Frjálsar íþróttir

Frjálsar íþróttir

Fréttamynd

Hafdís í góðum gír á Stórmóti ÍR

Hafdís Sigurðardóttir úr UFA náði flottum árangri á fyrri degi Stórmóts ÍR í frjálsum íþróttum í dag en mótið er hluti af Reykjavíkurleikunum. ÍR-ingurinn Hilmar Arnar Jónsson setti piltamet í kúluvarpi og náði lágmarki fyrir HM unglinga í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍR-inga.

Sport
Fréttamynd

Stórmót ÍR í frjálsum fer fram í 17. sinn um helgina

ÍR-ingar halda Stórmót ÍR í frjálsum íþróttum í sautjánda sinn um helgina en mótið fer fram sem endranær í Laugardalshöllinni og hefur fest sig í sessi sem langstærsta opna innanhússmótið í frjálsum íþróttum hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá átta ára og yngri og upp í karla og kvennaflokk og koma keppendur víðsvegar að af landinu auk um 70 Færeyinga og eins Norðmanns sem hefur skráð sig til keppni. Þetta kemur fram í frétttilkynningu frá ÍR-ingum.

Sport
Fréttamynd

Kári Steinn og Rannveig eru hlauparar ársins 2012

Framfarir – hollvinafélag millivegalengda og langhlaupara, völdu um helgina frammúrskarandi hlaupara og hlaupahópa ársins 2012 en þetta er tíunda árið í röð sem samtökin afhenda þessi verðlaun. Viðurkenningarnar voru veittar á Reykjavík International Games í Laugardalshöll.

Sport
Fréttamynd

Aníta vann mesta afrekið á Áramóti Fjölnis

Aníta Hinriksdóttir úr ÍR endaði frábært ár með því að ná mesta afrekinu á sjötta Áramót Fjölnis sem var haldið um síðustu helgi. Aníta var þarna að vinna veglegan farandbikar annað árið í röð en hann var veittur í fjórða sinn.

Sport
Fréttamynd

Kári Steinn og Arndís komu fyrst í mark

Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki og Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni komu fyrst í mark í karla- og kvennaflokki í Gamlárshlaupi ÍR sem fram fór venju samkvæmt í gær.

Sport
Fréttamynd

Fiffó gerður að heiðursfélaga FRÍ

Friðrik Þór Óskarsson var fyrr í mánuðinum gerður að heiðursfélaga Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir framlag sitt til íþróttanna hér á landi.

Sport
Fréttamynd

Aníta bætti sig um sex sekúndur

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, bætti eigið Íslandsmet í 600 metra hlaupi innanhúss á Jólamóti ÍR sem fram fór í Laugardalshöll í gær.

Sport
Fréttamynd

Reynir bætti 39 ára gamalt piltamet

Reynir Zoëga Geirsson, 13 ára frjálsíþróttakappi úr Breiðabliki, bætti í gær 39 ára gamalt piltamet í 1500 metra hlaupi innanhúss á móti hjá FH.

Sport
Fréttamynd

Pishchalnikova grunuð um lyfjamisnotkun

Darya Pishchalnikova frá Rússlandi, sem vann silfurverðlaun í kringlukasti kvenna á Ólympíuleikunum í London í sumar, sætir rannsókn vegna mögulegra misnotkun á lyfjum.

Sport
Fréttamynd

Aníta fékk brons í Danmörku

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, varð þriðja á Norðurlandamótinu í víðavangshlaupum sem fór fram í Tårnby í Danmörku í gær.

Sport
Fréttamynd

Helga Margrét lærir nýjan lífsstíl

Fjölþrautarkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur þurft að setja bæði frjálsíþróttaskóna og körfuboltaskóna inn í skáp á meðan hún reynir að koma skrokknum í lag. Helga Margrét hefur verið að glíma við huldumeiðsli undanfarin þrjú ár og hélt að hún væri búin að finna vandamálið á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Ásdís er frjálsíþróttamaður ársins 2012

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hefur verið valin frjálsíþróttamaður ársins 2012 en þetta var tilkynnt á lokahófi Frjálsíþróttasambands Íslands á dögunum og kemur fram á heimasíðu Ármenninga í dag.

Sport
Fréttamynd

Sigurjón og Christine ofurhlauparar ársins

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur valið þau Christine Bucholtz og Sigurjón Sigurbjörnsson ofurhlaupara ársins 2012 en bæði fengu þau verðlaunin afhent á uppskeruhátíð FRÍ um síðustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem FRÍ útnefnir ofurhlaupara ársins með þessum hætti. Þau Christine og Sigurjón hafa verið í fararbroddi í þessari grein frjálsíþrótta á árinu en þetta kemur fram á heimasíðu FRÍ.

Sport
Fréttamynd

Kipketer segir frá ferlinum

Dansk-keníski hlauparinn Wilson Kipketer kemur hingað til lands í næsta mánuði og heldur fyrirlestur á Grand Hótel í Reykjavík þann 10. nóvember næstkomandi.

Sport
Fréttamynd

Einar Daði besti tugþrautarmaður Norðurlanda árið 2012

Tugþrautarmaðurinn Einar Daði Lárusson úr ÍR átti frábært ár og nú er orðið ljóst að enginn tugþrautarmaður á Norðurlöndum gerði betur en þessi 22 ára strákur á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR.

Sport
Fréttamynd

Aníta efst á heimslistanum - frábært ár 2012

Hlaupakonan efnilega Aníta Hinriksdóttir úr ÍR trónir á toppi heimslistans árið 2012 í 2000 metra hindrunarhlaupi í flokki unglinga 17 ára og yngri með tímann 6:34,80 mínútur. Sá tími er auðvitað glæsilegt íslenskt aldursflokkamet í greininni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR.

Sport
Fréttamynd

Stefnumót með gulldrengnum Jóni Margeiri

Landsmönnum gefst um helgina kostur á að snæða með fulltrúum Íslands á nýafstöðuna Ólympíumóti fatlaðra í London. Um er að ræða styrktarsamkomu í þágu Íþróttasambands fatlaðra en öll innkoma rennur til sambandsins.

Sport
Fréttamynd

Ásdís þarf ekki í aðgerð

Ásdís Hjálmsdóttir hefur verið til skoðunar hjá læknum vegna ökklameiðsla sem hún varð fyrir í mars á síðasta ári.

Sport
Fréttamynd

Samstarfi Ásdísar og Stefáns lokið

Stefán Jóhannsson er ekki lengur þjálfari spjótkastarans Ásdísar Hjálmsdóttur en þetta kom fram í fréttatilkynningu frá frjálsíþróttadeild Ármanns í morgun.

Sport