„Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Sindri Sverrisson skrifar 1. júlí 2026 08:00 Tryggvi Snær Hlinason var mættur á landsliðsæfingu í Garðabænum í gær, fyrir leikinn við Ítalíu á fimmtudaginn. vísir/Sigurjón Tryggvi Snær Hlinason hefur ásamt norskum samherja sínum búið til norræna menningu í spænska körfuboltaliðinu Bilbao Basket. Hann nýtur lífsins á Norður-Spáni en er nú mættur til Íslands til að hjálpa landsliðinu að komast á HM í fyrsta sinn.
Tryggvi skrifaði á dögunum undir nýjan samning við Bilbao sem gildir til ársins 2029. Bóndasonurinn úr Bárðardal hefur spilað á Spáni síðustu níu ár og síðustu ár verið lykilmaður hjá Bilbao, sem í vor varð Evrópubikarmeistari annað árið í röð. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt ár fyrir mig, bæði í körfuboltanum og utan hans, og það var ótrúlega gaman að gera þetta aftur með svona skemmtilegum hópi af leikmönnum. Ótrúlega skemmtilegur andi sem myndaðist hjá okkur. Ég og Harald Frey, norski leikstjórnandinn okkar, erum á þriðja árinu okkar saman. Við teljum okkur hafa búið til þennan kúltúr sem hefur myndast í liðinu og ætlum að reyna að halda því. Það er ein af stóru ástæðunum fyrir því að við ákváðum báðir að semja við félagið og halda áfram í þrjú ár. Þetta er ótrúlega spennandi verkefni og ég hef fulla trú á þessu,“ segir Tryggvi. Engin neikvæðni og öskur heldur bullandi jákvæðni En hvernig er þessi skandinavíski kúltúr sem þeir Frey hafa átt stóran þátt í að móta hjá Bilbao? „Það er alltaf smá Norðurlandablæti í sumum klúbbum. Bilbao er búið að vera með mikið af Svíum og síðan Íslending og Norðmann. Það er fyndið hvernig það er búið að vera. En ég hef fulla trú á þessu og hvernig þeir eru að gera þetta. Þetta er svolítið nýi skólinn. Ekki gamli skólinn þar sem er verið að öskra, hamast og einhver neikvæðni oft. Við reynum að hafa bullandi jákvæðni, halda áfram að gera vel og hafa trú hver á öðrum.“ Tryggvi spilar með Íslandi gegn Ítalíu í Laugardalshöll á fimmtudagskvöld, og við Bretland í Manchester á sunnudaginn. Ísland hefur þegar unnið Ítalíu einu sinni í undankeppninni, og Litháen einu sinni, og dugar því einn sigur í viðbót til að komast upp úr riðlinum og á lokastig undankeppninnar. Þangað taka liðin með sér fyrri úrslit og því myndi Ísland með sigri á Ítölum taka risastökk í átt að HM. „Þetta er lið sem passar svolítið vel á móti okkur og leikmenn sem við höfum spilað núna við margoft. Amedeo Tessitori er stóri maðurinn þeirra, sem ég er í mestum slagsmálum við, og þetta er eiginlega orðið óþolandi því við erum alltaf að spila við hvorn annan. En það er bara gaman og við höfum haft nokkuð góða stjórn á Ítölum til þessa og teljum okkur geta spilað vel á móti þeim. Ef við gerum okkar hluti þá getum við tekið þennan leik heima,“ segir Tryggvi en viðtalið við hann má sjá í spilaranum.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Fleiri fréttir „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Sjá meira