Á páskum Á æskuárum mínum í Laugarneshverfinu leigði gömul kona, Lilja að nafni, herbergi hjá foreldrum mínum. Bakþankar 15. apríl 2017 07:00
Tölvuleikir Ódælir og athafnasamir ungir menn eins og Grettir Ásmundsson hafa alltaf verið hluti af veruleika þjóðarinnar. Testósterón gelgjunnar fyllti þá ævintýraþrá og löngun eftir því að gera sig gildandi. Þeir voru eins og ótamdir graðfolar sem stöðugt koma á óvart með uppátækjum sínum. Þetta hefur nú gjörbreyst. Bakþankar 8. apríl 2017 07:00
Flateyri 1995 Fyrir síðustu jól kom út bókin Nóttin sem öllu breytti eftir Sóleyju Eiríksdóttur. Henni var bjargað á dramatískan hátt úr snjóflóðinu á Flateyri fyrir liðlega tveimur áratugum en missti systur sína og vini undir snjófargið. Bakþankar 1. apríl 2017 07:00
Narsissus snýr aftur Narsissus hét ægifagur konungsson í grísku goðafræðinni. Hann forsmáði ástina og móðgaði guðina. Þeir lögðu það á Narsissus að hann yrði ástfanginn af sinni eigin spegilmynd. Bakþankar 25. mars 2017 07:00
Æ, þessir gömlu Í æskudýrkun samtímans er ellin hinn skilgreindi óvinur. Samkvæmt opinberum tölum verða íslenskar konur allra kvenna elstar og íslenskir karlmenn standa þeim ekki langt að baki. Þessi fjölgun kostar samfélagið gífurlegar fjárhæðir. Bakþankar 18. mars 2017 07:00
Þórbergur Þórbergur Þórðarson rithöfundur var á liðinni öld þekktur fyrir skringilegheit og fyndinn texta. Á menntaskólaárum mínum var Þórbergur átrúnaðargoð ungra vinstri manna sem tignuðu skrif hans og pólitíska trúfesti gagnvart kommúnismanum og Jósef Stalín. Bakþankar 11. mars 2017 07:00
Hjarðhegðun Uppljóstranir um meðferð sakborninga í svokölluðu Guðmundar- og Geirfinnsmáli sýna verulegar brotalamir í réttarkerfi landsins Bakþankar 4. mars 2017 07:00
Rikki Það er óbrigðult ellimerki þegar hetjur æskuáranna deyja. Þegar ég var að alast upp var Ríkharður Jónsson, Rikki, skærasta knattspyrnustjarna þjóðarinnar. Bakþankar 18. febrúar 2017 07:00
Móðgunargjarna þjóðin Íslendingar hafa ávallt verið hörundssár þjóð. Í gömlum lögbókum eru óteljandi ákvæði um mögulegar móðganir og refsingar við þeim. Bakþankar 11. febrúar 2017 07:00
"Ég næ ekki til þín“ Fræg er sagan í Íslenskri fyndni af bónda nokkrum sem stóð í brakandi þerri í heyflekknum. Skyndilega tók að hellirigna. Hann reiddist ógurlega, skók hrífuna til himins og öskraði: "Þú nýtur þess Guð, að ég næ ekki til þín.“ Bakþankar 4. febrúar 2017 07:00
Aumingja íslenskan Málvísindamenn eru almennt sammála um að íslenskan sé deyjandi tungumál og muni týnast endanlega á næstu 50-100 árum. Tungutak þjóðarinnar verður æ enskuskotnara og gæti smám saman þróast í ensk-íslenska málblöndu. Bakþankar 28. janúar 2017 07:00
Um knarrarbringur Þegar Menelás kóngur fékk Helenu fögru aftur að loknu Trójustríðinu vildi hann refsa henni á viðhlítandi hátt. Hann dró fram sverðið og hótaði henni lífláti. Helena kastaði þá af sér skikkjunni og beraði brjóstin. Bakþankar 21. janúar 2017 07:00
Offita fyrr og nú Í Egilssögu er sagt frá landnámsmanni sem Ketill hét, blundur. Sonur hans, Geir hinn auðgi, kvæntist Þórunni, systur Egils Skallagrímssonar. Þau eignuðust synina Blund-Ketil, Þorgeir blund og Þórodd hrísablund. Ég hélt alltaf að þessi fjölskylda hefði þjáðst af svefnsýki en Bakþankar 14. janúar 2017 07:00
Laxness í nútímaútgáfu Halldór Laxness var alla tíð vandvirkur málvöndunarmaður sem hafði íslenskuna í hávegum. Bakþankar 7. janúar 2017 07:00
Við áramót Hvað situr eftir frá því herrans ári 2016? Minnisstæðasti atburður ársins var sjónvarpsviðtalið við Sigmund Davíð þar sem formaðurinn framdi harakiri í beinni. Þátturinn sjálfur var frábærlega unninn af Jóhannesi Kristjánssyni og sýndi okkur ofan í peningakistur huldufólks sem lýtur öðrum lögum en við hin. Bakþankar 31. desember 2016 07:00
Blessuð sauðkindin Sauðkindin er hluti af íslenskri menningu og þjóðarsál. Íslendingar hafa lengi reynt að fá útlendinga til að skynja mikilfengleika skepnunnar. Bakþankar 17. desember 2016 07:00
Hatursummæli Íslendingar hafa frá landnámi verið móðgunargjörn þjóð. Gamlar lögbækur geyma alls kyns ákvæði um móðgandi ummæli og viðurlög við þeim. Hjalti Skeggjason var dæmdur fyrir níð um gömlu goðin í umróti kristnitökunnar. Bakþankar 10. desember 2016 07:00
Um barnauppeldi Í Egilssögu er sagt frá því þegar Egill, barnungur, drap vin sinn Grím Heggsson. Þegar þeim félögum varð sundurorða, náði Egill í litla exi og keyrði í höfuð drengsins. Skallagrímur faðir hans reiddist þessu uppátæki en móðir hans, Bera, fagnaði Agli og sagði hann mikið víkingsefni. Bakþankar 3. desember 2016 07:00
Kolbrúnarskáldið á face-book? Eftir orrustuna við Stiklastaði reikaði Þormóður Kolbrúnarskáld, illa sár, inn í hlöðu þar sem særðir menn lágu. Hrokafullur bóndi hæddist að konungsmönnum og sagði þá kvartsára. Bakþankar 26. nóvember 2016 07:00
Uppruni ADHD Landlæknisembættið birti á dögunum nýjustu tölur um óeðlilega mikla notkun Ritalins (Methylphenidat) á Íslandi. Viðurkenndir álitsgjafar veltu upp fjölmörgum spurningum í fréttaskýringaþáttum. Eru Íslendingar að ofgreina ofvirkni/athyglisbrest hjá fullorðnum eða eru aðrar þjóðir að vangreina þetta ástand? Bakþankar 12. nóvember 2016 07:00
Salka Valka Breskur prófessor í geðlækningum, David Sinclair, hélt fyrirlestur í Hannesarholti í vikunni. Hann fjallaði um athuganir sínar á skáldsögum Halldórs Laxness frá sjónarhóli geðlækninga. Sinclair ræddi um alla þrjóskupúkana, Bjart í Sumarhúsum, Jón Hreggviðsson og Steinar undir Steinahlíðum o.fl. og velti fyrir sér undarlegu úthaldi og þoli þessara manna. Bakþankar 5. nóvember 2016 07:00
Dag skal að kveldi lofa Fyrir mörgum árum réð ég mér einkaþjálfara á Gym 80 til að komast í form, megrast og yngjast. Jón "bóndi“ Gunnarsson varð fyrir valinu, margfaldur meistari í kraftlyftingum. Bóndi var ekki mikið fyrir að spjalla um hlutina heldur trúði á kraft og athafnir. Bakþankar 29. október 2016 07:00
Dylan og Megas Aldamótaárið fékk Megas verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi beitingu íslenskrar tungu. Margir urðu til að hneykslast yfir þessari verðlaunaveitingu og rifjuðu upp gamlar ávirðingar skáldsins. Bakþankar 22. október 2016 07:00
Gutti, Gutti Frægasta barnakvæði liðinnar aldar voru Guttavísur eftir Stefán Jónsson. Þær fjölluðu um hrakfallabálkinn Gutta sem aldrei hlýddi foreldrum sínum, reif nýja jakkann sinn og datt beint á nefið. Bakþankar 15. október 2016 07:00
Hinir fyrirsjáanlegu Frægasti spámaður á Íslandi á sautjándu öld var Jón Krukkur. Margt af því sem hann sagði fyrir í Krukksspá sinni er enn að koma fram. Þrátt fyrir framfarir og tækniþróun síðustu alda er alltaf eftirspurn eftir mönnum eins og Jóni Krukki, sem vissi lengra en nef hans náði. Bakþankar 8. október 2016 07:00
Saga læknisfræðinnar Fyrsti landlæknir Íslands, Bjarni Pálsson, hóf störf úti á Seltjarnarnesi árið 1760. Hann var um nokkurt skeið eini læknir landsins, enda þurfti hann að ferðast mikið. Í ævisögu hans stendur: "að trautt héldu honum veður, sjór eða úrtölur, er hans var vitjað til verka“. Bakþankar 1. október 2016 07:00
Hallgrímur Pétursson snýr aftur Margir hafa haft áhyggjur af Framsóknarflokknum á síðustu misserum. Formaðurinn liggur undir stöðugu ámæli og fjöldi misviturra manna glefsar í hann og aðra flokksmenn. Bakþankar 24. september 2016 07:00
Í draumaheimi Í febrúarmánuði árið 1930 heimsótti Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, Jónas Jónsson frá Hriflu, dómsmálaráðherra, þar sem hann lá veikur í flensu. Erindi læknisins var að skýra sjúklingnum frá þeim grun sínum að hann væri haldinn alvarlegum geðsjúkdómi. Bakþankar 17. september 2016 07:00
Lækningaminjasafnið úti á Nesi Jón heitinn Steffensen, prófessor við læknadeild HÍ, var ástríðufullur safnari. Lungann úr ævi sinni hélt hann til haga og bjargaði frá glötun bókum og munum sem tengdust sögu lækninga á Íslandi. Hann átti sér þann draum að koma upp veglegu Lækningaminjasafni Bakþankar 10. september 2016 07:00
Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Skoðun
Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir Skoðun
Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun