Fleiri fréttir

LAN-skattur kynntur til sögunnar í Svíþjóð

Sænskir tölvuleikjaspilarar þurfa nú að kaupa leyfi af sænsku happdrættisstofunni fyrir allt að 600.000,- kr. til að fá að tengja tölvur sínar saman á svokölluðu LAN-móti.

Ísland telst enn til velferðarríkja

Landsframleiðsla á mann hér á landi, leiðrétt fyrir kaupmætti í hverju landi fyrir sig, var 12 prósent yfir meðaltali landa í Evrópusambandinu á síðastliðnu ári. Þetta kemur fram í nýlega birtum tölum frá hagstofu Evrópusambandsins.

iPhone 5 hægvirkastur

iPhone 5 er hægasti snjallsíminn á markaðnum samkvæmt neytendakönnun bresku neytendasamtakanna Which? Síminn hafnaði í sjöunda sæti af sjö mögulegum í könnuninni sem gerð var á vinsælustu snjallsímunum í Bretlandi.

EasyJet veðjar á Airbus A320

Lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur valið Airbus A320neo farþegaþotur sem þann farkost sem stuðst verður við til framtíðar í starfsemi félagsins.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað nokkuð í morgun og er tunnan af Brent olíunni komin í 105,5 dollara. Í gærmorgun stóð tunnan í rúmum 103 dollurum og hefur því hækkað um 2% frá þeim tíma.

Airbus A350 í jómfrúrflugi sínu

Airbus A350 nýjasta farþegaþota evrópska flugvélaframleiðandans Airbus hefur tekið á loft í jómfrúrflug sitt frá flugvellinum við Toulouse í Frakklandi.

Grænar tölur á öllum mörkuðum

Töluverð uppsveifla var á mörkuðum í Japan í nótt en nikkei vísitalan í Tókýó hækkaði um 2,9% eftir að hafa hrapað um 6,4% í fyrrinótt. Í frétt á vefsíðu börsen segir að hækkanir í nótt stafi einkum af því að spákaupmenn hafi séð tækifæri á markaðinum.

Góður gangur hjá Iceland Foods

Sala Iceland Foods jókst um eitt prósent, eða sem nemur 2,64 milljörðum punda á rekstrarárinu sem lauk í marslok. Upphæðin nemur um 498 milljörðum króna.

Aftur hrun á japanska markaðinum

Nikkei vísitalan í Tókýó hrundi um rúmlega 6% í nótt. Þar með hefur vísitalan lækkað um 21% frá því hún náði hámarki undanfarin fimm ár þann 23. maí s.l.

Hobbitinn veldur uppsveiflu á Nýja Sjálandi

Nýjar tölur frá ferðamálastofu Nýja Sjálands sýna að ferðamönnum sem koma til landsins fjölgaði um 10% á fyrstu fjórum mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þessi aukning er að mestu tilkomin vegna kvikmyndarinnar The Hobbit sem frumsýnd var fyrir síðustu jól.

Reyna að þrýsta á leiðtoga G8-ríkjanna

Fjarskiptarisinn Nokia hefur lagst á árar með ONE Campaign í baráttunni gegn fátækt í heiminum með birtingu ljósmynda sem teknar eru á Lumia 920 snjallsíma fyrirtækisins. Að auki gefa tónlistarmenn út á ný þekkta baráttusöngva.

Sparnaðaráætlun SAS virkar, tapið minnkar milli ára

Sparnaðaráætlun SAS sem sett var í gang fyrir áramótin hefur borið þann árangur að tap félagsins hefur minnkað milli ára. Þetta kemur fram í yfirliti um uppgjör SAS fyrir annan ársfjórðung á yfirstandandi rekstrarári félagsins sem birt var í morgun.

Bandarísk kona er launahæsti forstjóri Bretlands

Ný úttekt leiðir í ljós að bandaríska konan Angela Ahrendts var launahæsti forstjórinn í Bretlandi í fyrra. Angela er forstjóri Burberry og námu árslaun hennar rétt tæpum 17 milljónum punda eða tæplega 3,2 milljörðum kr.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar að nýju

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað tvo daga í röð. Í dag hefur verðið lækkað um rúmt prósent miðað við gærdaginn og gildir það bæði um Brent olíuna og bandarísku léttolíuna.

Pihl & Sön stoppar vinnu sína við Hotel d´Angleterre

Byggingarfélagið Pihl & Sön hefur stöðvað alla vinnu sína við endurbæturnar á Hotel d´Angleterre í Kaupmannahöfn. Þessi vinnustöðvun nær einnig til allra undirverktaka sem unnið hafa með Pihl & Sön í hótelinu. Ástæðan er sú að Pihl & Sön hefur ekki fengið neinar greiðslur fyrir vinnu sína í langan tíma.

Spá vaxandi atvinnuleysi í Noregi á næstunni

Samtök atvinnurekenda í Noregi (NHO) spá því að atvinnuleysi fari vaxandi þar í landi fram á næsta ár. Í mars s.l. voru um 100.000 manns á atvinnuleysisskrá en NHO reiknar með að þeir verði orðnir 120.000 innan árs. Þar með myndi atvinnuleysið mælast um 4,4%.

Norski olíusjóðurinn í sögulegum fasteignaviðskiptum

Norski olíusjóðurinn mun eiga í viðræðum við fjárfestingasjóðinn Blackstone um að kaupa hlut Blackstone í fyrirtækjahúsnæðissamstæðunni Broadgate í miðborg London. Ef af kaupunum verður yrðu þau stærstu fasteignaviðskiptin í Bretlandi síðan fyrir hrunið 2008.

Milljarðaklúður þegar bankamaður dottaði yfir lyklaborðinu

Dómstóll í Hessen í Þýskalandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að yfirmanni í banka þar í landi hafi verið ólöglega vikið úr starfi fyrir að koma ekki í veg fyrir milljarðaklúður þegar einn af undirmönnum hans dottaði yfir lyklaborði sínu.

Microsoft lokar 19 holum í Explorer

Microsoft sendir frá sér á morgun nýjan öryggispakka með fimm uppfærslum. Þær eiga m.a. að loka 19 holum eða veikleikum í vafranum Internet Explorer.

S&P bætir lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna

Matsfyrirtækið Standard &Poor´s (S&P) hefur bætt lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna með því að setja horfur úr neikvæðum og í stöðugar. Einkunnin sjálf er eftir sem áður AA+.

Viðskiptajöfnuður Japans tvöfaldast milli ára

Viðskiptajöfnuður Japans í apríl var tvöfaldur á við sama mánuð fyrir ári síðan. Þá eykst landsframleiðsla landsins á muni meiri hraða en áður var spáð og er það rós í hnappagat efnahagsstefnu Shinzo Abe forsætisráðherra landsins.

Kauphallarvélmenni nýttu sér Reuters klúður

Reuters fréttaþjónustan hefur viðurkennt að hafa klúðrað útsendingu á tölum um iðnaðarframleiðsluna í Bandaríkjunum (ISM index) fyrir viku síðan. Tölurnar fóru aðeins 15 millisekúndum of fljótt í loftið en það gátu kauphallarvélmenni, það er hraðvirk tölvukerfi, nýtt sér.

Í máli gegn Forbes vegna stöðu sinnar á auðmannalista

Saudi Arabískur prins og milljarðamæringur hefur höfðað mál gegn Forbes tímaritinu í London. Hann sakar tímaritið um að hafa ekki reiknað auðæfi sín rétt út og að hann eigi að vera ofar á árlegum lista Forbes yfir helstu milljarðamæringa heimsins.

Danski skatturinn krefur Novo Nordisk um 117 milljarða

Dönsk skattayfirvöld hafa krafið lyfjafyrirtækið Novo Nordisk um 5,5 milljarða danskra kr. eða um 117 milljarða kr. vegna vangoldinni skatta á árunum 2005 til 2009. Málið er sem stendur rekið fyrir Ríkisskattarétti landsins (Landssaktteretten).

Olía fundin á Vigdísi

Olíustofnun Noregs hefur tilkynnt að Statoil hafi komið niður á olíu á svæði sem kallast Vigdís í norðurhluta Norðursjávar.

Útbreiðsla dagblaða hrynur í vestri en blómstrar í austri

Stofnunin The World Press Trends, sem safnar upplýsingum um dreifingu dagblaða og tekjur þeirra í 70 löndum, hefur sent frá sér skýrslu þar sem fram kemur að útbreiðsla dagblaða hefur hrunið á Vesturlöndum á meðan hún blómstrar í Asíu.

Frankenstein vafningar vakna til lífs að nýju

Í grein á vefsíðu Financial Times er spurt hvort Frankenstein sé að vakna til lífs að nýju. Hér er átt við áhættusama skuldavafninga, svokallaða CDO, sem eru aftur farnir að skjóta upp kollinum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

easyJet flutti 60 milljón farþega á einu ári

Fleiri en 60 milljónir farþega ferðuðust með flugfélaginu easyJet á tólf mánuða tímabili, miðað við 31. maí 2013. Þetta var í fyrsta skipti sem fjöldi farþega fór yfir 60 milljónir á tólf mánaða tímabili.

Pepsi vill kaupa Sodastream fyrir 240 milljarða

Bandaríski gosdrykkjarisinn Pepsico, sem framleiðir m.a. Pepsi, 7UP og Mountain Dew, á í samningaviðræðum um að kaupa Sodastream sem framleiðir tæki til heimaframleiðslu á gosdrykkjum.

Árás á tölvuþrjóta: Íslenska lögreglan aðstoðar Microsoft og FBI

Íslenska lögreglan, ásamt lögregluyfirvöldum í 80 ríkjum, aðstoðaði tölvurisann Microsoft og bandarísku alríkislögregluna FBI í árás þeirra á einn stærsta glæpahring tölvuþrjóta í heiminum. Hringurinn gengur undir nafninu Citadel Botnets og er talinn hafa rænt um hálfum milljarði dollara, eða yfir 60 milljörðum af bankareikningum undanfarna 18 mánuði.

Íslendingar eru láglaunamenn í Danmörku

Í nýjum tölum um laun útlendinga í Danmörku kemur fram að Íslendingar eru láglaunamenn þar í landi. Íslendingar, ásamt Tyrkjum, eru með sjöundu lægstu launin af öllum útlendingum.

Venesúelabúar kynda undir fasteignabólu í Miami

Efnaðir Venesúelabúar hafa verið áberandi á fasteignamarkaðinum í Miami á Flórída undanfarin ár. Frá því að Samband fasteignasala í borginni fór að skrá sérstaklega kaup erlendra manna á fasteignum árið 2006 hafa Venesúelabúar keypt meira af þeim en bæði Brasilíumenn og Argentínumenn.

Lettar fá grænt ljós á evruna

Evrópski seðlabankinn sendi frá sér tilkynningu í dag um að Lettland uppfyllir allar þær efnahagskröfur sem gerðar eru til ríkja sem vilja taka upp evruna.

Sjá næstu 50 fréttir