Kaldvík fær enn frekari frest Lánveitendur sjókvíeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu enn frekar frest tímabundinnar undanþágu félagsins frá lánaskilmálum. Stóð til að frestur rynni út í dag en hefur hann verið framlengdur til miðvikudags. 26.10.2026 21:31
Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Tveir kaþólskir biskupar harma heimsókn sína í Hvíta húsið til Bandaríkjaforseta eftir að myndband af bænastund þeirra fór í dreifingu. Heimsóknin hafi ekki verið til stuðnings forsetanum né hans stefnu og saka þeir stjórn hans um að nýta sér heimsóknina í pólitískum tilgangi í aðdraganda þingkosninga. 26.10.2026 19:59
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Leikarinn Walter Koenig er látinn 90 ára að aldri. Hann er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem hinn rússneski liðsforingi Pavel Chekov í vísindarskáldskaparheimi Star Trek. 26.10.2026 18:58
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls. 26.10.2026 18:16
Chris Brown á skilorði Bandaríski söngvarinn Chris Brown hefur verið dæmdur til átta mánaða skilorðsbundins fangelsisdóms fyrir að slá mann með tekílaflösku í höfuðið á næturklúbbi í London árið 2023. 26.10.2026 15:49
Lægðin fyrr á ferðinni Allt lítur út fyrir að lægðin sem hefur verið sýnileg í langtímaspám komi fyrr til landsins en fyrstu spár reiknuðu með að sögn veðurfræðings. Feykihvasst verði á fimmtudag með suðaustan- eða austanátt gangi spár eftir. 25.10.2026 15:13
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Skíðaáhugafólk er eflaust farið að hlakka til vetursins í fjallinu líkt og starfsmenn Bláfjalla. Rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir stefnt á að opna Bláfjöll fyrir jól en enn hefur ekki fryst nægilega til að hefja snjóframleiðslu. 25.10.2026 13:41
Serbar ganga til skyndikosninga Serbar ganga að kjörborðinu í dag eftir að fyrrverandi forseti Serbíu, Aleksandar Vucic, rauf þing í september síðastliðnum og boðaði til skyndikosninga eftir mikinn styr síðastliðin ár. Hann hafði setið ýmist sem forseti eða forsætisráðherra Serbíu í tólf ár. 25.10.2026 12:06
Baráttan um Brasilíu Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og vinstrimannsins Lula da Silva og frambjóðanda hægrimanna og öldungadeildarþingmannsins Flávio Bolsonaro. 25.10.2026 09:56
Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. 25.10.2026 09:32