„Felldi bara tár, trúði varla því sem ég var að heyra“ Franska knattspyrnufélagið Lille lét sig ekki nægja að kaupa Hákon Arnar Haraldsson heldur fengu þeir til sín yngri bróðurinn frá ÍA, Hauk Andra. Haukur er aðeins 17 ára og segist hafa fellt tár þegar mamma hans tilkynnti honum að hann væri á leiðinni út í atvinnumennskuna, til Lille. 23.7.2023 11:30
„Hefði getað verið áfram úti en heillaði rosa mikið að koma hingað“ Aron Elís Þrándarson er loks kominn með leikheimild og gæti spilað með Víkingum þegar þeir heimsækja KR í Bestu deild karla í dag. Hann er ánægður með að vera kominn aftur í uppeldisfélagið en hefði getað verið áfram í atvinnumennsku. 23.7.2023 11:01
Hefði þurft Íslandsmet til að komast í undanúrslit Anton Sveinn McKee endaði í 21. sæti af 70 sundmönnum í 100 metra bringusundi á HM í sundi í 50 metra laug sem fer nú fram í Furuoka í Japan. Hann hefði þurft að synda á nýju Íslandsmeti til að komast í undanúrslit. 23.7.2023 10:16
Dramatík hjá Svíum | Holland með mikilvægan sigur á Portúgal Tveimur af þremur leikjum dagsins á HM kvenna í knattspyrnu er nú lokið. Svíþjóð skoraði dramatískt sigurmark í uppbótartíma gegn Suður-Afríku og Holland vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á Portúgal. 23.7.2023 09:40
Heimsmeistarinn fyrrverandi til liðs við Hákon Arnar hjá Lille Franski varnarmaðurinn Samuel Umtiti er genginn í raðir Lille í heimalandinu. Hann byrjaði úrslitaleik HM 2018 þegar Frakkland varð heimsmeistari en var kominn til Lecce á Ítalíu eftir að hafa verið út í kuldanum hjá Barcelona. 22.7.2023 16:30
Mark Alfreðs dugði ekki gegn meisturunum en mörkin tvö hefðu gert það Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Lyngby í 1-2 tapi gegn Danmerkurmeisturum FCK í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Alfreð skoraði einnig mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. 22.7.2023 16:04
Sjáðu markið: Sveinn Aron á skotskónum þegar Elfsborg jók forystu sína Elfsborg jók forystu sína í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 4-0 útisigri á Djurgården. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fjórða mark Elfsborg og Hákon Rafn Valdimarsson stóð vaktina milli stanganna. 22.7.2023 15:16
Bayern vill þrjá frá Englandi Bayern München hefur gert vel á leikmannamarkaðnum í sumar en ljóst er að félagið er hvergi nærri hætt. Það virðist sem Þýskalandsmeistararnir mæti með mikið breytt lið til leiks en Thomas Tuchel, þjálfari, vill þrjá leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni til viðbótar. 22.7.2023 14:45
Engin vítaspyrna þegar Danmörk lagði Kína Danmörk vann Kína 1-0 á HM kvenna í knattspyrnu. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins en um var að ræða fyrsta leik mótsins þar sem ekki var dæmd vítaspyrnu. 22.7.2023 14:00
Þjálfari Hollands drullar yfir æfingaaðstöðu liðsins Andries Jonker, þjálfari hollenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er allt annað en sáttur með æfingaaðstöðu liðsins í Nýja-Sjálandi þar sem heimsmeistaramótið fer nú fram. 22.7.2023 13:31
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent