„Maður hefur spilað körfubolta lengi“ Jón Axel Guðmundsson átti stórleik fyrir Ísland þegar liðið vann glæsilegan 88-86 endurkomusigur á Bretlandi í Manchester í dag og tryggði sér þannig sæti í seinni umferð undankeppni HM 2027. Körfubolti 5.7.2026 16:54
„Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Baldur Þór Ragnarsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var í skýjunum eftir magnaðan og dramatískan 88-86 sigur liðsins á Bretlandi í Manchester í dag. Með sigrinum komst Ísland áfram í seinni umferð undankeppni HM 2027. Körfubolti 5.7.2026 16:51
Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Ísland vann magnþrunginn sigur á Bretlandi, 88-86, í 6. og síðustu umferð í D-riðli fyrri umferðar undankeppni HM 2027 í körfubolta karla í Manchester í dag. Körfubolti 5.7.2026 13:15
Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Körfubolti 2.7.2026 19:01
Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks Íslenska körfuboltalandsliðið er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins eftir tvo leiki við Litháa í nýloknum glugga. Ísland er í fjórtánda sæti á nýjasta styrkleikalistanum á heimasíðu FIBA Basketball. Körfubolti 5. mars 2026 13:30
Saga Elvars er ótrúleg Fyrrum landsliðsmaður í körfubolta segir að það hafi verið ótrúlegt að fylgjast með íslenska landsliðinu í sigurleiknum gegn Litháum á föstudagskvöldið. Liðið standi vel að vígi í riðlinum í undankeppni HM. Sport 4. mars 2026 12:00
Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Bretar sitja eftir á botni riðils Íslands í undankeppni HM karla í körfubolta, eftir tap gegn Ítölum á útivelli í kvöld, 84-75. Körfubolti 2. mars 2026 20:33
Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Ísland vann magnaðan endurkomusigur gegn Litaén í fyrri leik liðanna á föstudag en varð að sætta sig við tap úti í Litaén í dag, í undankeppni HM karla í körfubolta. Körfubolti 2. mars 2026 18:36
Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Þrír leikmenn í Kaunas Zalgiris, toppliði litáensku úrvalsdeildarinnar, fengu leyfi frá félaginu til að spila með landsliði Litáen gegn Íslandi á eftir. Körfubolti 2. mars 2026 15:02
Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Trúin á því að íslenska karlalandsliðið í körfubolta geti lagt landslið Litáen að velli öðru sinni með skömmu millibili er til staðar þegar liðin mætast í undankeppni HM ytra í dag. Strákarnir okkar búast við særðum og árásargjörnum andstæðingum í leik þar sem starf landsliðsþjálfara Litáen gæti verið undir. Körfubolti 2. mars 2026 13:31
Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska landsliðshópnum í körfubolta fyrir seinni leikinn við Litáen í undankeppni HM. Körfubolti 1. mars 2026 13:47
Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn FIBA hefur nú valið tíu flottustu tilþrifin í undankeppni HM karla í körfubolta á föstudaginn og þar skarar Elvar Már Friðriksson fram úr. Körfubolti 1. mars 2026 11:31
Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Litáar eru í öngum sínum eftir tapið gegn „körfuboltasmáþjóð“ í Laugardalshöll í gærkvöld. Þessi mikla körfuboltaþjóð veltir nú vöngum yfir því hvernig Íslandi tókst að vinna upp 21 stigs forskot á síðustu sjö mínútum leiksins. Körfubolti 28. febrúar 2026 13:01
Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar „Endurkoma aldarinnar.“ Þannig lýsa erlendir miðlar því sem gerðist í Laugardalshöll í gærkvöld. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á svæðinu fyrir Vísi og tók frábærar myndir af úrslitastundinni. Körfubolti 28. febrúar 2026 11:03
Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Elvar Már Friðriksson kórónaði stórkostlega frammistöðu sína gegn Litáen í undankeppni HM 2027 með því að skora sigurkörfu Íslands gegn þessari öflugu körfuboltaþjóð í þann mund sem leiktíminn rann út. Gærkvöldið var eitt það eftirminnilegasta í sögu íslenska körfuboltalandsliðsins og sigurinn einn sá fræknasti. Körfubolti 28. febrúar 2026 10:02
„Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. Körfubolti 27. febrúar 2026 22:58
Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Ísland vann stórkostlegan sigur á Litáen í kvöld. Liðið var yfir 20 stigum undir í seinni hálfleik en nagaði niður muninn og fékk sénsinn í lokin. Elvar Már Friðriksson tók sénsinn og tryggði sigurinn. Lokatölur 86-85. Körfubolti 27. febrúar 2026 22:38
Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85. Körfubolti 27. febrúar 2026 21:58
Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Erfitt var fyrir Kristinn Pálsson að horfa á tap Íslands fyrir Bretlandi í síðasta landsliðsglugga og hann er ákveðinn í að liðið verji heimavöllinn gegn Litáum í kvöld. Hann mætir til leiks í toppformi þrátt fyrir pastaát á Ítalíu. Körfubolti 27. febrúar 2026 14:02
Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Mindaugas Kacinas, fyrrverandi leikmaður Keflavíkur, spilar sinn fyrsta A-landsleik fyrir Litháen þegar liðið mætir Íslandi í körfubolta í Laugardalshöll í kvöld. Körfubolti 27. febrúar 2026 11:57
Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Tryggvi Snær Hlinason tók auka frídögum fyrir yfirstandandi landsliðsverkefni fagnandi. Það er ekki oft sem hann getur farið á heimaslóðir á miðju tímabili. Körfubolti 27. febrúar 2026 10:01
Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Elvar Már Friðriksson fagnar því að komast heim í hlýjuna á Íslandi eftir sérlega kaldan vetur í Póllandi. Orðrómar um að hann snúi alfarið heim í haust eru á sandi byggðir. Körfubolti 27. febrúar 2026 08:00
Skorti orku og ástríðu Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, segir áskorun að mæta sterku liði Litáen í Laugardalshöll í undankeppni HM á föstudag. Nauðsynlegt sé að leikmenn finni ástríðu og orkustig sem var ekki til staðar gegn Bretum í síðasta heimaleik. Körfubolti 26. febrúar 2026 14:33
Einn nýliði í landsliðinu Craig Pedersen hefur valið þrettán leikmenn í íslenska landsliðshópinn í körfubolta fyrir leikina gegn Litáen í undankeppni HM 2027. Einn nýliði er í hópnum. Körfubolti 20. febrúar 2026 13:02
„Tapaðir boltar kostuðu okkur leikinn“ Ísland tapaði 84–90 gegn Bretlandi í jöfnum og líkamlega erfiðum leik sem fram fór í dag. Liðin eru því bæði með einn sigur og eitt tap í D-riðli undankeppni HM 2027. Körfubolti 30. nóvember 2025 21:18