Upp­gjör: Bret­land – Ís­land 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Ís­lands og HM draumurinn lifir

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Ísland vann nauman sigur á Bretlandi í dag og var undir nær allann leikinn
Ísland vann nauman sigur á Bretlandi í dag og var undir nær allann leikinn Vísir/Anton

Ísland vann magnþrunginn sigur á Bretlandi, 88-86, í 6. og síðustu umferð í D-riðli fyrri umferðar undankeppni HM 2027 í körfubolta karla í Manchester í dag.

Með sigrinum tryggði Ísland sér þriðja sæti riðilsins og sæti í seinni umferð undankeppni HM, þar sem liðið mætir Serbíu, Tyrklandi og Bosníu og Hersegóvínu úr C-riðli fyrri umferðarinnar. Ísland á því enn möguleika á því að komast á heimsmeistaramót í fyrsta sinn í sögunni.

Ísland hóf leikinn vel og komst fljótlega fimm stigum yfir, 7-12. Ekki tókst að fylgja þessari góðu byrjun eftir þar sem Bretland tók vel við sér og sneri taflinu við í 19-14. Munurinn var fimm stig, 24-19, að loknum fyrsta leikhluta.

Í öðrum leikhluta hertist róðurinn hjá íslenska liðinu þar sem Bretland setti niður hvert þriggja stiga skotið á fætur öðru. Bretar voru með yfirhöndina allan leikhlutann og komust nokkrum sinnum 11 stigum yfir.

Þriggja stiga karfa Kristins Pálssonar undir lok fyrri hálfleiks eftir glæsilegan undirbúning Martins Hermannssonar sá hins vegar til þess að munurinn var fimm stig, 49-41, að honum loknum.

Ísland byrjaði síðari hálfleikinn af geysilegum krafti og minnkaði muninn fljótlega niður í aðeins þrjú stig, 49-46. Það sem eftir lifði af þriðja leikhluta náðu Bretar nokkrum sinnum átta stiga forystu og Ísland minnkaði muninn einnig niður í þrjú stig að nýju, 63-60.

Erfiðlega gekk hins vegar að komast yfir þann hjalla að jafna metin eða komast yfir og Bretland var sjö stigum yfir, 69-62, að loknum þriðja leikhluta.

Í fjórða leikhluta gekk leikurinn áfram þennan vanagang framan af. Bretar voru með yfirhöndina og íslenska liðið minnkaði muninn þess á milli, mest í eitt stig í stöðunni 75-74, en náði enn ekki að jafna metin eða komast yfir.

Ekki kom hins vegar til greina að gefast upp, ekki frekar en fyrri daginn, og Martin náði loksins að jafna metin í 84-84 með glæsilegri þriggja stiga körfu þegar rúm mínúta var eftir.

Í hönd fór óbærilega spennandi lokamínúta þar sem Ísland reyndist að lokum sterkari aðilinn og vann magnaðan tveggja stiga sigur.

Atvik leiksins

Martin Hermannsson jafnaði metin loksins, loksins í 84-84 þegar skammt var eftir. Þá loks komst Ísland yfir hjallann, komst í kjölfarið yfir og vann enn einn dramatíska sigur sinn á undanförnum árum.

Stjörnur og skúrkar

Jón Axel Guðmundsson tók íslenska liðið svolítið á herðarnar enda fór hann fyrir því. Jón Axel skoraði 25 stig og tók átta fráköst. Var hann stigahæstur allra í leiknum. Martin Hermannsson var drjúgur með 19 stig og fjórar stoðsendingar og Kristinn Pálsson setti niður fimm mikilvægar þriggja stiga körfur, var með 15 stig.

Tryggvi Snær Hlinason var afskaplega ólíkur sjálfum sér og náði sér engan veginn á strik, sérstaklega sóknarlega. Hann leit varla á körfuna, hvað þá komst nálægt henni.

Dómararnir

Línan var heldur misjöfn, eða hreinlega óljós, hjá dómurunum. Í fyrstu virtust þeir staðráðnir í að flauta ekki of mikið og Ísland fyrir vikið allnokkrum sinnum með tapaða bolta í stað þess að fá villur. Þegar leið á leikinn hófu dómararnir hins vegar að sjá villur í hverju horni. Illu heilli fyrir Ísland voru sambærileg brot sem ekki hafði verið dæmt á fyrr í leiknum skyndilega orðnar að villum. Þetta jafnaðist svo allt saman betur út í síðari hálfleik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira