Missti stjórn á bílnum og endaði uppi á hól Um klukkan 17 varð umferðaróhapp á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar í Reykjavík. Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bílnum og keyrði út af veginum og upp á hól. 10.6.2023 17:39
Alvarlegt bílslys á Suðurlandsvegi Alvarlegt bílslys varð á fimmta tímanum í dag, á Suðurlandsvegi milli Hveragerðis og Selfoss. 10.6.2023 17:13
Sekt Arion banka vegna innherjaupplýsinga stendur Landsréttur hefur staðfest sýknu Seðlabanka Íslands og íslenska ríkisins í máli sem Arion banki höfðaði til þess að fá 88 milljóna króna stjórnvaldssekt hnekkt. Fjármálaeftirlit Seðlabankans lagði sektina á bankann vegna brots á reglum um innherjaupplýsingar. 9.6.2023 22:02
Allra augu á boðuðum ráðherrakapal: „Ég hef ekki hugmynd um það“ Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa hugmynd um það hvenær hún tekur við embætti dómsmálaráðherra, sem henni var lofað í kjölfar myndunar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. 9.6.2023 21:31
Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu fer fram í veislusal Aðalmeðferð í Bankastræti Club-málinu svokallaða mun fara fram í veislusal í veitingahúsinu Gullhömrum í Grafarholti í Reykjavík. Sakborningar í málinu eru á þriðja tug og því er ekki hægt að halda aðalmeðferði í dómshúsinu að Lækjartorgi. 9.6.2023 20:27
Boris Johnson segir af sér Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt af sér þingmennsku. 9.6.2023 19:22
Hafa virkjað eitt hundrað 5G senda Fjarskiptafyrirtækið Vodafone hefur virkjað 5G þjónustu á eitt hundrað sendum um landið, sem er hluti af verkefninu 5G allan hringinn, sem hófst haustið 2020. 9.6.2023 19:01
Fernando Torres hámaði í sig súpu í Friðheimum Knattspyrnugoðsögnin Fernando Torres er á ferð um landið. Liverpoolmaður sem dýrkar hann og dáir hitti kappann í dag en beið með að nálgast hann þangað til hann var búinn að borða. 9.6.2023 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 9.6.2023 18:00
Borgari elti uppi stút á stolnum bíl Í dag barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um mann í annarlegu ástandi ganga á milli bíla og reyna að komast inn í þá. Svo fór að hann komst inn í bíl einn og ók af stað, þrátt fyrir ástand sitt. Sá sem tilkynnti elti manninn þar til lögregla náði að stöðva för hans. 9.6.2023 17:34