Nú hljóti félagatalið að nást úr krumlum forystu Eflingar Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins býst við því að þar til bærir embættismenn muni einhenda sér í það verkefni að „ná atkvæðaskránni úr krumlum forystu Eflingar.“ Innlent 6. febrúar 2023 15:45
Verkfall Eflingar fær grænt ljós og Sólveig heldur fast í kjörskrána Félagsdómur fellst ekki á kröfur Samtaka atvinnulífsins að boðað verkfall hjá félagsmönnum Eflingar hafi verið ólögmætt. Verkfallsaðgerðir Eflingar á Íslandshótelum hefjast að óbreyttu á hádegi á morgun. Formaður Eflingar fagnar sigri og ætlar ekki að afhenda sáttasemjara kjörskrá Eflingarfélaga strax. Innlent 6. febrúar 2023 14:34
Héraðsdómur segir Eflingu að afhenda sáttasemjara félagatalið Ríkissáttasemjari á að fá félagatal Eflingar afhent til að hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu hans í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem úrskurðaði í málinu á öðrum tímanum. Innlent 6. febrúar 2023 13:17
Í beinni: Dómstólar kveða upp dóma sína í kjaradeilunni Von er á því að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Félagsdómur komist að niðurstöðu varðandi það annars vegar hvort Efling þurfi að afhenda sáttasemjara félagatal sitt og hins vegar hvort boðað verkfall tæplega þrjú hundruð félagsmanna Eflingar á morgun standist lög. Innlent 6. febrúar 2023 12:37
Félagsdómur úrskurðar í dag Félagsdómur mun klukkan 14:30 í dag úrskurða um lögmæti verkfallsboðunar Eflingarfólks sem starfar hjá Íslandshótelum. Að öllu óbreyttu hefst verkfallið á hádegi á morgun, þriðjudag. Innlent 6. febrúar 2023 09:57
Skjóti skökku við að tefla fram „karlastétt með frekar há laun“ Tíðinda er að vænta í vikunni í kjaradeilu Eflingar en að óbreyttu hefjast verkföll á þriðjudag. Sömuleiðis hefur verkfall verið boðað meðal flutningabílstjóra, sem Samtök atvinnulífsins hafa kallað hálaunastétt. Efnahagsráðgjafi SA stendur við það og segir það skjóta skökku við að hálaunaðri karlastétt sé teflt fram í baráttunni. Innlent 5. febrúar 2023 22:00
Mun áfrýja áður en hún afhendir Ætla má að tíðindi muni berast á morgun í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins en óhætt er að segja að deilan sé í hnút. Innlent 5. febrúar 2023 15:04
Framvísar launaseðlum olíubílstjóra: „Við erum ekki hálaunuð“ Trúnaðarmaður Eflingar hjá Olíudreifingu hefur safnað saman launaseðlum bílstjóra hjá Olíudreifingu, Samskipum og Skeljungi. Hann segir fullyrðingar framkvæmdastjóra SA um há laun olíubílstjóra ekki standast skoðun. Innlent 4. febrúar 2023 23:34
Harðræði ríkisins gegn Eflingu - epli Aðalsteins og afstaða VG „Vinstri græn standa með launafólki og stéttarfélögum þeirra í baráttunni fyrir réttindum og bættum kjörum“. Þessi stutti texti í stefnuskrá Vinstri grænna ætti að vera vitnisburður um það að láglaunafólk megi geta treyst á liðsinni þessa ríkisstjórnarflokks þó vægi hans í ríkisstjórn sé með því minnsta, sem þekkist í lýðræðisríki. En svo er ekki. Skoðun 4. febrúar 2023 15:00
SA segja stöðuna í kjaradeilunni skelfilega Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir skelfilegt að verið sé að boða til enn frekari verkfalla á sama tíma og málaferli standi yfir bæði fyrir héraðsdómi og Félagsdómi. Hann og formaður Eflingar eru hins vegar bæði viss um sigur fyrir Félagsdómi þar sem málflutningur fór fram síðdegis. Innlent 3. febrúar 2023 19:30
Bæði fullviss um sigur í Félagsdómi Bæði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru fullviss um sigur í deilu SA og Eflingar fyrir Félagsdómi. Dómurinn kemur saman klukkan fjögur í dag til að skera úr um hvort boðuð verkföll Eflingar séu lögmæt í ljósi þess að miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara liggur fyrir. Innlent 3. febrúar 2023 14:49
Ráðuneytið vísar frá kærunni sem Efling dró til baka Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur vísað frá stjórnsýslukæru Eflingar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Efling skaut kærunni í gær til héraðsdóms vegna þess hve félagið taldi ráðuneytið lengi að afgreiða kæruna. Innlent 3. febrúar 2023 09:44
Örlagaríkur dagur runninn upp í sögulegri deilu Spennan er farin að magnast í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Beðið er eftir að atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun tvö hefjist, beðið er eftir málflutningi í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og sömuleiðis málflutnings í máli Eflingar og SA fyrir félagsdómi. Þá liggur fyrir dómstólum að úrskurða hvort umdeild miðlunartillaga sáttasemjara standist lög. Innlent 3. febrúar 2023 06:22
Efling vill að skipaður verði nýr sáttasemjari Formaður Eflingar segir félagið ekki treysta ríkissáttasemjara til að leiða frekari viðræður við Samtök atvinnulífsins og vill að nýr einstaklingur verði fundinn í hans stað. Félagið gafst einnig upp á biðinni eftir úrskurði vinnumarkaðsráðherra á stjórnsýslukæru vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara og kærði tillöguna til Héraðsdóms í dag. Innlent 2. febrúar 2023 19:30
Helvítis geðveikin Afsakið orðbragðið, ég held bara alltaf að skrif fái meiri athygli ef þau eru sett í svona fyrirsögn. Skoðun 2. febrúar 2023 18:01
Sér ekki möguleika á samningum nema Aðalsteinn stígi til hliðar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skipa þurfi vararíkissáttasemjara ef kalla eigi Eflingu og Samtök Atvinnulífsins aftur að samningsborðinu. Efling hefur dregið stjórnsýslukæru sína vegna miðlunartillögu sáttasemjara til baka og þess í stað kært hana til héraðsdóms. Innlent 2. febrúar 2023 15:50
Efling skýtur lögmæti miðlunartillögunnar til héraðsdóms Efling hefur ákveðið að skjóta kröfu sinni um ógildingu miðlunartillögu ríkissáttasemjara til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta gerir félagið vegna viðbragðsleysis Guðmundar Inga Guðbrandssonar vinnumarkaðsráðherra við stjórnsýslukæru Eflingar. Innlent 2. febrúar 2023 13:42
Vinnudeilur ekki gagnlegar þegar spenna er í hagkerfinu Fjármálaráðherra segir vinnudeilur, líkt og er á milli Samtaka atvinnulífsins (SA) og Eflingar, séu ekki gagnlegar þegar mikil spenna er í hagkerfinu líkt og er um þessar mundir. Hann vill sjá vinnu lagða í að þroska vinnumarkaðsmódelið til að draga úr líkunum á að ágreiningur í kjaraviðræðum endi á svipuðum stað og SA og Efling eru komin á. Innlent 2. febrúar 2023 13:24
Ekki bara skortur á mat heldur færi allt of mikið í ruslið Forstjóri Innnes, eins stærsta heildsalans á höfuðborgarsvæðinu, segir að verði úr verkföllum Eflingar hjá Samskipum og Olíudreifingu geti heildsalinn aðeins haldið úti starfsemi í nokkra daga. Viðskipti innlent 2. febrúar 2023 11:15
Meðferðin á Sólveigu Önnu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er eldklár kona og hörkudugleg. Hún er einnig gegnheil í baráttu sinni fyrir bættum kjörum láglaunafólks, bæði karla og kvenna. Sólveig Anna skreytir sig ekki með háskólagráðum en byggir málflutning sinn samt á staðreyndum og sérstaklega góðu jarðsambandi við aðstæður félagsmanna Eflingar. Hún er útsjónarsöm og pragmatísk og hefur sýnt sig að vera slyng samningakona. Skoðun 2. febrúar 2023 09:31
Segir líklegra að Félagsdómur telji verkfallsaðgerðir ólögmætar Sérfræðingur í vinnurétti telur líklegt að Félagsdómur muni komast að þeirri niðurstöðu að þær vinnustöðvanir sem boðaðar hafa verið af hálfu Eflingar séu ólögmætar. Innlent 1. febrúar 2023 20:03
Sólveig krefst fundar með forsætisráðherra Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og gerir athugasemd við málflutning hennar um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Fyrirtæki sem frekari verkfallsaðgerðir Eflingar gætu haft áhrif á eru að fara yfir stöðuna en vinnustöðvun gæti til dæmis sett innanlandsflug úr skorðum. Innlent 1. febrúar 2023 12:10
Ófriður í lífi láglaunamanneskju Það er enginn friður fólginn í því að vera láglaunamanneskja. Það er enginn friður fólginn í því að geta ekki borðað út mánuðinn. Skoðun 1. febrúar 2023 11:01
Segja það ólögmætt að fara í verkfall sé tillagan ekki felld Samtök atvinnulífsins segja ekki löglegt að boða til vinnustöðvunar eða hefja verkfallsaðgerðir áður en að minnsta kosti annar deiluaðila hafi fellt miðlunartillögu frá ríkissáttasemjara. Innlent 31. janúar 2023 20:09
Víðtækari aðgerðir Eflingar munu hafa lamandi áhrif Víðtækar aðgerðir sem Efling boðaði til í dag munu lama starfsemi flestra stærstu hótela borgarinnar, dreifingu eldsneytis um landið og hafa mikil áhrif á dreifingu Samskipa á vörum. Félagsdómur tók fyrir í dag stefnu Samtaka atvinnulífsins gegn Eflingu vegna boðun verkfalla sem eiga að hefjast á þriðjudag. Innlent 31. janúar 2023 19:55
Efling í leit að ófriði þegar friður er í boði Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA) segir allar aðgerðir Eflingar vera líkt og forystan sé á harðahlaupum undan félagsfólki sínu. Þá sé stéttarfélagið einungis að leita að ófriði þegar friður er í boði. Hann á von á því að félagsdómur dæmi SA í vil í máli samtakanna gegn Eflingu. Innlent 31. janúar 2023 18:23
Undrast að Efling beini spjótum bara að einu flutningafyrirtæki Forsvarsmenn Samskipa lýsa yfir furðu yfir því að Efling skuli aðeins beina verkfallsaðgerðum sínum að einu fyrirtæki á flutningamarkaði. Efling tilkynnti í morgun verkfallsboð hjá Samskipum í annarri lotu verkfallsboða. Innlent 31. janúar 2023 16:19
Sólveig Anna vonar að SA komist niður á jörðina Formaður Eflingar vonar að niðurstaða atkvæðagreiðslu um verkföll á sjö hótelum sem og nýboðaðar viðbótaraðgerðir verði til þess að koma Samtökum atvinnulífsins niður á jörðina. Eflingarfólki sé alvara með að samið verði við það á þeirra forsendum en því ekki gert að þiggja mylsnu af borði annarra. Innlent 31. janúar 2023 13:41
Miðlunartillagan stenst að mati forsætisráðherra Forsætisráðherra metur það svo að miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins standist. Hún segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara, þrátt fyrir að hann hafi verið harðlega gagnrýndur fyrir að vilja leggja miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu. Innlent 31. janúar 2023 12:33
Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar. Innlent 31. janúar 2023 11:13