Engar ábendingar um dvalarstað fjölskyldunnar Formleg leit er enn ekki hafin að Khedr-fjölskyldunni sem stóð til að vísa úr landi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra er verið að meta næstu skref. Yfirvöld vita enn ekki hvar þau eru niðurkomin og ekki hafa borist ábendingar um dvalarstað þeirra. 17.9.2020 10:53
Aðalsteinn endurvekur vöffluhefðina Vöffluilmur var í Karphúsinu í dag í fyrsta skipti í langan tíma. Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari stóð vaktina og bakaði vöfflur í tilefni þess að samninganefndir Landssambands lögreglumanna og ríkissins skrifuðu undir kjarasamninga eftir langar viðræður. 16.9.2020 21:00
Vill klára viðræður áður en samningar renna út Vonir standa til þess að fækka megi fundum í kjaraviðræðum, stytta þær og gera skilvirkari með skýrslum kjaratölfræðinefndar. Í þeim má finna heildstæða samantekt á gildandi kjarasamningum, síðustu launabreytingum og hvaða áhrif þær hafa haft á mismunandi hópa. Atriði sem jafnan hafa verið deilumál áður en eiginlegar viðræður hefjast. 16.9.2020 20:30
Átján látnir eftir flugslysið í Indlandi Hið minnsta átján eru látnir og um þrjátíu alvarlega slasaðir eftir flugslysið í Kerala-héraði í suðurhluta Indlands í gær. 8.8.2020 10:45
Öll áhersla lögð á að skólahald verði með hefðbundnum hætti Öll áhersla er lögð á að hefðbundið skólahald hefjist síðar í mánuðinum að sögn menntamálaráðherra. Ráðherra fundar með sóttvarnaryfirvöldum vegna málsins á morgun. 5.8.2020 19:01
Fjöldi sýna yfir afkastagetu Einungis einn af þeim níu sem greindust með kórónuveiruna hér innanlands í gær var í sóttkví. Sóttvarnarlæknir segir líklegt að Ísland muni lenda á rauðum lista annarra þjóða. Í kvöld eða á morgun skilar hann tillögum til heilbrigðisráðherra varðandi skimun á landamærum. 5.8.2020 18:30
Góðs viti að smitum fjölgi ekki hraðar Yfirlæknir segir góðs viti að smitum fjölgi ekki hraðar en það skýrist á næstu dögum hvort gripið hafi verið til aðgerða nægilega snemma til að hamla stórri bylgju. 5.8.2020 13:31
Eitt til tvö rafhlaupahjólaslys á hverjum degi á bráðamóttöku Daglega leita einn til tveir á bráðamóttökuna eftir slys á rafmagnshlaupahjóli. Þar af sumir með beinbrot eða höfuðáverka en áverkar eru þó oftast minniháttar. Innflutningur á hlaupahjólum hefur stóraukist milli ára. 8.7.2020 19:30
Þrjú innanlandssmit til viðbótar greindust eftir hádegi Fólkið hefur verið í samskiptum við smitaðan einstakling hér á landi á síðustu vikum og er því um að ræða þrjú innanlandssmit til viðbótar. 2.7.2020 17:31
Ungir karlmenn sem nauðga vinkonum sínum stærsti gerendahópurinn Ungir karlmenn sem nauðga vinkonum sínum er stærsti gerendahópurinn hjá Stígamótum. Þeir leita sér sífellt oftar hjálpar hjá Stígamótum eftir að hafa brotið af sér og telur verkefnastýra að skoða eigi þörfina á sérstöku úrræði fyrir þá. 1.7.2020 20:00