

Gísli Hinrik Sigurðsson, stofnandi Garðheima, er látinn, 79 ára að aldri.
Bandaríski leikarinn David Gail, sem var þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210 og Port Charles, er látinn 58 ára að aldri. Ekki er vitað hvernig andlát hans bar að.
Í dag kvöddu ættingjar og vinir Auði Haralds í einstaklega fallegri athöfn í Hallgrímskirkju. Tónlistin í höndum karlakórsins Voces Masculorum með frábærum einsöng Þorsteins Freys Sigurðssonar við píanóundirleik Sveins Arnars Sæmundssonar. Karl V. Matthíasson þjónaði fyrir altari og gerði það fallega og einlæglega og lýsti Auði vel og af virðingu í minningarorðum.
Vignir Jónasson, hestamaður sem ræktað hefur hesta við góðan orðstír í Svíþjóð, er látinn eftir alvarlegt slys í Laholm í gærkvöldi. Hann var 52 ára gamall.
Baráttukonan Guðrún Jónsdóttir er látin 91 árs að aldri. Hún fæddist þann sextánda júní 1931 og lætur eftir sig eina dóttur, Ragnheiði Thorlacius, fyrrverandi héraðsdómara. Hún lést í gær á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi.
Bandaríski leikarinn Adan Canto, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í þáttunum The Cleaning Lady og Designated Survivor, er látinn. Hann varð 42 ára.
Írska stórsöngkonan Sinéad O’Connor lést af náttúrulegum orsökum, að því er krufning hefur leitt í ljós.
Enska knattspyrnusambandið hefur verið að safna upplýsingum til að kanna hvort að reglur sambandsins hafi verið brotnar, í tengslum við lát knattspyrnukonunnar Maddy Cusack sem framdi sjálfsvíg á síðasta ári. Foreldrar hennar krefjast rannsóknar.
Franz Beckenbauer, einn besti fótboltamaður allra tíma, er látinn. Hann var 78 ára.
Gill Catchpole, kaffihúsaeigandi og eiginkona enska tónlistarmannsins James Morrison, fannst látin á heimili þeirra í Gloucesterskíri á föstudag. Hún var aðeins 45 ára gömul að aldri.
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Mário Zagallo lést í gær, 92 ára gamall. Hann hampaði fjórum heimsmeistaratitlum sem leikmaður og síðar þjálfari Brasilíu.
Leikkonan Glynis Johns er látinn hundrað ára að aldri. Leikkonan var hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem frú Banks í kvikmyndinni Mary Poppins. Myndin er frá árinu 1964. Í myndinni söng Johns lagið Sister Sufragette og lék móðir barnanna sem Mary Poppins passaði.
Auður Haralds rithöfundur er látin, 76 ára að aldri. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi í gær eftir stutt veikindi.
Gil de Ferran, brasilískur ökuþór og sigurvegari Indianapolis 500 kappakstursins lést úr hjartaáfalli í gær. Hann var 56 ára að aldri.
Breski leikarinn Tom Wilkinson er látinn. Hann er frægur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við The Full Monty, Shakespeare in Love og The Best Exotic Marigold Hotel. Hann var 75 ára að aldri.
Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu á árinu 2023 sem senn er á enda.
Þórarinn Snorrason, bóndi í Vogsósum 2 í Selvogi, er látinn, 92 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi á jóladag. Hann hafði legið á sjúkrahúsi um mánaðarskeið eftir að hafa lærleggsbrotnað er hann féll við útistörf við fjárhúsin í Vogsósum en þar stundaði hann sauðfjárbúskap.
Austurríski verkfræðingurinn Gaston Glock, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp Glock-skammbyssuna, er látinn. Hann varð 94 ára gamall.
Franski stjórnmálamaðurinn Jacques Delors, sem gegndi embætti formanns framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á níunda og tíunda áratugnum, er látinn. Hann var 98 ára gamall.
Wolfgang Schäuble, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands, er látinn, 81 árs að aldri. Hann var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara á tímum skuldakreppunnar á evrusvæðinu.
Ríkharður Sveinsson, formaður Taflfélags Reykjavíkur, er látinn, 56 ára að aldri. Greint var frá andlátinu á heimasíðu Skáksambands Íslands á dögunum en Ríkharður lést á gjörgæsludeild Landspítalans 20. desember.
Suðurkóreski leikarinn Lee Sun-kyun, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í Óskarsverðlaunamyndinni Parasite, er látinn. Hann varð 48 ára að aldri.
Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda.
Rússneski dansarinn Dmitry Krasilov, betur þekktur undir listamannsnafninu Pukhlyash, er látinn. Krsailov var 29 ára gamall og er hvað þekktastur hér á landi fyrir að hafa dansað í atriði rússnesku sveitarinnar Little Big í Eurovision árið 2020.
Ástralski trommuleikarinn Colin Burgess, sem var fyrsti slagverksleikari rokkhljómsveitarinnar AC/DC, er látinn. Burgess varð 77 ára gamall.
Sjeik Nawaf al-Ahmad al-Sabah, emírinn í Kúveit, er látinn 86 ára að aldri. Hann tók við völdum af bróður sínum árið 2021. Krónprinsinn sjeik Meshal Al Ahmad Al Jaber, 83 ára hálfbróðir emírsins látna, tekur við völdum en hann var elsti krónprins heimsins.
Jeffrey Foskett, langtímameðlimur og gítarleikari hljómsveitarinnar The Beach Boys, er látinn 67 ára að aldri.
Bandaríski leikarinn Andre Braugher, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Brooklyn Nine-Nine, er látinn. Hann varð 61 árs gamall.
Einn ástsælandi vísnasöngvari Norðmanna, Ole Paus, er látinn, 76 ára að aldri.
Gunnþórunn Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari og athafnakona, lést á líknardeild Landakots 1. desember síðastliðinn. Hún var 77 ára gömul.