Pólverjar kvörtuðu til EHF vegna ólöglegs jöfnunarmarks Rússa Pólverjar hafa sent inn formlega kvörtun til Handknattleikssambands Evrópu (EHF) vegna jöfnunarmarks Rússa í leik liðanna í milliriðli II á EM í gær. 24.1.2022 12:30
Tveir Þjóðverjar til viðbótar smitaðir Enn syrtir í álinn hjá Alfreð Gíslasyni og þýska karlalandsliðinu í handbolta. Tveir leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna í morgun. 24.1.2022 09:28
Umfjöllun: Ísland - Frakkland 29-21 | Verðlaun í boði eftir einn merkasta sigur í sögu þjóðar Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann einn sinn fræknasta sigur í sögunni, þrátt fyrir mikil forföll, þegar liðið vann Ólympíumeistara Frakklands í kvöld, 21-29. 22.1.2022 20:25
Spilaði sárþjáð þrátt fyrir varnaðarorð þjálfara sinna Emma Raducanu féll úr leik í 2. umferð Opna ástralska meistaramótsins eftir tap fyrir Dönku Kovinic. Nokkrir í þjálfara- og starfsliði Raducanus vildu að hún drægi sig úr leik vegna blaðra sem hún var með á höndunum. 21.1.2022 16:31
Hetja Dana: Þurftum að grafa upp myndbönd af Íslendingunum Kevin Møller átti frábæran leik þegar Danmörk sigraði Ísland, 28-24, í milliriðli I á EM í handbolta í gær. Hann segir að undirbúningurinn fyrir leikinn hafi riðlast eftir að lykilmenn íslenska liðsins heltust úr lestinni, hver á fætur öðrum. 21.1.2022 15:01
Björgvin Páll ósáttur: „Þetta er EM til skammar“ Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, vandar mótshöldurum á EM ekki kveðjurnar í færslu á Twitter. 21.1.2022 13:26
Rifjuðu upp fautabrögð: Setti fingurinn þangað sem sólin skín ekki Hinar dökku hliðar handboltans voru meðal þess sem var til umræðu í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar. Þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson rifjuðu upp ansi vafasamt bragð sem einn mótherji þeirra greip til. 21.1.2022 09:59
EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar: Mjög raunhæft að mótið verði flautað af Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson taka undir gagnrýni Guðmundar Guðmundssonar og leikmanna íslenska landsliðsins á sóttvarnir á EM í handbolta og segja aðstæður óviðunandi. 21.1.2022 09:01
Sagði Alexander-Arnold stórkostlegan og líkti honum við Beckham Paul Merson, sparkspekingur á Sky Sports, jós Trent Alexander-Arnold lofi eftir 0-2 sigur Liverpool á Arsenal og líkti honum við David Beckham. 21.1.2022 08:00
Voru ekki með fjóra bestu mennina sína en unnu samt Golden State Verulega vængbrotið lið Indiana Pacers vann óvæntan sigur á Golden State Warriors, 117-121, eftir framlengingu í NBA-deildinni í nótt. 21.1.2022 07:31