Tinder ætlar að veita bakgrunnsupplýsingar um notendur Notendur stefnumótasnjallforritsins Tinder í Bandaríkjunum geta brátt nálgast opinberar upplýsingar um sakaferil og ofbeldi annarra notenda sem þeir gætu farið á stefnumót með. Til stendur að þjónustan verði tekin upp á fleiri stefnumótaforritum fyrirtækisins í fyllingu tímans. 16.3.2021 08:42
Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna. 15.3.2021 07:00
Telja að Baldur gæti siglt á miðvikudag Breiðafjarðarferjan Baldur gæti hafið siglingar á miðvikudag gangi allt að óskum með nýja túrbínu sem er væntanleg til landsins seint í kvöld. 14.3.2021 14:56
Samningur við Jón Steinar „fullalmennur“ Aldrei stóð til að Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, ynni tillögur um meðferð kynferðisbrotamála þrátt fyrir að hann stæði sjálfur í þeirri meiningu, að sögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Samningur um verkefnið hafi aftur á móti verið „fullalmennt orðaður“. 14.3.2021 14:28
Boðar byltingu gegn herforingjastjórninni í Búrma Leiðtogi ríkisstjórnar Búrma sem herinn steypti af stóli boðar stuðning við byltingu gegn herforingjastjórninni sem hrifsaði völdin í síðasta mánuði. Hermenn drápu að minnsta kosti fimm manns sem tóku þátt í mótmælum í dag. 14.3.2021 12:20
Norðlendingar megi reikna með 10-15 stiga hita í vikunni Miklum hitabreytingum er spáð með mildu lofti úr suðri sem kemur yfir landið í vikunni. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að norðlendingar meigi reikna með allt að tíu til fimmtán stiga hita á fimmtudag. 14.3.2021 10:50
Brotist inn til Hinriks og Markle í tvígang Karlmaður á fertugsaldri hefur verið kærður fyrir að brjótast inn í setur Hinriks Bretaprins og Meghan Markle, eiginkonu hans, í Kaliforníu yfir jólin. 14.3.2021 10:02
Rafmagnslaust var í hluta Hafnarfjarðar Ekkert rafmagn hefur verið í Arnarhrauni og Smyrlahrauni í Hafnarfirði frá því klukkan hálf sjö í morgun. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS Veitna segist vonast til að komist verði fyrir bilunina fyrir hádegið. 14.3.2021 09:23
Segja aðgerðir lögreglu á minningarsamkomu hafa verið nauðsynlegar Aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar í London segir að aðgerðir lögreglu gegn konum sem söfnuðust saman til að minnast ungrar konu sem var myrt í borginni hafi verið nauðsynlegar. Borgarstjóri London og innanríkisráðherra Bretlands eru á meðal þeirra sem hafa krafið lögregluna skýringa á framgöngu hennar gegn konunum. 14.3.2021 08:40
Töluvert um ölvun í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkrum fjölda útkalla vegna ölvaðs fólks í gærkvöldi og nótt. Tilkynnt var um tvær líkamsárásir í miðbænum. 14.3.2021 07:58