
Góður sigur Gummersbach í Íslendingaslag
Gummersbach vann góðan sigur á Melsungen í sannkölluðum Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Rhein-Neckar Löwen þurfti að sætta sig við tap gegn Kiel.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Gummersbach vann góðan sigur á Melsungen í sannkölluðum Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Rhein-Neckar Löwen þurfti að sætta sig við tap gegn Kiel.
Eyjakonur máttu sætta sig við stórt tap gegn liði Madeira en liðin mættust í Evrópubikarnum í handknattleik í kvöld.
Bjarki Már Elísson og félagar hans í Telekom Veszprem unnu í dag tveggja marka sigur á erkifjendum sínum í Pick Szeged í ungverska handboltanum í kvöld.
ÍBV vann átta marka sigur á Selfyssingum í Suðurlandsslag í Olís-deild karla í dag. Selfyssingar leiddu lengi vel en magnaður endasprettur Eyjamanna tryggði þeim stigin tvö.
Valskonur jöfnuðu Hauka að stigum á toppi Olís-deildar kvenna í handknattleik eftir stórsgur á gegn KA/Þór á Akureyri í dag.
Jón Bjarni Ólafsson átti stórleik þegar FH vann Hauka í Hafnarfjarðarslagnum í Olís-deildinni. Hann nýtur þess til hins ítrasta að spila með Aroni Pálmarssyni.
Fram vann Stjörnuna með minnsta mun í Olís deild karla á sama tíma og Valur vann Gróttu með tíu marka mun. Í Olís-deild kvenna vann Afturelding eins marks sigur á Stjörnunni.
Stjórn handknattleiksdeildar Hauka hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gagnrýni ÍBV á félagið sem og Handknattleikssamband Íslands. Gagnrýnin hefur snúið að leikskipulagi ÍBV og þá helst leik Hauka og ÍBV í Olís-deild kvenna.
HK tók á móti Víkingum í Kórnum í mikilvægum leik í botnbaráttunni í níundu umferð Olís deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 30-27 HK í vil sem nældi sér þar af leiðandi í dýrmæt stig í baráttu liðanna um að forðast fall úr deildinni.
Handboltamaðurinn Teitur Örn Einarsson yfirgefur Flensburg þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.
Framkvæmdastjóri HSÍ segir fráleitt að sambandið hafi hótað að reka kvennalið ÍBV úr Íslandsmótinu líkt og þjálfari liðsins sagði í fyrrakvöld. Erfitt sé að finna jafnvægi þegar fresta á leikjum.
Í kvöld fór fram Hafnarfjarðarslagur í Olís-deild karla. Fór leikurinn fram að Ásvöllum og var leikurinn hluti af 9. umferð deildarinnar. Sigruðu gestirnir í FH en stýrðu þeir leiknum frá upphafi til enda. Lokatölur 29-32.
Haukar töpuðu í kvöld öðrum leik sínum í röð í Olís-deildinni þegar erkióvinirnir í FH komu í heimsókn á Ásvelli. Lokatölur 29-32 fyrir FH sem stjórnaði leiknum frá upphafi til enda.
Fram vann nokkuð öruggan átta marka sigur er liðið heimsótti nýliða ÍR í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld, 23-31.
Afturelding vann sterkan fjögurra marka sigur er liðið heimsótti KA norður á Akureyri í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 25-29.
Ýmir Örn Gíslason, Arnór Snær Óskarsson og félagar þeirra í Rhein-Neckar Löwen unnu góðan fjögurra marka sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 32-28.
Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fordæmir vinnubrögð Hauka og Handknattleikssambands Íslands eftir að liðið fékk það ekki í gegn að leik ÍBV og Hauka í Olís-deild kvenna í handbolta yrði frestað.
Evrópumeistarar SC Magdeburg tryggðu sér sæti í undanúrslitum heimsmeistarakeppni félagsliða í handbolta í dag eftir 43 marka sigur á University of Queensland frá Ástralíu, 57-14.
Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, var afar ósáttur út í vinnubrögð HSÍ og afstöðu Hauka að vilja ekki fresta leik kvöldsins gegn Eyjastúlkum.
Haukar unnu afar sannfærandi sigur á Eyjakonum. Um miðjan fyrri hálfleik fóru Haukar að sigla fram úr. Heimakonur voru ellefu mörkum yfir í hálfleik og gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og enduðu á að vinna með tuttugu og einu marki 38-17.
Ríkjandi bikarmeistarar Sävehof töpuðu fyrir Ystads, 30-26, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum í sænsku bikarkeppninni í handbolta. Tryggvi Þórisson lék með Sävehof en komst ekki á blað.
Kolstad er komið í undanúrslit norska bikarsins í handbolta eftir 36-23 sigur á Bergen. Kolstad eru ríkjandi bikarmeistarar eftir sigur 2022 á Elverum sem hafði unnið bikarinn fjögur ár í röð þar áður. Liðin mætast svo í undanúrslitunum í næstu umferð.
Ríkjandi heimsmeistarar Magdeburgar hófu titilvörn sína með öruggum sigri en liðið er nú statt á heimsmeistarakeppni félagsliða í handbolta sem fram fer í Dammam í Sádi-Arabíu.
Frammistaða íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fyrstu leikjunum undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar lofaði góðu. Handbragðs hans er strax farið að gæta á leik Íslands.
Norska karlalandsliðið í handbolta lauk leik um helgina í æfingamótinu Gulldeildinni þar sem liðið lék þrjá leiki. Eftir eina sigur liðsins á mótinu tóku leikmenn liðsins liðsmynd með stuðningsmönnum liðsins, nokkuð sem norska kvennalandsliðið fær ekki að gera.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tvo sigra á Færeyjum um helgina en þetta voru fyrstu landsleikirnir í sex mánuði og þeir fyrstu síðan að Snorri Steinn Guðjónsson tók við liðinu. Tölfræði liðsins frá helginni er athyglisverð.
Handknattleiksambands Íslands, HSÍ, segir við ÍBV að það sé val Eyjamanna að taka þátt í Evrópukeppni vitandi það að því fylgir meira álag. Eyjamenn eru mjög svekktir með að fá ekki jákvæðari viðbrögð frá sambandinu sínu.
Snorri Steinn Guðjónsson stýrði íslenska karlalandsliðinu í handbolta í fyrsta sinn í tveimur leikjum í Laugardalshöllinni um helgina. Niðurstaðan var betri en við höfum séð í frumraun landsliðsþjálfara í næstum því sex áratugi.
Elliði Snær Viðarsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, var nokkuð ánægður með verkefnið í heild sinni.
Ísland vann torsóttan sigur gegn Færeyjum 30-29. Ísland var fjórum mörkum yfir í hálfleik en gestirnir spiluðu afar vel í síðari hálfleik sem gerði Íslandi erfitt fyrir. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.