EAS Þrekmótaröðin - CrossFit leikarnir
CrossFit leikarnir, önnur keppni EAS Þrekmótaraðarinnar, fór fram við skíðabrekkuna í Elliðaárdal 4. júní. Uppbygging CrossFit keppninnar er lauslega byggð á hugmyndafræði CrossFit hvað varðar æfingar og hugtök. EAS Þrekmótaröðin samanstendur af fjórum keppnum yfir árið, Lífstíls meistaranum, CrossFit leikunum, Boot Camp keppninni og 5x5 áskoruninni.