Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur trúlegra að peningastefnunefnd hækki stýrivexti í fyrramálið en ekki. Hann útilokar ekki að vextir verði haldnir óbreyttir en segir það geta bitið peningastefnunefndina í skottið að taka ekki í taumana fyrr en seinna. 17.3.2026 21:10
Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Unnur Lilja Hermannsdóttir, annar tveggja skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að henni þurfi að víkja úr starfi vegna fjölskyldutengsla. 17.3.2026 18:54
Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti Grænlands hafa sagt sig úr flokki sínum Siumut í mótmælaskyni eftir að formaður flokksins ákvað að ganga úr ríkisstjórnarsamstarfinu. 17.3.2026 18:33
Ekið á skólarútu Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. 17.3.2026 17:36
Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn Fimmtudaginn 26. mars ganga frændur okkar í Færeyjum til þingkosninga sem gætu reynst örlagaríkar eins og svo margar. Þinginu var slitið í óþökk stærsta hluta ríkisstjórnarinnar og með svikabragði að mati sumra. Það bætir einnig í dramatíkina að líklegasta lögmannsefnið samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er bróðursonur sitjandi lögmanns. 15.3.2026 17:01
Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Opnað hefur verið fyrir umferð um Hellisheiði en þar urðu tvö umferðarslys fyrr í dag. Veður er slæmt á heiðinni og skyggni samasem ekkert. Þrír voru fluttir á slysadeild til skoðunar eftir árekstrana. 15.3.2026 16:26
Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafa farið með rangfærslur í fjölmiðlum og að staðan sem upp er kominn sé vegna ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið í sjálf í rekstri sínum. 15.3.2026 15:07
Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stærðarinnar alda skall á bílastæðið við Reynisfjöru og skolaði grjóti á land. Bílastæðinu hefur verið lokað vegna flóðsins og gestur sagði hnullunga hafa skollið á bílum. 15.3.2026 14:38
Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur. 15.3.2026 13:58
„Við erum ekki hrædd“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft. 15.3.2026 13:09