Fleiri fréttir

Hagur Pandóru, og Seðlabanka Íslands, vænkast verulega

Danski skartgripaframleiðandinn Pandóra hefur lagt fram rjómauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. Hagnaður eftir skatta nam 438 milljónum danskra kr. eða um 9,2 milljörðum kr. Þetta er 100 milljónum danskra kr. meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra.

Halldór Ragnarsson rekinn sem forstjóri Pihl & Sön

Halldóri P. Ragnarssyni forstjóra danska bygginga- og verktakarisans Pihl & Sön, móðurfélags Ístaks, hefur verið vikið frá störfum. Hann hafði aðeins gengt stöðunni í eitt ár. Ákvörðun þessi var gerð opinber í dag í kjölfar birtingar á blóðrauðu uppgjöri verktakans fyrir síðasta ár.

Fjárfestar spá nýrri evrukreppu í sumar

Meirihluti evrópskra fjárfesta telur að ný evrukreppa muni skella á í sumar. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunnar á vegum matsfyrirtækisins Fitch Ratings.

Fjármálaráðherra endurhannar óskiljanlega undirskrift sína

Jack Lew fjármálaráðherra Bandaríkjanna hefur neyðst til þess að endurhanna undirskrift sína. Áður var hún óskiljanlegt krúsidúllupár sem samanstóð af nokkrum hringjum en nú er undirskriftin orðin það skiljanleg að lesa má nafn ráðherrans.

Hótelkeðjan First Hotels í Danmörku lýst gjaldþrota

Hótelkeðjan First Hotels í Danmörku hefur verið lýst gjaldþrota vegna húsaleiguskuldar hjá hóteli þeirra sem stendur við Österport járnbrautarstöðina í Kaupmannahöfn. Húsaleigan hefur ekki verið greidd í fjóra mánuði og eiganda húsnæðisins, Hotel Österport, er nóg boðið og hefur krafist gjaldþrots keðjunnar.

Vogunarsjóður veðjar á gríska banka, á kröfur á Íslandi

Nokkrir af stærstu vogunarsjóðum heimsins hafa lagt miklar upphæðir í endurreisn gríska bankakerfisins. Þar á meðal er York Capital Management sem á töluverðar kröfur hér á landi, meðal annars í þrotabúi Glitnis en kröfur York Capital í Glitni nema um 100 milljörðum kr. , sjá hér.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar áfram

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækkan en ekki eins hratt og fyrir helgina. Brent olían er komin rétt undir 103 dollara á tunnna og hefur lækkað um 1% frá því fyrir helgi.

Eign Björgólfs Thors í Actavis jókst um 7 milljarða

Hlutir í samheitalyfjafyrirtækinu Actavis hækkuðu á markaðinum í New York um 11,7% á föstudaginn var. Þar með jókst eign Björgólfs Thors Björgólfssonar í Actavis um 7 milljarða króna en eignarhlutur hans nam 60 milljörðum kr. fyrir hækkunina.

Gates kaupir da Vinci handrit fyrir 3,6 milljarða

Bill Gates annar stofnenda Microsoft hefur fest kaup á 500 ára gömlu handriti eftir ítalska snillinginn Leonardo da Vinci fyrir tæplega 31 milljón dollara eða um 3,6 milljarða kr.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert frá því í gærdag eða um 2%. Þannig er tunnan af Brent olíunni komin niður í 102,5 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin niður í rúma 94 dollara.

Opnun á umdeildri brú Ólafs Elíassonar í Kaupmannahöfn frestað

Búið er að fresta opnun á umdeildri brú í Christianshavn í Kaupmannahöfn sem hönnuð er af Ólafi Elíassyni. Brúin sem ber heitið Cirkelbroen átti að vera tilbúin til notkunar í vor en búið er að fresta opnun hennar um óákveðinn tíma að því er segir í frétt í Politiken.

Loksins hagnaður af rekstri FIH bankans

Hagnaður varð af rekstri FIH bankans í Danmörku á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 16 milljónum danskra króna eða um 330 milljónum kr. fyrir skatta. Þetta er besta uppgjör bankans á síðustu 10 ársfjórðungum.

Verk eftir Cezanne selt á 4,9 milljarða

Eitt af þekktari málverkum Paul Cezanne "Le Pommes“ eða Eplin var selt á 41,6 milljónir dollara eða um 4,9 milljarða króna á uppboði hjá Sotheby´s í New York í gærkvöldi.

Frumsýningarhelgi Iron Man 3 sú önnur besta í sögunni

Frumsýningarhelgi myndarinnar Iron Man 3 í Bandaríkjunum er sú önnur besta í sögunni hvað tekjur af miðasölu varðar. Alls voru tekjurnar af myndinni ríflega 175 milljónir dollara eða ríflega 20 milljarðar króna.

Skattar auknir hjá norska olíuiðnaðinum

Norska ríkisstjórnin leggur til að skattbyrðin verði aukin hlutfallslega á olíuiðnaðinn í landinu til að ýta undir vöxt í öðrum geirum atvinnulífsins.

Atvinnuleysistölur á Spáni vekja litla gleði

Nýjar atvinnuleysistölur á Spáni sýna að skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,9% í apríl miðað við fyrri mánuð. Þetta vekur þó litla gleði enda er þessi minnkun tímabundin þar sem veitingahús og hotel hafa verið að ráða fólk til að mæta ferðamannastrauminum í sumar.

Peningarnir flæða inn í kassann hjá Lego

Peningarnir flæða inn í kassan hjá danska leikfangarisanum Lego. Hagnaður Lego á síðasta ári nam tæpum 6,3 milljörðum danskra kr. eða tæplega 130 milljörðum króna eftir skatta. Þetta er hátt í tvöfalt meiri hagnaður en árið áður.

Reikna með 1.500 milljarða hagnaði hjá Toyota

Reiknað er með að bílaframleiðandinn Toyota skili hagnaði upp á 1,3 trilljónir jena eða um 1.500 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu sem lauk í mars s.l. Þetta er nærri fjórfaldur hagnaður miðað við fyrra ár.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar áfram

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og um tíma í morgun fór verðið á Brent olíunni yfir 105 dollara á tunnuna en hefur aðeins gefið eftir síðan.

Konur eru lykillinn að framtíðarauðlegð

Konur eru lykillinn að auðlegð Bandaríkjanna í framtíðinni, segir Warren Buffett, einn auðugasti maður Bandaríkjanna. Hann segist vera bjartsýnn á efnahagsástandið framundan vegna þess að Bandaríkjamenn séu farnir að gera sér grein fyrir mætti kvenna. Þetta sagði hann í grein sem hann ritaði í Fortune tímaritið.

Gott uppgjör hjá Actavis, eign Björgólfs eykst um 1,2 milljarða

Samheitalyfjafyrirtækið Actavis skilaði mun betra uppgjöri á fyrsta ársfjórðungi en sérfræðingar höfðu spáð. Eftir birtingu uppgjörsins hækkuðu hlutir í Actavis um rúm 2% en það þýðir að hlutafjáreign Björgólfs Thors Björgólfssonar jókst um 1,2 milljarða króna á markaðinum í New York í gærdag.

Iron Man 3 slær aðsóknarmet í Kína

Kvikmyndin Iron Man 3 hefur slegið öll fyrri aðsóknarmet í Kína. Tekjurnar af henni námu 21 milljón dollara, eða tæplega 2,5 milljörðum kr., á frumsýningardegi myndarinnar þar í landi.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar töluvert

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkað töluvert eða um rúm 2% í gærdag. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 103 dollara og tunnan af bandarísku léttolíunni er komin yfir 93 dollara.

Stýrivextir í Danmörku komnir niður í 0,2%

Seðlabanki Danmerkur hefur lækkað stýrivexti sína um 0,1 prósentu og eru þeir þar með komnir niður í 0,2%. Hafa þessir vextir aldrei verið lægri í sögu landsins.

Reuters: Þýskaland hagnast vel á kreppunni í Evrópu

Þýskaland hefur hagnast vel á kreppunni í Evrópu sem og flest önnur ríki í norðanverðri álfunni. Á sama tíma hafa stjórnvöld í þessum ríkjum sagt að þau muni ekki þola að skattgreiðendur þeirra borgi með öðrum löndum sem þurft hafa á aðstoð að halda.

Seðlabanki Evrópu lækkar stýrivexti sína

Seðlabanki Evrópu (ECB) lækkaði stýrivexti sína í hádeginu eins og flestir sérfræðingar höfðu búist við. Stýrivextirnir voru lækkaðir um 0,25 prósentur eða niður í 0,5%. Hafa þessir vextir aldrei verið lægri í sögunni.

Ríkustu Rússarnir fela auð sinn á aflandseyjum

Alisher Usmanov auðugasti maður Rússlands færði stjórnina á 20 milljarða dollara auðæfum sínum til eignarhaldsfélags á Bresku Jómfrúreyjum í desember á síðasta ári, en þær eru í tæplega 9.000 kílómetra frá Moskvu.

Sjá næstu 50 fréttir