Viðtöl eftir sigurleikinn við Ungverja
Þorsteinn J. sér um upphitun og fylgir eftir leikjum Íslands á HM í Svíðþjóð með ítarlegri umfjöllun um leiki liðsins á Stöð 2 Sport. Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon ræddi við liðsmenn íslenska landsliðsins eftir sigurleikinn gegn Ungverjalandi í dag og voru viðtölin sýnd þætti Þorsteins. Þar var meðal annars rætt við Róbert Gunnarsson, Sverre Jakobsson og markvörðinn Hreiðar Levy Guðmundsson.