Yfirmaður siðaskrifstofu Bandaríkjastjórnar segir af sér Eftir mánaðalöng átök við Donald Trump og Hvíta húsið sagði yfirmaður siðanefndar Bandaríkjastjórnar af sér í dag. Hann telur sig ekki geta náð frekari árangri við núverandi aðstæður. 6.7.2017 17:25
Stuðningsmenn Trump ósáttir við sjálfstæðisyfirlýsinguna Twitter-notendur brugðist reiðir við því sem þeir töldu áróður gegn Donald Trump forseta í tístum frá opinberu útvarpsstöðinni NPR á þjóðhátíðardaginn. Tístin komu beint úr sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna frá 1776. 5.7.2017 23:34
Útsýnisflug yfir stærsta storm sólkerfisins Mannkynið á von á fyrstu nærmyndunum af Stóra rauða blettinum, helst kennileiti reikistjörnunnar Júpíters, í næstu viku þegar geimfarið Juno flýgur beint yfir þennan stærsta storm sólkerfisins. 5.7.2017 22:40
Bandaríkjamenn hóta Norður-Kóreu hernaðaraðgerðum Stjórnvöld í Washington-borg eru tilbúin að beita hernaðarmætti sínum gegn Norður-Kóreu vegna eldflaugatilrauna útlagaríkisins. Á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í kvöld útilokuðu Rússar hernaðaraðgerðir gegn landinu. 5.7.2017 22:00
Hitabylgjan í Evrópu tífalt líklegri vegna loftslagsbreytinga Hnattræn hlýnun gerir hitabylgjur í Portúgal þar sem tugir létust í skógareldum í síðasta mánuði tífalt líklegri en ella. Vísindamenn segja að hitabylgjan í vestanverðri Evrópu hafi borið sterk merki loftslagsbreytinga. 5.7.2017 21:20
Stjórnarsinnar börðu þingmenn í Venesúela Múgur sem styður ríkisstjórn Nicolasar Maudor forseta réðst inn í þinghúsið í Caracas og særði þingmenn og blaðamenn sem þar voru inni í dag. 5.7.2017 19:49
Fimm og tíu þúsund kallarnir er 87% alls reiðufjár Langstærstur hluti reiðufjár á Íslandi er í formi fimm og tíu þúsund króna seðla. Þó að notkun reiðufjár hafi aukist hér á landi er hún engu að síður fimmfalt meiri í evrulöndum. 5.7.2017 18:41
Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð Utanríkisráðherra Bretlands segir best að fela sérfræðingum og dómstólum að taka ákvarðanir um örlög dauðvona drengs. Sjúkrahús Páfagarðs hafði boðist til að taka við drengnum og halda meðferð áfram. 5.7.2017 18:02
Byssumaðurinn á Akureyri metinn ósakhæfur og sýknaður Héraðsdómur Norðurlands eystri mat mann sem skaut á íbúð nágrannakonu sinnar á Akureyri í fyrra ósakhæfan og sýknaði hann. Lögmaður hans segir hann undir reglulegu eftirliti lækna. 5.7.2017 17:28
Varað við hvassviðri á Suðurlandi annað kvöld Veðurstofan varar við allhvassri austanátt syðst á landinu seint annað kvöld og fram á fimmtudagsmorgun. Slíkur vindur geti verið varasamur fyrir farartæki sem eru viðkvæm fyrir vindi eins og húsbíla og hjólhýsi. Hiti gæti náð 17 stigum í innsveitum norðaustantil á morgun. 4.7.2017 23:07