Hreinsaði tyggjóklessu númer 100.000

Reykvíkingur ársins, Guðjón Óskarsson, náði því markmiði í dag að hreinsa burt hundrað þúsundustu tyggjóklessuna af götum Reykjavíkurborgar. Guðjón réði niðurlögum klessunnar fyrir utan verslunina Brynju á Laugavegi og uppskar lófaklapp fyrir. Næsta markmið Guðjóns eru tæplega þrjú hundruð og fimmtíu þúsund klessur, jafnmargar og Íslendingar verða þegar hann ráðgerir að ná ætlunarverkinu.

445
00:47

Vinsælt í flokknum Fréttir