

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Leeds missti niður tveggja marka forystu á Old Trafford
Manchester United mistókst að koma sér upp að hlið nágranna sinna í Manchester City í ensku úrvalasdeildinni en liðið gerði í kvöld jafntefli á heimavelli gegn Leeds United.

Fulham áfram í enska bikarnum
Fulham er komið áfram í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 3-2 útisigur á Sunderland í kvöld.

Kompany um ásakanirnar gegn City: Ranghvolfi augunum þegar ég hugsa um það
Vincent Kompany, fyrrum fyrirliði Manchester City, segir aðila í fótboltaheiminum ekki hafa innistæðu fyrir því að benda á mistök hvers annars. Mikil umræða hefur skapast síðustu daga um meint brot City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Nýr lögfræðingur Man. City fær jafnmikið borgað og De Bruyne
Manchester City mun leita til bestu lögfræðinga í boði þegar félagið undirbýr sig nú fyrir það að þurfa verja sig gegn ásökunum um svindl frá ensku úrvalsdeildinni.

Nauðgari rekinn degi eftir að hann skoraði þrennu
Enska utandeildarfélagið Radcliffe hefur rekið David Goodwillie degi eftir að hann skoraði þrennu í leik með liðinu.

Segir Gakpo mögulega hafa farið of snemma til Liverpool
Hollenski landsliðsmaðurinn Cody Gakpo hefur ekki náð að fylgja eftir frábæru heimsmeistaramóti hjá sínu nýja liði Liverpool. Nýr landsliðsþjálfari hans, Ronald Koeman, segir Gakpo mögulega hafa farið of snemma í ensku úrvalsdeildina.

Burnley laumaði sér í 16-liða úrslit | Öskubuskuævintýri Wrexham á enda
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley eru á leið í 16-liða úrslit FA-bikarsins í fótbolta eftir dramatískan 2-1 sigur gegn C-deildarliði Ipswich Town í kvöld. Þá var dramatíkin ekki minni þegar Sheffield United sló Hollywood-lið Wrexham úr leik á sama tíma.

United ætlar að bjóða yfir hundrað milljónir punda í Osimhen
Manchester United er tilbúið að borga fúlgur fjár fyrir markahæsta leikmann ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Nike vill ekkert með Greenwood hafa
Mason Greenwood, leikmaður Manchester United, hefur ekki fengið nýjan samning við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike þrátt fyrir að hann hafi ýjað að því.

Gerrard yrði loksins enskur meistari ef enska deildin færi ítölsku leiðina
Á Ítalíu hafa félögin misst titlana sína þegar þau hafa brotið reglur með gróflegum hætti. Nú standa öll spjót að Manchester City eftir harðorða yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar í gær.

Vill að Klopp biðji blaðamanninn afsökunar
Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, hefur gaman að því að pota í Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra liðsins, og lét tækifæri sem bauðst eftir uppákomu á blaðamannafundi sér ekki úr greipum ganga.

Liverpool er lélegasta liðið í ensku úrvalsdeildinni á árinu 2023
Liverpool hefur ekki unnið deildarleik á nýju ári og vandræðin blasa við á öllum sviðum.

Chelsea flytur inn heimsþekktan sálfræðing fyrir liðið
Chelsea verslaði sér ekki bara leikmenn fyrir milljarða króna í janúarglugganum því enska úrvalsdeildarfélagið ákvað einnig að vinna í andlegum málum leikmanna sinna.

Varane segist vera að kafna vegna fjölda leikja
Franski miðvörðurinn Raphaël Varane segir knattspyrnumenn á hæsta getustigi spila alltof marga leiki. Varane lagði nýverið landsliðsskóna á hilluna þrátt fyrir að vera ekki orðinn þrítugur.

„Enska úrvalsdeildin hefur aldrei farið í svona mál gegn svona félagi“
Enska úrvalsdeildin ákvað í dag að kæra Manchester City fyrir yfir eitt hundrað brot á fjárhagsreglum deildarinnar. Sú ákvörðun gæti haft alvarlega afleiðingar.

Ten Hag ætlar út með ruslið
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, ætlar að taka rækilega til í leikmannamálum félagsins í sumar. Talið er að sex leikmenn verði seldir í sumar, þar á meðal verða fyrirliðinn Harry Maguire og framherjinn Anthony Martial.

Conte hringdi í Kane frá Ítalíu eftir að hann bætti markametið
Antonio Conte hringdi beint í Harry Kane eftir sigur Tottenham á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Kane skoraði eina mark leiksins og varð í leiðinni markahæstur í sögu Spurs.

Marsch rekinn frá Leeds
Jesse Marsch hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóra Leeds United. Liðið er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

María heldur sæti sínu í norska landsliðinu
María Þórisdóttir er í nýjasta hópnum hjá norska kvennalandsliðinu í fótbolta en landsliðshópurinn var tilkynntur í dag.

Sérfræðingur Sky Sports fór yfir brot Man. City: Hundrað brot á níu árum
Enska úrvalsdeildin heldur því fram að Manchester City hafi brotið um hundrað reglur um rekstur fótboltafélaga á níu ára tímabili. Englandsmeistarnir hafa nú verið ákærðir fyrir þau meintu reglubrot.

Markahæsti leikmaður Liverpool eftir HM spilar í vörninni hjá Leicester
Liverpool liðið er óþekkjanlegt þessa dagana og fyrir vikið eru lærisveinar Jürgen Klopp dottnir niður í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Enska úrvalsdeildin sakar Manchester City um svindl
Manchester City gerðist brotlegt á rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar samkvæmt nýrri rannsókn en enskir fjölmiðlar segja frá þessu í dag.

Lýsir Guardiola sem klikkaða prófessornum
Chris Sutton veltir fyrir sér í pistli í Daily Mail hvað Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, gangi hreinlega til með umdeildum ákvörðunum sínum að undanförnu.

Neville segir eitthvað að hjá City og Carragher veltir fyrir sér hvort Haaland hafi valið rangt lið
Gary Neville segir að það sé eitthvað að hjá Manchester City en liðið tapaði gegn Tottenham fyrr í dag. Jamie Carragher veltir fyrir sér hvort Erling Braut Haaland hafi valið rangt lið þegar hann gekk til liðs við Englandsmeistarana.

Dagný snuðuð um vítaspyrnu þegar West Ham náði í stig gegn Arsenal
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn fyrir West Ham sem náði í stig gegn sterku liði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Tímamótamark Kane kom í veg fyrir að City minnkaði forystu Arsenal á toppnum
Harry Kane var hetja Tottenham þegar hann skoraði eina mark leiksins gegn Manchester City í dag. Mark Kane gerði hann að markahæsta leikmanni félagsins frá upphafi.

Harry Kane orðinn markahæstur í sögu Tottenham
Harry Kane er orðinn markahæsti leikmaður í sögu Tottenham Hotspur en mark hans gegn Manchester City í dag þýðir að hann hefur nú skorað meira en goðsögnin Jimmy Greaves.

Johnson tryggði nýliðunum sigur gegn Leeds
Brennan Johnson skoraði eina mark leiksins er nýliðar Nottingham Forest unnu mikilvægan 1-0 sigur gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

María sat á bekknum er United missteig sig í toppbaráttunni
María Þórisdóttir var ónotaður varamaður er Manchester United gerði markalaust jafntefli gegn Everton í ensku Ofurdeildinni í fótbolta í dag.

Segir leikmenn hafa farið yfir strikið en óskar eftir samræmi hjá VAR
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, óskar eftir því að myndbandsdómarar í ensku úrvalsdeildinni bjóði upp á meira samræmi en hingað til eftir að Casemiro var rekinn af velli í 2-1 sigri liðsins gegn Crystal Palace í gær.