

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Eiginmaðurinn missti stjórn á sér
Sálfræðingur sagðist í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir hádegi að hann teldi að Magnús Einarsson, sem varð konu sinni að bana á heimili þeirra í Hamraborg, hafi ekki undirbúið morðið heldur hafi hann misst stjórn á sér.

Skólastjórinn í 2 ára fangelsi
Jón Árni Rúnarsson, fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans, var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1994 til 2001 í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Jón Árni var ákærður fyrir að hafa dregið sér tæpar 29 milljónir króna.

Ræddi bara við suma umsækjenda
Ættleiðingarnefnd ræðir við suma umsækjendur í málum sem koma fyrir nefndina, aðra ekki. Hún er ekki í samvinnu við viðkomandi barnaverndarnefnd, að sögn Margrétar Hauksdóttur formanns ættleiðingarnefndar. </font /></b />

Betra að reykja en vera of þungur
Dómsmálaráðuneytið óskar eftir sérstökum heilsufarsupplýsingum séu umsækjendur um ættleiðingu yfir ákveðnum þyngdarstuðli. Er það sagt vegna hættu á æða- og hjartasjúkdómum. Einskis er spurt þótt umsækjandi reyki að sögn kjörföður. </font /></b />

Átelur vinnubrögð ráðuneytis
"Það viðhorf gagnvart umbjóðanda mínum einkennir málsmeðferð dómsmálaráðuneytisins, að hún sé með einhverju öðrum hætti heldur en annað fólk," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem fór með mál Lilju Sæmundsdóttur, fyrir Héraðsdómi í gær.

Reynir á stefnumótun spítalans
"Meginmálið er að það reynir á hvort þessi stefnumótun spítalans sé lagalega réttmæt eða ekki," sagði Jóhannes M. Gunnarsson lækningaforstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss um málshöfðun fyrrverandi yfirlæknis á geðsviði LSH á hendur spítalanum.

Þyngdin látin ráða niðurstöðu
"Málið er að því leyti óvenjulegt hvaða eiginleikar umsækjandans um ættleiðingaleyfi, eru látnir ráða niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins. Það er fyrst og fremst þyngdin," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um mál konunnar sem fékk ekki að ættleiða barn vegna ofþyngdar hennar, samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins.

Sögð of þung til að ættleiða barn
Kona hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna þess að dómsmálaráðuneytið synjaði henni um að ættleiða barn frá Kína. Synjunin byggði meðal annars á því að konan væri of þung. Í stefnunni er ráðuneytið sakað um geðþóttaákvarðanir og fordóma. </font /></b />

Dettifossmálið þingfest
Dettifossmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi. Fimm eru ákærð í málinu. Þremur þeirra er gefið að sök stórfelld brot gegn lögum um fíkniefni,með því að hafa, í júní og júlí á síðasta ári, flutt inn tæp átta kíló af amfetamíni.

6 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
Tuttugu og tveggja ára karlmaður var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa slegið mann í andlitið með flösku fyrir utan skemmtistað í Reykjavík í desember árið 2003. Flaskan brotnaði á andliti mannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð í andlitið auk fjölda skurða á enni.

Lögreglumaður sýknaður
Lögreglumaður var sýknaður í Hæstarétti í dag af ákæru um fjárdrátt og brot í opinberu starfi. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex skilorðsbundir.

Í mál við ríkið vegna eignaupptöku
Lögmaður hóps manna sem eiga og reka fasteignasölur undirbýr nú málshöfðun á hendur ríkinu. Þeir telja að í nýjum lögum um fasteigasölur felist brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar um eignarrétt og atvinnufrelsi.
5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárás. Maðurinn var einnig ákærður fyrir aðild að annarri líkamsárás en var sýknaður af þeirri ákæru.

Ástþór sýknaður af eignaspjöllum
Ástþór Magnússon, sem þekktastur er sem forsetaframbjóðandi, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ákæru um eignaspjöll. Honum var gefið að sök að hafa á síðasta ári tekið myndavél úr höndum annars gests á skemmtistaðnum Glaumbar, slegið henni nokkrum sinnum í barborð og síðan hent henni frá sér þannig að hún týndist.

Staðfestir sekt en mildar refsingu
Hæstiréttur mildaði í dag refsingu fyrrverandi forsvarsmanna Skjás eins fyrir að veita viðtöku og ráðstafa í eigin þágu yfir hundrað og sextíu milljónum af stolnu fé frá Landssímanum og hylma yfir glæpinn. Hæstiréttur telur algjörlega útilokað að þeir hafi ekki vitað að féð var illa fengið.

Hæstiréttur mildaði dómana
Hæstiréttur mildaði dómana yfir sakborningunum þremur í Landssímamálinu rétt í þessu. Árni Þór Vigfússon var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar Kristjánsson í 18 mánuði. Báðir voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi síðastliðið sumar.

Út í hött, segir Grétar
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas.

Dómur í líkfundarmáli óbreyttur
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári.

Annþór fékk 3 ára dóm
Dómur féll í Hæstarétti í dag yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Ólafi Valtý Rögnvaldssyni fyrir hrottalega árás á mann á heimili hans; hann var meðal annars barinn með kylfu svo að hann handleggsbrotnaði. Annþór fékk þriggja ára dóm, Ólafur tveggja ára dóm. Dómurinn tekur mið af löngum ofbeldisferli hinna dæmdu.

Kæra Reynis tekin fyrir
Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Gæsluvarðhald fyrir líkamsárás
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur fyrir að ráðast á annan mann á föstudag og misþyrma honum. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns er maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu læknir og hefur meðal annars sinnt úrskurðarmálum af ýmsu tagi fyrir lögregluna.

Brasilísk kona í 2 ára fangelsi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 26 ára brasilíska konu í tveggja ára fangelsi fyrir að smygla til landsins 860 grömmum af kókaíni og tæplega 11 grömmum af LSD í desember í fyrra. Konan faldi fíkniefnin innanklæða og í leggöngum en efnin fundust við líkamsleit á Keflavíkurflugvelli. Hún var handtekin og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.

Nauðgunarfórnarlambi vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur gagnrýnir lögregluna í Reykjavík og telur ámælisvert að hún skuli ekki hafa, í nóvember síðastliðnum, tekið á móti nauðgunarkæru konu þegar í stað, eins og henni hafi borið að gera.

2 ára fangelsi fyrir bílaíkveikju
Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa hellt bensíni yfir og kveikt í bifreiðum á bílastæði fjölbýlishúss í Hafnarfirði í fyrra, með þeim afleiðingum að eldur barst í gluggakarma á jarðhæð hússins og stofnaði maðurinn með því í hættu lífi níu sofandi íbúa hússins.

Dómur fyrir sölu á aflahlutdeild
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun karlmann á fimmtugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa selt alla aflahlutdeild frá skipi, án samþykkis Sparisjóðs Keflavíkur, sem átti skuldabréf sem hvíldu á skipinu og aflakvóta þess.

Dæmdur fyrir sama brot
Ungur bifhjólamaður, sem lögreglan stöðvaði með því að aka í veg fyrir hann, var í dag sýknaður af því að hafa brotið af sér á þeim tíma. Hann var hins vegar dæmdur fyrir brot fyrr um kvöldið sem annar maður hefur gengist við og gert dómsátt.

Heimskuleg greiðasemi
Heimskuleg greiðasemi Sveinbjörns Kristjánssonar, fyrrum aðalféhirðis Símans, varð til þess að ríflega 260 milljónir hurfu af rekstrarreikningum Símans án þess að eftir var tekið, sagði Ásgeir Þór Árnason, verjandi Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, í Hæstarétti í gær.
Líklegt að breyta þurfi lögum
Líklegt er að breyta þurfi lögum eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið ákvæði um friðhelgi eignarréttarins.

Málið gegn Arngrími tekið fyrir
Mál Norðmannsins Anders Saethers gegn Arngrími Jóhannssyni, eins stofnenda flugfélagsins Atlanta, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Saether segir Arngrím hafa gert bindandi samning um kaup á helmingseignarhluta í fyrirtækinu Scandinavian Historic Flight, en hann hafi svo rofið þann samning einhliða.
Dómstóllinn hafnaði beiðninni
Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað beiðni íslenska ríkisins um að taka fyrir bótaþátt í dómi Mannréttindadómstólsins í máli íslensks sjómanns gegn ríkinu.