Gagnrýni

Star Wars hittir aftur í mark

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Lucasfilm
Star WarsThe Force Awakens fangar jafnt gamla aðdáendur sen nýja. Hetjurnar sem fönguðu hjörtu okkar í æsku og nýju hetjur seríunnar virka vel saman og vel tekst að blanda saman hasar og húmor. Um er að ræða sjöundu myndina í nærri því 40 ára gömlum söguheimi sem flestir ættu að kannast við og hafa eftirvæntingar fólks, eftir gríðarlega stóra markaðsherferð, verið mjög háar.

Enginn ætti þó að yfirgefa salinn vonsvikinn.

Myndin lítur stórkostlega út og sem og hljóðið og þá sérstaklega tónlistin sem er frábær. J. J. Abrams, sem leikstýrði myndinni og skrifaði hana með þeim Lawrence Kasdan og Michael Arndt, hefur hér gert Star Wars mynd eftir upprunalegu formúlunni með nýju ívafi.

The Force Awakens er ekki gallalaus, frekar en aðrar kvikmyndir. Þó myndin sé tveir klukkutímar og 15 mínútur að lengd, virðist farið nokkuð hratt yfir söguna. Það er þó skiljanlegt með tilliti til þess að gera þarf áhorfendum grein fyrir því hvað gerðist á þeim 30 árum sem liðu á milli Return of the Jedi og The Force Awakens.

Í myndinni má finna fjölmargar vísanir í gömlu myndirnar, þó það séu ekki nema lítil vélmenni í bakgrunni eða skringilegar geimverur á skuggalegum geimbar. Abrams hefur sagt að hann reyndi eftir mesta megni að forðast tölvugerða graffík. Það er þó nánast ómögulegt á okkar tímum en graffík myndarinnar sem og þrívídd kemur vel út.

Sviðsmyndir Force Awakens minna einnig á gömlu myndirnar á skemmtilegan hátt, enda voru þær flestar byggðar, en ekki tölvugerðar. Án þess að spilla nokkuð fyrir söguþræði myndarinnar er þó eitt sem vakti athygli undirritaðs og fólk hefur verið að velta fyrir því sér í nærri því 40 ár. Af hverju eru vondu karlarnir í Star Wars svo bersýnilega á móti handriðum á hættulegum stöðum?

Mynd átta verður frumsýnd árið 2017 og er henni leikstýrt af Rian Johnson, sem er hvað þekktastur fyrir Looper. Á næsta ári fáum við þó að sjá myndina Rogue One: A Star Wars Story, sem fjallar um hóp uppreisnarmanna sem stela teikningunum af Helstirninu.

Star Wars: The Force Awakens ætti að henta ungum sem öldnum aðdáendum Star Wars og jafnvel fólki sem aldrei hefur séð Star Wars mynd, ef slíka manneskju er hægt að finna einhversstaðar.


Tengdar fréttir

Leikararnir sungu Star Wars lögin hjá Jimmy Fallon

Þáttastjórnandinn Jimmy Fallon og hljómsveitin The Roots tóku Star Wars lög í þættinum The Tonight Show í gærkvöld en um þessar mundir er verið að frumsýna nýjustu Star Wars myndina um allan heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×