Risasigrar hjá Val og Haukum Íslandsmeistarar Vals og Haukar eru svo gott sem komnir áfram í 2. umferð EHF-bikars kvenna í handbolta. Liðin unnu bæði stórsigra í dag. Handbolti 5. október 2024 15:38
Maté: Erum að fara að tapa fullt af leikjum Þjálfari Hauka, Maté Dalmay, var sjáanlega svekktur með það hvernig lið hans mætti til leiks gegn Hetti fyrr í kvöld. Gólfið á Ásvöllum var skúrað með Haukaliðinu og héldu strákarnir hans Viðars á moppunni. Leiknum lauk með 80-108 sigri gestanna og byrjun tímabilsins gæti varla verið verri. Körfubolti 3. október 2024 21:35
Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði Höttur mætti til leiks í fyrstu umferð Bónus deildar karla og tóku gestgjafa sína í Haukum í bakaríið. Haukar voru eiginlega engin fyrirstaða fyrir fullorðna Hattarmenn sem unnu 80-108 sigur í leik sem var lítið spennandi í seinni hálfleik. Körfubolti 3. október 2024 18:32
Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Haukar og HK gerðu 29-29 jafntefli í fimmtu umferð Olís deildar karla. Handbolti 2. október 2024 22:24
Nítján marka stórsigur hjá Haukum Gróttu beið afar slæmt tap þegar liðið heimsótti Hauka í fjórðu umferð Olís deildar kvenna. 30-11 urðu lokatölur, Haukum í vil. Handbolti 2. október 2024 19:41
Haukar og Valur byrja Bónus deildina á sigrum Haukar og Valur unnu bæði sína leiki í 1. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Valur vann Þór Akureyri með fimm stiga mun, 82-77. Haukar lögðu Hamar/Þór með níu stiga mun, 93-84. Körfubolti 1. október 2024 22:31
KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum KR-konur fögnuðu vel og innilega í dag eftir að hafa tryggt sér sæti í Lengjudeildinni í fótbolta á næsta ári, í lokaumferð 2. deildarinnar. Íslenski boltinn 28. september 2024 17:33
„Varnarleikurinn var skelfilegur” Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, var niðurlútur eftir tap á móti Fram í Úlfarsárdal í kvöld. Þeim gekk illa að stöðva sóknarmenn Fram og var Ásgeir Örn virkilega óánægður með varnarleik liðsins. Handbolti 27. september 2024 22:30
Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Fram lagði Hauka í miklum markaleik í Úlfarsárdal í kvöld en leikurinn fór 37-34. Framarar léku við hvern sinn fingur, sérstaklega í síðari hálfleik og skoruðu 21 mark gegn andlausum varnarmönnum Hauka. Handbolti 27. september 2024 21:10
Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn FH vann Hauka með minnsta mun í Hafnarfjarðarslag kvöldsins í Olís-deild karla í handbolta. Liðin eru þá jöfn á toppi deildarinnar. Handbolti 23. september 2024 21:06
Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Haukar lentu ekki í teljandi vandræðum með Stjörnuna í 3. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta þökk sé frábærri frammistöðu tveggja lykilmanna. Handbolti 19. september 2024 22:45
Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Haukar unnu í kvöld góðan sjö marka sigur á ÍR í Olís-deild karla í handbolta, lokatölur 37-30. Handbolti 19. september 2024 19:45
Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fram vann eins marks sigur á Haukum í 2. umferð Olís-deildar kvenna. Lokatölur 27-26 í leik þar sem allt var í járnum. Handbolti 14. september 2024 15:45
„Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” Haukar unnu öruggan átta marka sigur á KA á Akureyri nú í kvöld í annarri umferð Olís deildar karla í handbolta, lokatölur 26-34. Skarphéðinn Ívar Einarsson skipti yfir til Hauka frá uppeldisfélagi sínu KA í sumar og átti frábæran leik í kvöld og skoraði 8 mörk úr 12 skotum. Handbolti 12. september 2024 21:30
Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri Haukar unnu öruggan átta marka sigur á KA norðan heiða í kvöld í annarri umferð Olís deildar karla í handbolta. Lokatölur 26-34 og sigurinn í raun aldrei í hættu. Handbolti 12. september 2024 20:40
Skarphéðinn tryggði Haukum sigurinn með frábæru marki Haukar unnu 27-26 sigur á Afturelding í fyrstu umferð Olís deild karla í handbolta á Ásvöllum í kvöld. Handbolti 5. september 2024 21:56
Rut Arnfjörð: Þetta hafa verið krefjandi mánuðir Rut Arnfjörð Jónsdóttir lék sinn fyrsta deildarleik með Haukum í kvöld þegar liðið vann sannfærandi tólf marka sigur á nýliðum Selfoss. Handbolti 5. september 2024 20:58
Uppgjörið og viðtöl: Haukar - Selfoss 32-20 | Haukar kjöldrógu Selfoss Nýliðar Selfoss fengu slæman skell þegar liðið mætti Haukum í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna í handbolta að Ásvöllum í kvöld. Handbolti 5. september 2024 19:28
Guttarnir markahæstir og sá nýi bestur þegar Haukar unnu Hafnarfjarðarmótið Haukar fögnuðu fyrsta bikar sínum á leiktíðinni eftir að hafa unnið alla þrjá leiki sína á hinu árlega Hafnarfjarðarmóti. Handbolti 26. ágúst 2024 13:02
Hafnarfjarðarmótið haldið á Ásvöllum í ár Það styttist í handboltatímabilið og einn af haustboðunum er hið árlega Hafnarfjarðarmót í handbolta. Handbolti 20. ágúst 2024 15:02
Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni Það er gömul saga og ný að kostnaðarsamt sé fyrir íslensk íþróttalið að taka þátt í Evrópukeppnum í handbolta. Haukakonur ætla að þrífa bíla um helgina til að safna fyrir sinni þátttöku. Handbolti 14. ágúst 2024 18:01
„Ég þarf bara að vinna mér inn sæti og það eru stór nöfn í þessu liði“ Guðmundur Bragi Ástþórsson hefur kvatt uppeldisfélag sitt, Hauka, og heldur nú í dönsku úrvalsdeildina í handbolta. Hann segir langþráðan draum að rætast og ætlar að berjast fyrir sæti í byrjunarliðinu innan gríðarsterks leikmannahóps. Handbolti 19. júlí 2024 10:00
Haukar styrkja sig Haukar hafa samið við Litháann Arvydas Gydra um að leika með liðinu í Bónus deild karla á næsta tímabili. Körfubolti 18. júlí 2024 16:00
Haukar mæta Hönunum frá Finnlandi Karlalið Hauka mun mæta finnska liðinu HC Cocks í 2. umferð Evrópubikarsins í handbolta. Handbolti 16. júlí 2024 10:10
Valskonur fara til Litháen og Haukar til Belgíu Íslandsmeistarar Vals heimsækja litháíska liðið Zalgiris Kaunas í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta, en Haukar fara til Belgíu þar sem liðið mætir KTSV Eupen. Handbolti 16. júlí 2024 09:48
„Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Elín Klara Þorkelsdóttir var valin í úrvalslið HM í handbolta fyrst íslenskra kvenna á dögunum eftir frábæra frammistöðu með undir tuttugu ára landsliði Íslands sem náði besta árangri íslensks kvennalandsliðs á stórmóti með því að tryggja sér sjöunda sæti mótsins. Elín segir kjarnann sem myndaði lið Íslands á mótinu einstakan. Persónuleg frammistaða Elínar, sem er leikmaður Hauka, á HM mun án efa varpa kastljósinu á hana. Elín er hins vegar ekki á leið út í atvinnumennsku alveg strax. Handbolti 4. júlí 2024 10:00
Sara Sif til Hauka Markvörðurinn Sara Sif Helgadóttir hefur gert tveggja ára samning við Hauka. Hún gengur í raðir félagsins frá Íslandsmeisturum Vals. Handbolti 21. júní 2024 22:30
Ho You Fat í Hauka Subway-deildarlið Hauka er byrjað að styrkja sig fyrir átökin næsta vetur og er búið að semja við reynslumikinn leikmann. Körfubolti 14. júní 2024 10:41
Hjartnæm stund í Árbænum: Gestirnir gáfu sektarsjóðinn er Fylkismenn minntust fallins félaga Mörg hundruð manna mættu og mörg hundruð þúsund krónur söfnuðust í minningarleik Fylkismannsins Egils Hrafns Gústafssonar í gær. Íslenski boltinn 12. júní 2024 15:31
Hin þaulreynda Rut gengin í raðir silfurliðs Hauka Hin þaulreynda Rut Jónsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, er gengin í raðir Hauka í Olís-deildinni. Hún spilaði ekkert með KA/Þór á síðustu leiktíð vegna barneigna en hefur nú ákveðið að söðla um og mun spila í rauðu á komandi leiktíð. Handbolti 5. júní 2024 19:45