
Sjáðu Tryggva Hrafn halda lífi í titilbaráttu Bestu deildarinnar
Valsmenn urðu í gær fyrstir til að vinna Víkinga í Bestu deildinni í sumar og komu í veg fyrir að Fossvogsliðið stingi hreinlega af i deildinni.
Valsmenn urðu í gær fyrstir til að vinna Víkinga í Bestu deildinni í sumar og komu í veg fyrir að Fossvogsliðið stingi hreinlega af i deildinni.
Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik í Bestu-deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Liðið hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekist að klífa upp úr botnsæti deildarinnar.
Arnari Grétarssyni, þjálfara Vals, var létt í leikslok eftir sigur síns liðs gegn Víkingum. Valsmenn átt erfiða leiki undanfarið og tókst nú að vera fyrsta liðið til þess að stoppa sigurgöngu Víkinga.
Klæmint Olsen brenndi af því sem má fullyrða að sé færi aldarinnar þegar Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla. Færið má sjá neðar í fréttinni.
Valur batt enda á sigurgöngu Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Víkingar unnið níu leiki í röð á meðan Valur var í basli eftir að falla úr leik í Mjólkurbikarnum gegn Lengjudeildarliði Njarðvíkur og gera jafntefli við Keflavík. Það var ekki að sjá í kvöld þar sem Valur kom, sá og sigraði í Víkinni.
Íslandsmeistarar Breiðabliks gerðu sér ferð suður með sjó til Keflavíkur í kvöld. Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Keflavík hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekst að rísa af botninum, en þeir fara upp fyrir ÍBV á markatölu.
KA sigraði Fram 4-2 í 9. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. KA menn höfðu fyrir leikinn tapað þremur leikjum í röð án þess að skora mark og sigurinn því virkilega kærkominn. KA lyftir sér upp fyrir HK í 5. sæti í töflunni en hefur þó spilað leik meira. Fram áfram í 9. sæti deildarinnar.
Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri gegn Fram á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 á 85. mínútu en þá skoraði Jakob þegar boltinn fór af honum og í markið eftir skot frá Þorra Mar Þórissyni. Hann innsiglaði svo sigur KA með marki í uppbótartíma eftir skyndisókn.
Ellefu mörk voru skoruð í þeim þremur leikjum sem fram fóru í Bestu deild karla í gær. Boðið var upp á markaveislu á Kaplakrikavelli, KR vann sigur gegn Stjörnunni og í Árbænum unnu nýliðar Fylkis góðan sigur á ÍBV.
Leikmenn Bestu deildar liðs Fylkis heiðruðu í gær minningu hins 17 ára gamla Egils Hrafns Gústafssonar sem féll frá á dögunum.
Liðin í fjórða og fimmta sæti deildarinnar mættust í kvöld þegar FH tók á móti HK í 9. umferð Bestu deildar karla. Eftir spennandi leik þar sem mörkunum rigndi þá sigruðu heimamenn í FH 4-3.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var að vonum hæstánægður með 4-3 sigur FH á HK í Kaplakrika nú í kvöld. FH lenti þrisvar sinnum undir í leiknum en náði að jafna í öll skiptin og það var svo Úlfur Ágúst Björnsson sem skoraði sigurmarkið FH-inga hér í kvöld.
KR hafði betur í öðrum deildarleiknum sínum í röð og þriðja leiknum alls er liðið tók á móti Stjörnunni í níundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur 1-0 og KR-ingar eru nú aðeins einu stigi frá efri hluta deildarinnar.
Eyjamenn máttu þola sitt fimmta deildartap í röð er liðið heimsótti Fylki í Bestu-deild karla í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn eru farnir að nálgast efri hluta deildarinnar.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar niðurlútur eftir 2-1 tap á móti Fylki í Árbænum í dag. Þetta er fimmta tap Eyjamanna í Bestu deildinni og virðist lítið ganga hjá Vestmanneyingum um þessar mundir.
„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Þetta verður fyrsti leikurinn minn í Frostaskjóli þannig að ég hlakka til,“ segir Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, um leik kvöldsins við Stjörnuna í Bestu deild karla sem fram fer að Meistaravöllum klukkan 19:15.
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi þar sem Víkingar og Blikar fögnuðu sigri. Víkingar unnu þar sinn níunda sigur í níu leikjum en Blikar voru að vinna sinn sjötta deildarleik í röð.
Breiðablik vann virkilega mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Val í stórleik níundu umferða Bestu-deildar karla í knattsprnu í kvöld. Með sigrinum stekkur Breiðablik upp fyrir Valsmenn í annað sæti deildarinnar.
Breiðablik sigraði Val 1-0 á Kópavogsvellinum fyrr í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, var ánægður með frammistöðu sinna manna.
Víkingar eru áfram taplausir á toppi Bestu deildar karla eftir 4-0 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í dag. Liðið skoraði tvö mörk í sitthvorum hálfleik og áttu heimamenn engin svör. KA er áfram í 6. sæti með 11 stig eða heilum 16 stigum á eftir Víking og titilbaráttan sem norðanmenn óskuðu sér sennilega fokin út um gluggan snemma.
Víkingur vann 4-0 útisigur á KA á Akureyri fyrr í kvöld. Víkingur spilaði miklu betur en KA í dag eins og tölurnar gefa til kynna. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ánægður með sigurinn en gat þó fundið ýmislegt í leik síns liðs sem má betur fara.
KA tekur á móti Víkingum í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld en norðanmenn reyna þar að verða fyrsti til að taka stig af toppliði Víkinga í sumar.
Arnar Gunnlaugsson vill alls ekki eigna sér heiðurinn af frammistöðu Loga Tómassonar og Birnis Ingasonar sem hafa spilað mjög vel í upphafi Bestu deildarinnar og eiga mikinn þátt í því að Víkingsliðið er með fullt hús og fimm stiga forskot á toppnum eftir átta umferðir.
Þrír markverðir eru í sérflokki þegar kemur að því að bjarga sínum liðum í Bestu deild karla í fótbolta.
Rauða spjaldið á Karl Friðleif, leikaraskapur Eyþórs Arons og olnbogaskot Nikolaj Hansen voru til umræðu í Stúkunni á Stöð 2 Sport eftir mikil læti í Kórnum, í 2-1 sigri Víkinga gegn HK í Bestu deildinni í fótbolta.
Baldur Sigurðsson, fyrrum leikmaður Bestu deildar liðs FH og núverandi sérfræðingur Stúkunnar á Stöð 2 Sport, segir það alls ekki hafa komið sér á óvart að FH hafi sent frá sér yfirlýsingu á borð við þá sem félagið sendi frá sér á dögunum. Hann hvetur FH, sem og Kjartan Henry leikmann félagsins, til þess að líta í eigin barm.
Það var nóg um að vera í áttundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem lauk í gær. KR vann langþráðan sigur gegn Fram, Víkingur jók forskot sitt á toppnum og Keflavík fór á botninn þrátt fyrir markalaust jafntefli við Val.
Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Eftir að Fylkir hafði komist í 1-2 jöfnuðu Stjörnumenn með marki undir lokin. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var súr í leikslok.
Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, var feginn þegar flautað var til leiksloka á Fram vellinum fyrr í kvöld. Hans menn náðu í langþráðan 1-2 sigur á Fram og hysjuðu sig upp úr fall sætunum. Rúnar var þó á því að mikil vinna sé framundan og þeir séu alls ekki hólpnir.
Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Emil Atlason jafnaði metin fyrir Stjörnuna í blálokin. Hans fyrsta mark í sumar eftir erfið meiðsli.