Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Tilkynnt var um árekstur þar sem ökumaður eins bílsins flúði vettvang og brunaði burt. Hann hafði þó ekki erindi sem erfiði með þessu uppátæki sínu því númeraplatan hans losnaði við áreksturinn og varð eftir á vettvangi. 9.10.2026 18:28
Seldu óvart hjól viðskiptavinar Í miklu annríki í dag í Nytjamarkaðinum Selfossi var reiðhjól viðskiptavinar selt öðrum viðskiptavini fyrir slysni. Nytjamarkaðurinn leitar nú logandi ljósi að kaupandanum svo hægt sé að leysa úr málinu. 9.10.2026 18:04
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Hún var 83 ára gömul. 9.10.2026 17:53
Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim. 9.10.2026 17:41
„Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Formaður grænlensku landstjórnarinnar segir það svekkjandi að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kúlusúk á Austur-Grænlandi yfir vetrartímann enda hafi flugleiðin reynst vel upp á ferðamennsku og fraktflutninga á ferskvöru. Hann segir að landstjórnin leiti nú leiða til þess að tryggja flug að svæðinu á ný. 7.10.2026 21:02
Þétta samstarfið í útnorðri Ísland, Færeyjar og Grænland hyggjast efla viðskiptasamstarf sín á milli en leiðtogar vestnorrænu landanna sátu í dag hringborð með fjárfestum á Norður-Atlantshafi. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir landanna hittast gagngert í einu landanna til að funda. 7.10.2026 18:01
Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta. 27.9.2026 16:19
Stutt geti verið í kosningar Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins telur að ríkisstjórnin eigi ekki langt eftir og að stutt geti verið í alþingiskosningar. 27.9.2026 15:37
Eldur á Hellu Eldur kviknaði á geymslusvæði á Hellu. Hann kom upp í plaströrum sem lágu á jörðinni við gámaþyrpingu. Eldsupptök eru ókunn. 27.9.2026 15:21
Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti. 27.9.2026 12:48