Telja um 150.000 hermenn við landamæri Úkraínu Rússar hafa safnað saman um 150.000 hermönnum við landamæri Úkraínu og á Krímskaga, að sögn utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Hann telur hættuna á frekari stigmögnun átaka í Austur-Úkraínu augljósa. 19.4.2021 16:25
Fyrsti leiðtogi kúbverska Kommúnistaflokksins utan Castro-ættarinnar Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, verður næsti leiðtogi kommúnistaflokks landsins. Hann tekur við af Raúl Castro og verður þannig fyrsti leiðtogi flokksins sem ber ekki eftirnafnið Castro. 19.4.2021 15:40
Útgöngubann í Nýju-Delí framlengt um viku Milljónum íbúa Nýju-Delí á Indlandi er gert að halda sig heima við í viku til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar sem breiðist nú um landið eins og eldur í sinu. Allar verslanir og verksmiðjur þurfa jafnframt að hætta starfsemi fyrir utan þær sem veita nauðsynlega þjónustu eins og matvöruverslanir. 19.4.2021 13:52
Berjast við gróðureld á Borðfjalli Á þriðja hundrað slökkviliðsmanna frá Höfðaborg glíma nú við mikinn gróðureld sem brennur í hlíðum Borðfjalls í Suður-Afríku. Íbúar í hverfi í hlíðum fjallsins voru látnir yfirgefa heimili sín í varúðarskyni. Grunaður brennuvargur er í haldi lögreglu vegna eldsins sem kviknaði í gærmorgun. 19.4.2021 12:28
Litlu Marsþyrlunni tókst ætlunarverkið Fyrsta tilraunaflug þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars gekk að óskum í morgun. Leiðangursstjórn bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA bárust fyrstu gögnin sem staðfestu að þyrlan hefði flogið og fyrstu myndirnar af tilrauninni. 19.4.2021 11:15
Navalní fluttur á sjúkradeild í öðru fangelsi Rússnesk yfirvöld segja að heilsa Alexei Navalní, eins helsta stjórnarandstæðings landsins, sé „ásættanleg“ eftir að hann var fluttur á fangelsissjúkrahús. Navalní er í hungurverkfalli vegna ófullnægjandi læknisaðstoðar og þjáist af miklum bak- og fótverkjum sem læknar telja ógna lífi hans. 19.4.2021 10:33
Þyrlan á Mars: Fyrsta tilraunaflugferðin í morgun Þyrilvængjan Ingenuity átti að reyna að fljúga í fyrsta skipti á reikistjörnunni Mars nú í morgun. Búist er við að upplýsingar um hvernig til tókst berist til jarðar nú fyrir hádegið. Hægt verður að fylgjast með því í beinni útsendingu á Vísi. 19.4.2021 09:26
Lögreglumaðurinn ber ekki vitni um dauða Floyd Málsvörn Dereks Chauvin, fyrrverandi lögreglumannsins sem er ákærður fyrir að valda dauða Georges Floyd í Minneapolis í fyrra, lauk í dag án þess að hann bæri sjálfur vitni. Hann ákvað að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til þess að bendla sjálfan sig ekki við glæp með því að bera vitni. 15.4.2021 15:21
Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni. 15.4.2021 14:00
Danir gætu gefið fátækari ríkjum AstraZeneca-bóluefni Dönsk stjórnvöld kanna nú möguleikann á því að deila skömmtum af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem þau hafa ákveðið að hætta alfarið að nota með þróunarríkjum. Notkunin í Danmörku var stöðvuð vegna fátíðra tilfella blóðtappa. 15.4.2021 12:29