

Bíó og sjónvarp
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.

Hugleiddi að taka stera
Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson gjörbreytti útliti sínu fyrir hlutverk handrukkara í Svartur á leik. Hann massaði sig upp og missti tuttugu kíló á fjórum mánuðum, sem var hreint ekki áreynslulaust.

Birta sýnishorn úr nýjustu þáttaröð True Detective
Colin Farrell, Vince Vaughn, Rachel McAdams og Taylor Kitsch fara með aðalhlutverkin í þáttaröðinni.

Þegar friðsæll bær fyllist af þungarokkurum
Stutt- og heimildamyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs hefst í kvöld í Bíó Paradís á tveimur myndum. Önnur er um Eistnaflug.

George R. R. Martin skrifar nýja þætti fyrir HBO
Margir aðdáendur vilja að hann einbeiti sér frekar að því að ljúka Winds of Winter.

Fjallið pantaði sjö heila kjúklinga
Peter Dinklage sagði "sanna sögu“ af Hafþóri í Daily show í Bandaríkjunum í gær.

Stuttmyndin Heimanám í Cannes
Heimanám eftir Birni Jón Sigurðsson og Elmar Þórarinsson verður sýnd í stuttmyndahorni í Cannes í maí. Birnir segir langtímamarkmiði hafa verið náð.

Frelsissviptingar umfjöllunarefni nýrrar kvikmyndar
Austur, ný íslensk kvikmynd eftir Jón Atla Jónasson, verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum þann 17. apríl næstkomandi.

Jon Snow er hræðilegur matargestur - Myndband
Seth Meyers bauð bastarðinum Jon Snow í matarboð þar sem Jon reynir af öllum mætti að eignast vini.

Óskarsverðlaunahafar og ísgerð í Rúanda
Heimildar- og stuttmyndahátíð fer fram í Reykjavík í þrettánda skipti. Úrval mynda á hátíðinni er þó nokkuð.

George R.R. Martin birti kafla úr nýjustu bók sinni
Höfundur Game of Thrones gefur aðdáendum bókanna sýnishorn af nýjustu bókinni.

Hafþór Júlíus tók þátt í aprílgabbi CCP
Hann kom fram í þættinum o7: The EVE Online show sem CCP sendir út beint frá höfuðstöðvum sínum í Grandagarði 8 fyrir spilara leiksins EVE Online.

Kveðjustund Paul Walker á hvíta tjaldinu
Kvikmyndin Furious 7 verður frumsýnd um helgina. Leikarinn Paul Walker lést í bílslysi þegar tökur á myndinni voru hálfnaðar. Handritinu var breytt og hlupu bræður hans í skarðið til þess að hægt væri að ljúka við myndina.

Frumsýnt á Vísi: Sýnishorn úr Blóðberg
Vesturport kynnir Blóðberg í leikstjórn Björns Hlyns Haraldssonar sem einnig skrifar handritið.

Nexpo 2015: Plain Vanilla sprotafyrirtæki ársins
Nexpo-verðlaunin voru afhent í gærkvöldi.

Óskarsleikkona í íslenskri mynd
Franska leikkonan Emmanuelle Riva leikur í íslenskri kvikmynd í haust.

Sýnishorn úr nýjustu Bond-myndinni, Spectre
Daniel Craig mætir aftur í hlutverki breska njósnarans James Bond.

Bretlandsdrottning mátti ekki setjast í járnhásætið
Gömul regla kom í veg fyrir að Elísabet mætti gantast aðeins á setti Game of Thrones.

Game of Thrones mun spilla fyrir lesendum
Þættirnir og bækurnar munu enda á sama máta.

Líkir Bieber við Joffrey konung
Comedy Central hefur birt tvö myndbönd úr "grillun“ Justin Bieber.

Upplifa eitthvað nýtt og spennandi
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin hátíðleg í þriðja skiptið í Bíói Paradís dagana 19.-29. mars. Þema hátíðarinnar er friður og þar verður að finna fjölda kvikmynda og viðburða fyrir börn og fjölskylduna alla.

Fimmtánda Pixar myndin kemur í sumar
Fjórar kvikmyndir framleiðandans eru væntanlegar fyrir árið 2017.

Myndskeið úr æsku Kurt Cobain notuð í nýrri heimildarmynd
Fyrsta myndin sem er gerð með leyfi fjölskyldu og vina söngvarans.

Game of Thrones sýndir í 170 löndum samtímis
Til þessa hefur samstilling á frumsýningum á leiknum sjónvarpsþáttum ekki náð til Íslands.

Leyndin ekki lengur í tísku
Heimildarmynd um dulinn heim tískuspámennsku.

Nýjungarnar sem Apple kynnti í dag
Væntanlegt snjallúr og samstarf við sjónvarpsstöðina HBO meðal þess sem bar hæst á kynningu fyrirtækisins.

Ég meina, hverju á maður að trúa?
„Ef þú fylgist með sjónvarpinu þá heyrir þú annarsvegar að það sé ekkert mál að taka upp evru, við gætum tekið hana upp á morgun. Hálftíma seinna kemur næsti sérfræðingur og segir að þetta sé ekki hægt. Ég meina, hverju á maður að trúa?“

Grimmar eðlur enn í Júragarðinum
Átján risaeðlur sem munu sjást í Jurassic World hafa verið kynntar til leiks á vefsíðu kvikmyndarinnar. Myndin verður sýnd í þrívídd.

Skjaldborg á Patreksfirði
Þetta er í níunda sinn sem hátíðin verður haldin en hún hefur fyrir löngu sannað sig sem einn af mikilvægustu viðburðum íslenskrar kvikmyndamenningar.

Blóðberg heillar Bandaríkjamenn
Íslenska kvikmyndin Blóðberg verður endurgerð sem sjónvarpssería í Bandaríkjunum, ef allt gengur eftir. Umboðsskrifstofan ICM Partners kom að máli við framleiðendurna, Vesturport, vegna myndarinnar eftir kvikmyndahátíðina í Gautaborg, þar sem myndin var sýnd sem verk í vinnslu.

Um sjö þúsund manns á Stockfish
Á sjöunda þúsund manns sóttu Stockfish-evrópska kvikmyndahátíð í Reykjavík.