Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Óslegið gras, óklipptur gróður, ósópuð stétt og ljós sem aldrei kvikna geta gefið til kynna að hús standi autt. Lögregla hvetur íbúa miðborgarinnar til að láta hús líta út fyrir að vera í notkun þegar þeir fara í burtu. 29.7.2026 13:34
„Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Níels Hafsteinsson veitingamaður segir álagningu fínni veitingastaða hér á landi mun lægri en víða erlendis. Laun og opinber gjöld éti upp tekjurnar og íslenskir veitingamenn hafi verið of tregir til að hækka verð. Með sömu álagningu og á Tenerife myndi húsbjórinn á Rauða ljóninu kosta 3.950 krónur. 26.7.2026 14:07
Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Í fréttum okkar í kvöld ræðum við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hvers vegna hvorki hún né ráðuneytið gerðu fyrr athugasemd við frétt þar sem sagt var að hún hefði rætt við Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands. 23.7.2026 18:05
Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Dóttir konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar segir frávísun málsins í héraðsdómi mikil vonbrigði. Hún bindur vonir við að niðurstöðunni verði snúið við í Landsrétti og segir það verða að hafa afleiðingar að bana fólki. Við ræðum við hana og Hafstein Dan Kristjánsson lagaprófessor um málið í fréttum okkar á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. 22.7.2026 18:03
Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Þrjú spænsk herskip eru við Reykjavík vegna eftirlits- og viðbragðsverkefnis NATO á Norður-Atlantshafi. Tvö kanadísk herskip eru á leið til landsins og fyrirhuguð er sameiginleg æfing í vikunni þar sem varnir gegn árásum dróna verða æfðar. 21.7.2026 21:00
Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og er stærsti flokkurinn í könnunum fyrirtækisins í fyrsta sinn í hálft annað ár. Samfylkingin mælist skammt á eftir með 24,4 prósent. 21.7.2026 18:30
Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Mikil tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokkanna. Greint verður frá niðurstöðunum í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis. 21.7.2026 18:00
Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun. 17.7.2026 18:33
„Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi. 16.7.2026 13:21
Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum Endalok hins svokallaða hryðjuverkamáls verða til umræðu í kvöldfréttum. Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki sýknudómi Landsréttar til Hæstaréttar. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi í málinu, segir von á svimandi hárri skaðabótakröfu frá mönnunum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Landsréttur taldi ummæli þeirra hatursfull og ógeðfelld en ekki sannað að ásetningur hefði búið að baki þeim. 10.7.2026 18:02