðeins um fimmtungur var eftir í kvínni á síðastliðinn laugardag. Innlent 27.9.2006 19:55
Barnaskóli rýmdur í Colarado Rýma þurfti framhaldsskóla í Bailey í Colarado í Bandaríkjunum á sjöunda tímanum í kvöld eftir að tilkynning barst um skotárás inni í skólanum. Sérstök sprengisveit lögreglunnar er nú að störfum í skólanum. Ekki er vitað til þess að neinn hafi særst í árásunum. Erlent 27.9.2006 19:20
Vopnin kvödd með fánum Þjóðarhreyfingin hvetur til þess að landsmenn dragi fána að húni á sunnudag, daginn eftir að landið verður formlega herlaust, og boðar jafnframt fagnaðarhátíðina "Vopnin kvödd". Mikið hreinsunarstarf bíður Íslendinga á herstöðvarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Innlent 27.9.2006 19:16
35 ára loforð endurtekið hjá S.þ. Í ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær hét Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, því að framlög til þróunaraðstoðar yrðu þrefölduð á næstu þremur árum. Ef það gengur eftir hafa Íslendingar aðeins náð að hálfu því markmiði sem lögfest var af Alþingi árið 1971 eða fyrir þrjátíu og fimm árum. Innlent 27.9.2006 19:08
Skurðaðgerð í þyngdarleysi Franskir skurðlæknar fjarlægðu í dag æxli úr manni við afar óvenjulegar aðstæður. Aðgerðin var gerð um borð í Airbus-þotu sem með reglulegu millibili lyfti sér upp í þyngdarleysi. Erlent 27.9.2006 18:28
Ætla að funda á ný um afnám tolla Forystu Bændasamtakanna og Samfylkingunni greinir á um hvernig staðið skuli að lækkun matarverðs. Bændur hafa sagt tillögur Samfylkingarinnar ganga að landbúnaðinum dauðum en fylkingarnar funduðu í dag og stefna að fleiri fundum á næstunni. Innlent 27.9.2006 18:12
Krajisnik fékk 27 ár Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna dæmdi í dag Momcilo Krajisnik fyrrverandi þingforseta Bosníu-Serba, í 27 ára fangelsi fyrir ýmsa stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna. Erlent 27.9.2006 18:19
Hvatt til að hætta fiskneyslu Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund eru að hefja herferð þar sem Evrópubúar eru hvattir til að borða minni fisk, í einhvers konar mannúðarskyni. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir mjög alvarlegt að samtökin geri þetta. Innlent 27.9.2006 18:00
Hár gsm kostnaður á Íslandi GSM símakostnaður Íslendinga hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur lækkað á Norðurlöndunum. Póst- og fjarskiptastofnunin segir fákeppni einkenna íslenska markaðinn og bindur vonir við að fleiri fyrirtæki komi inn á markaðinn. Innlent 27.9.2006 17:56
Útgáfa krónubréfa heldur áfram Deutsche bank gaf í dag út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir um tvo milljarðar króna. Bréfin eru gefin út til eins árs. Innlent 27.9.2006 18:16
Sýnt frá fyllingu Hálslóns við Kárahnjúkastíflu NFS verður með beinar útsendingar frá Kárahnjúkum á Stöð 2 og visir.is á morgun. Stefnt er að því að tappinn verði settur í Hálslón og lokað fyrir rennsli Jöklu við Kárahnjúka á milli kl 9 og 10 í fyrramálið. Innlent 27.9.2006 17:37
Gunnar Axel sækist eftir 4.-5. sæti í Kraganum, Gunnar Axel Axelsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember næstkomandi. Þar sækist hann eftir eftir stuðningi í 4.-5. sæti. Innlent 27.9.2006 17:32
Máli dagföður vísað frá Mannréttindadómstól Mannréttindadómstóllinn í Strassborg hefur vísað frá máli íslensks dagföður sem dæmdur var fyrir hrista níu mánaða gamlan dreng með þeim afleiðingum að hann lést. Innlent 27.9.2006 17:28
Bjóða nýja sérhæfða þjónustu fyrir aldraða Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra hleypti í dag af stokkunum nýrri sérhæfðri heimaþjónusta fyrir veika aldraða. Um er að ræða samstarfsverkefni milli Landspítala - háskólasjúkrahúss og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 27.9.2006 17:15