Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Hvenær hættir hlaðvarp að vera bara hlaðvarp og verður fjölmiðill? Hvenær er maður orðinn eitthvað meira en bara manneskja með hljóðnema, sterkar skoðanir og fasta útgáfu? Og hver á eiginlega að draga þá línu? 8.4.2026 07:03
Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir ekkert óvænt við að óánægja með ríkisstjórnina mælist nú í fyrsta sinn meiri en ánægja frá því hún var mynduð. Hann segir slíka þróun hafa einkennt flestar ríkisstjórnir frá hruni, þó núverandi stjórn hafi að hans mati haldið velli betur en margar aðrar á fyrsta einu og hálfa ári sínu. 7.4.2026 15:43
Furðubandið sem tryllti netið Það hefur verið erfitt að komast hjá Angine de Poitrine á netinu undanfarið. Myndband af sveitinni í KEXP-upptöku hefur gengið manna á milli, áhorfið hlaupið á milljónum og sveitin orðin að einhvers konar fyrirbæri. 7.4.2026 14:16
Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Ráðast þarf í breytingar á íslenska lífeyriskerfinu til að skapa varanlegar forsendur fyrir lægri vöxtum á íbúðalánum, að mati Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Í aðsendri grein á Innherja heldur hann því fram að núverandi fyrirkomulag lífeyriskerfisins, þar sem verðtrygging og föst raunávöxtunarforsenda séu í lykilhlutverki, haldi uppi hærra vaxtastigi en ella og bitni sérstaklega á ungu fólki á húsnæðismarkaði. 1.4.2026 13:26
Boða skattheimtu á fjármálafyrirtæki án útfærslu Ríkisstjórnin stefnir að því að afla viðbótarskatttekna frá fjármálafyrirtækjum á gildistíma fjármálaáætlunar, en fjármála- og efnahagsráðuneytið getur hvorki sagt til um hvernig það verður gert né hversu miklum fjármunum er ætlað að skila í ríkissjóð. 1.4.2026 11:29
Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Sjálfstæðisflokkurinn boðar 140 milljarða króna skattalækkanir, 160 milljarða króna hagræðingu í ríkisrekstri og sölu ríkiseigna fyrir meira en 680 milljarða króna samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í dag. Tillögunum er ætlað að auka ráðstöfunartekjur heimilanna, bæta rekstrarskilyrði atvinnulífsins og lækka skuldir ríkisins. 31.3.2026 14:10
Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði Þremur erlendum ríkisborgurum á tvítugsaldri hefur verið vísað úr landi eftir að þeir voru handteknir í miðborg Reykjavíkur eftir hádegi í gær grunaðir um þjófnað. 31.3.2026 12:38
Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Vefur undir nafninu Yelo Air hefur vakið athygli innan flugbransans og kallað fram spurningar um hvort nýtt íslenskt flugfélag sé í burðarliðnum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu liggja þó hvorki fyrir umsóknir hjá Samgöngustofu um flugrekstrarleyfi né hjá Ferðamálastofu um ferðaskrifstofuleyfi vegna verkefnisins. 31.3.2026 11:04
Páskarnir líta þokkalega út þrátt fyrir kulda Páskaveðrið lítur út fyrir að ætla að sleppa þokkalega, þótt enn sé nokkur óvissa um seinni hluta helgarinnar. Samkvæmt veðurfræðingi eru engin meiriháttar óveður í kortunum, en skírdagur gæti orðið leiðinlegur sunnanlands og þar má búast við að færð verði ekki alls staðar góð. 30.3.2026 15:17
Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Jakob Birgisson er hættur sem sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Þordís Valsdóttir, upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins, tekur við af honum. 30.3.2026 12:03