Meistaradeildin

Meistaradeildin

Keppni hinna bestu í Evrópu.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Inter sleppur vel

    Lið Inter Milan á Ítalíu sleppur með ótrúlega væga refsingu eftir ólætin í stuðningsmönnum liðsins í leiknum við grannaliðið AC Milan í Meistaradeildinni á dögunum.

    Sport
    Fréttamynd

    Chelsea reynslunni ríkari

    Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali við enska blaðið <em>The Sun</em> í morgun að Chelsea hafi lært sína lexíu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan þegar Mónakó sló Chelsea út. Hann segist ekki vilja upplifa þau vonbrigði aftur.

    Sport
    Fréttamynd

    Capello: Liverpool voru frábærir

    Framkvæmdastjóri Juventus, Ítalinn Fabio Capello, viðurkenndi í gær að lið hans hefði ekki haft nein svör við varnarleik Liverpool í leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi, en leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Liverpool vann fyrri leikinn á Anfield 2-1 og komst því áfram í undanúrslitin.

    Sport
    Fréttamynd

    3-0 tap vegna fótboltabullna

    Ítalska knattspyrnusambandið hefur nú þegar tekið fyrsta skrefið í áttina að hertri meðferð gegn knattspyrnubullum þar í landi í kjölfar ólátanna á leik AC Milan og Inter Milan á San Siro í gærkvöldi. Héðan í frá verður engin miskunn hjá Magnúsi hjá ítalska sambandinu sem hefur boðað róttækar aðgerðir.

    Sport
    Fréttamynd

    Lyon yfir gegn PSV

    Franska liðið Lyon er komið yfir á útivelli 0-1, gegn PSV Eindhoven í síðari leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en leikurinn fer fram í Hollandi. Fyrrum Arsenal sóknarmaðurinn Sylvain Wiltord skoraði markið á 10. mínútu. Ennþá er 0-0 hjá Juventus og Liverpool.

    Sport
    Fréttamynd

    Lampard ánægður

    Frank Lampard, leikmaður Chelsea, var ánægður með sína menn eftir leikinn við Bayern Munchen í gær. Þrátt fyrir að tapa leiknum 3-2 í Munchen, er Chelsea komið áfram í undanúrslitin í Meistaradeildinni eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna á Englandi 4-2.

    Sport
    Fréttamynd

    Heitt í kolunum í Tórínó

    Stuðningsmenn Juventus og Liverpool tóku forskot á sæluna fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni með því að fljúgast á í knæpu í gærkvöldi.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV í undanúrslitin

    PSV Eindhoven sló Lyon út í vítaspyrnukeppni í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu í kvöld, 4-2 og er komið í undanúrslitin þar sem hollenska liðið mætir AC Milan eftir 2 vikur. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1 en fyrri leik liðanna í Frakklandi í síðustu viku lauk með sömu úrslitum. Ekkert var skorað í framlengingunni.

    Sport
    Fréttamynd

    Inter í vondum málum

    Knattspyrnulið Inter Milan á yfir höfði sér harða refsingu eftir að stuðningsmenn liðsins urðu til þess að dómari þurfti að flauta leik þeirra við grannaliðið AC Milan af í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

    Sport
    Fréttamynd

    Tekið á ofbeldi á vellinum

    Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hvatti til þess í dag að tekið yrði á ofbeldi á knattspyrnuleikjum eftir að flauta varð leik Inter Milan og AC Milan af í gærkvöldi vegna mikilla óláta og blysa og flugelda sem fleygt var inn á völlinn, meðal annars í markvörð AC Milan.

    Sport
    Fréttamynd

    PSV hefur jafnað gegn Lyon

    Alex da Dias Costa hefur jafnað metin fyrir PSV Eindhoven gegn Lyon í Meistaradeildinni og er staðan í leik liðanna orðin 1-1. Markið kom á 66. mínútu en Sylvain Wiltord hafði komið Lypon yfir á 10. mínútu. Verði þetta úrslit leiksins þarf að framlengja hann þar sem fyrri leik liðanna lauk einnig 1-1.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpool sló út Juventus

    Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn með því að slá út Juventus en liðin gerðu markalaust jafntefli á Delle Alpi heimavelli Juve. Samtals vinnur Liverpool rimmuna 2-1 eftir sigur í fyrri leik liðanna fyrir viku. Leikur PSV Eindhoven og Lyon er farinn í framlengingu en honum lauk 1-1, eins og fyrri leik liðanna.

    Sport
    Fréttamynd

    Meistaradeildin í kvöld

    Leik Juventus og Liverpool í Meistaradeild Evrópu í kvöld er beðið með mikilli eftirvæntingu, ekki síst vegna þeirrar spennu sem byggst hefur upp meðal stuðningsmanna liðanna. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:30.

    Sport
    Fréttamynd

    Cisse er á bekknum hjá Liverpool

    Djibril Cisse er kominn í leikmannahóp Liverpool í fyrsta sinn síðan í haust þegar hann fótbrotnaði en hann er á varamannabekk liðsins sem mætir Juventus í síðari viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar nú kl. 18.45. Einnig vekur athygli að markvörðuinn Jerzy Dudek er í byrjunarliðinu. Nú skömmu fyrir leikinn voru 50 stuðningsmenn Juventus handteknir fyrir utan Delle Alpi.

    Sport
    Fréttamynd

    Hálfleikstölur í Meistaradeildinni

    Aðeins eitt mark hefur verið skorað þegar hálfleikur stendur yfir í leikjum kvöldsins í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Sylvain Wiltord skoraði á 10. mínútu mark Lyon sem er 1-0 yfir gegn PSV Eindhoven. Fyrri leik liðanna lauk 1-1. Staðan hjá Juventus og Liverpool er 0-0 í hálfleik.

    Sport
    Fréttamynd

    Drogba að tryggja Chelsea áfram

    Didier Drogba var rétt í þessu að koma Chelsea í 2-1 gegn Bayern Munchen. Joe Cole sendi fyrir og þar kom Drogba og stangaði boltann í fjærhornið. Markið kom á 80. mínútu og þurfa því leikmenn Bayern að skora þrjú mörk á tíu mínútum til að komast áfram og má því segja að Chelsea sé komið með annan fótinn í undanúrslitin.

    Sport
    Fréttamynd

    Milan komið yfir gegn Inter

    Andrei Shevchenko var að koma AC Milan yfir gegn Inter í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Milan sigraði fyrri leikinn 2-0 og eru því möguleikar Inter eru nú orðnir litlir en til að komast áfram þurfa þeir nú að skora 4 mörk.

    Sport
    Fréttamynd

    Liverpoolunnendur varaðir við

    Lögreglan á Englandi varaði stuðningsmenn Liverpool við að fara til Ítalíu á seinni viðureign Juventus og Liverpool í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu sem fram fer annað kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Kallaður í hópinn hjá Liverpool

    Franski framherjinn Djibril Cisse hefur mjög óvænt verið kallaður inn í leikmannahóp Liverpool fyrir síðari leik liðsins við Juventus í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Eiður Smári í byrjunarliðinu

    Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Bayern Munchen í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Eiður Smári er í fremstu víglínu ásamt Didier Drogba. Hjá Bayern koma framherjarnir Claudio Pizarro og Roy Makaay leikfærir en þeir voru ekki með í fyrri leiknum sem endað með 4-2 sigri Chelsea.

    Sport
    Fréttamynd

    Del Piero miðlar til aðdáandanna

    Fyrirliði Juventus, Alessandro Del Piero, hefur miðlað til stuðningsmanna Juventus um að haga sér vel á leik liðsins gegn Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.

    Sport
    Fréttamynd

    Lampard kemur Chelsea yfir

    Frank Lampard var nú rétt í þessu að koma Chelsea yfir gegn Bayern Munchen, í þýskalandi, í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Markið var nánast endurtekning á markinu sem hann skoraði í fyrri leiknum.

    Sport
    Fréttamynd

    Leik Inter og Milan hætt

    Leik Inter og AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var hætt í kvöld vegna óláta áhorfenda. Markus Merk, dómari leiksins, blés leikinn af og kallaði leikmenn til búningsherbergja á 73. mínútu eftir að stuðningsmenn Inter skutu ógrynni af flugeldum inná leikvanginn

    Sport
    Fréttamynd

    Chelsea í undanúrslitin

    Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Chelsea tapaði 3-2 gegn Bayern Munchen í kvöld í þýskalandi en unnu samanlagt 6-5 og mæta annað hvort Juventus eða Liverpool í undanúrslitunum.

    Sport
    Fréttamynd

    Bayern búið að jafna

    Bayern Munchen var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Chelsea. Bayern fékk aukaspyrnu sem hitti beint á kollinn á Michael Ballack sem átti góðan skalla sem Cech varði frábærlega í stöngina og þaðan út í teig. Þar var Claudio Pizarro einn og óvaldaður og setti boltann í netið nánast af marklínu. Bayern þarf nú tvö mörk á 25 mínútum til að komast áfram í keppninni.

    Sport
    Fréttamynd

    Sagan ekki með Inter

    Roberto Manchini hefur fulla trú á að sínir menn í Inter geti gert hið ómögulega og náð að sigra granna sína í AC Milan í Meistaradeildinni.

    Sport
    Fréttamynd

    Gerrard meiddur

    Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool er meiddur á nára og talið er hugsanlegt að hann missi af síðari leiknum við Juventus í Meistaradeildinni í vikunni.

    Sport
    Fréttamynd

    Mourinho verður í stúkunni

    Jose Mourinho segist muni verða í áhorfendastúkunni þegar Chelsea sækir Bayern Munchen heim á Ólympíuleikvanginn í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni í vikunni.

    Sport
    Fréttamynd

    Faria hefur ekkert að fela

    Leikmenn Bayern Munchen segjast munu mæta fullir sjálfstrausts í síðari leikinn í einvíginu gegn Chelsea í 8-liðum Meistaradeildarinnar í kvöld. Felix Magath, þjálfari Bayern,  hefur endurheimt tvo helstu sóknarmenn sína, Roy Makaay og Claudio Pizarro, sem voru meiddir í fyrri leiknum. Sá leikmaður sem Magath óttast mest í liði andstæðinganna er Didier Drogba.

    Sport