
Þættir Sjávarútvegsskólans um heimsmarkmið fjórtán sýndir á Hringbraut
Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna.
Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna.
Lögmaður á vegum Samherja sendi bréf til Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þar sem þess var óskað að hún útskýrði nákvæmlega hvað hún átti við þegar hún sagði á þingi að fyrirtækið hefði gengið of langt.
Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður hefur ásamt fjölskyldu sinni fjárfest í glænýjum bát, Huldu GK 17, sem smíðuð var í Hafnarfirði í bátasmiðjunni Trefjum. Báturinn er allur hinn glæsilegasti, um 29,5 brúttótonn, tæpir tólf metrar á lengd og er breiðasti bátur í öllu krókaaflamarkskerfinu.
Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri Ríkisútvarpsins gefur lítið fyrir þá gagnrýni að frétta- og fjölmiðlamenn séu viðkvæmir og þoli ekki gagnrýni. Þeir sem starfi á þeim vettvangi séu ýmsu vanir og því sé kjánalegt að setja hlutina í það samhengi. Þá sé það fordæmalaust að fjölmiðlamaður þurfi að þola árásir líkt og Helgi Seljan hefur gert í kjölfar umfjöllunar Kveiks um Samherja.
„Stjórnendur Samherja hafa brugðist harkalega við neikvæðri umfjöllun um félagið og ljóst að of langt hefur verið gengið í þeim viðbrögðum. Af þeim sökum vill Samherji biðjast afsökunar á þeirri framgöngu.“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki hafa séð neitt í störfum Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem gefi henni tilefni til að vantreysta honum. Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og formanni Sjálfstæðisflokksins finnst ekki eðlilegt að hann tjái sig um samskipti Kristjáns við meðlim svokallaðrar „skæruliðadeildar“ Samherja.
„Margir höfðu á orði við okkur að flest væri búið að gera sem skipti máli og fá tækifæri eftir. Með því að opna gáttir fyrir fleiri frumkvöðla þá opnuðust augu margra fyrir því hve fjölbreytt tækifærin eru á þessu sviði hérlendis,“ segir Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Sjávarklasans sem nú fagnar tíu ára afmæli sínu.
Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, segir fregnir síðustu daga af „skæruliðadeild“ Samherja ekki koma sér á óvart. Hún sé aðeins hluti af stærra neti innan fyrirtækisins sem „ráðist á fólk“ og fleiri vinni að slíkum herferðum. Að hans mati muni enda illa ef yfirvöld stigi ekki inn í málið.
Tímamót urðu í Kauphöllinni í morgun þegar viðskipti hófust með bréf í Síldarvinnslunni. Þetta er fyrsta skráning sjávarútvegsfyrirtækis á markaðítuttugu og tvö ár og fyrsta skráning í Kauphöllinni fráárinu 2019.
Vel rekin útgerð getur malað gull. Íslenskur sjávarútvegur skapar um milljarð króna í útflutningstekjur hvern virkan dag. Íslenskur sjávarútvegur einkennist af nýsköpun og framsækni og því þarf að halda á lofti, þar gætir þú komið til sögu.
Samherji hf. og Kjálkanes ehf. eru áfram stærstu hluthafar Síldarvinnslunnar hf. að loknu hlutafjárútboði félagsins sem lauk þann 12. maí. Samanlagt fara félögin með 51,8% hlut í Síldarvinnslunni en hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækisins voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag.
Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir þá staðreynd að Kristján Þór Júlíusson sé ekki horfinn úr sjávarútvegsráðuneytinu ótvíræð skilaboð um að ríkisstjórnin sé fyrst og síðast um óbreytt ástand.
Lögmaður Samherja fullyrðir að síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja, hafi verið stolið af honum meðan hann lá alvarlega veikur á sjúkrahúsi. Þá séu skyndileg veikindi Páls til skoðunar.
Heimir Már Pétursson, fréttamaður á miðlum Sýnar og mótframbjóðandi Sigríðar Daggar Auðunsdóttur í kjöri til formanns Blaðamannafélags Íslands, fordæmir tilraunir Samherja og annarra til að hafa áhrif á innra starf félagsins.
Skæruliðadeild Samherja, svokölluð, gerði tilraunir til þess að hafa áhrif á formannskjör Blaðamannafélags Íslands, sem fór fram í apríl, í von um að koma í veg fyrir að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV, yrði nýr formaður félagsins. Formaður BÍ segir tilraunina ólíðandi og alvarlega.
Hallgrímur Helgason rithöfundur fer háðulegum orðum um gervigrasrótarstarfsemi Samherja, segir þar illvilja ráða og sjúklegt hugarfar lítilla karla.
„Ég fékk skilaboð frá einum af skipstjórunum okkar Páli Steingrímssyni. Hann hefur verið mjög „aktífur“ að skrifa bæði í blöð og á samfélagsmiðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á einhver skrif.“
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021.
Íslenskur sjávarútvegur hefur þróast mikið á undanförnum árum og stendur sterkt og getur aukið verðmætasköpun sína um hátt í þrjú hundruð milljarða á næstu tíu árum. Þetta er niðurstaða viðamikillar skýrslu sérfræðihóps til sjávarútvegsráðherra sem kynnt var í dag.
Kristján Þór Júlíusson ráðherra vonast til að draga megi lærdóm af þeim mistökum sem voru gerð af hálfu ráðuneytisins; að mismuna í upplýsingagjöf aðgengi að skýrslu sem nú er til umfjöllunar.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefur boðað til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Fundurinn hefst klukkan 14.
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir um ævintýralega ósvífni og mismunun að ræða er varðar upplýsingagjöf hins opinberra til ólíkra miðla.
Stundum er sagt að glöggt sé gestsauga. Það á greinilega ekki alltaf við.
Arnarlax ráðið þau Jón Garðar Jörundsson, Kjersti Haugen, Johnny Indergård, Hjörtur Methúsalemsson og Rúnar Inga Pétursson til starfa innan félagsins.
Kynningarfundur um hlutafjárútboð Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu í dag klukkan 8:30.
Bretar virðast vera á leið í nýtt þorskastríð. Að þessu sinni er mótherjinn þó ekki Íslendingar heldur Frakkar.
Laugardaginn 1. maí síðastliðinn birti VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna auglýsingu í Fréttablaðinu þar sem kom fram samanburður á loðnuverði til Íslendinga annarsvegar og Norðmanna hinsvegar á ný afstaðinni vertíð.
Fyrsti dagur strandveiðanna var í dag og viðraði vel til sjóróðra um land allt. Um fimmtungi fleiri smábátasjómenn hafa sótt um veiðileyfi en á sama tíma í fyrra og er búist við að um sjöhundruð stundi veiðarnar í sumar.
Færeysk skattayfirvöld hafa innheimt 17 milljónir danskra króna frá dótturfélagi íslenska útgerðarfélagsins Samherja, sem eru andvirði um 340 milljóna íslenskra króna.