Fleiri fréttir

Fréttaskýring: Vesturlönd í vanda en Asía dregur vagninn

Á meðan staða efnahagsmála á Vesturlöndum, þ.e. í Evrópu og Bandaríkjunum, einkennist af erfiðleikum og veikum eða neikvæðum hagvexti, er staðan að lagast víða í Asíu. Þetta sýnir ítarleg umfjöllun The Economist, en sérrit blaðsins um horfur í efnhagsmálum og stjórnmálum á alþjóðavísu fyrir árið 2013, kom út í vikunni.

Apple í hart við Samsung

Barátta tæknirisanna Apple og Samsung virðist engan endi ætla að taka. Apple hefur nú bætt sex nýlegum spjaldtölvum og snjallsímum Samsung á lista yfir raftæki sem sögð eru brjóta á hugverkarétti.

Eignir 16 auðugustu kvenna í Danmörku nema 1.300 milljörðum

Í úttekt sýnir að 16 danskar konur eru milljarðarmæringar í dönskum krónum og eiga þær samtals 59 milljarða danskra króna eða tæplega 1.300 milljarða króna í hreinum eignum en sú upphæð slagar hátt upp í landsframleiðslu Íslands.

Bandaríkjamenn berjast um snjallsíma á svörtum föstudegi

Bandaríkjamenn gæddu sér á kalkúni, graskersbökum og öðru góðgæti í gær en þá gekk þakkargjörðarhátíð í garð. Um er að ræða stærstu ferðaviku ársins í Bandaríkjunum. Talið er að um 43 milljónir Bandaríkjamanna hafi verið á faraldsfæti í vikunni.

Danir halda áfram að auka við sparifé sitt

Almenningur í Danmörku heldur áfram að auka við sparifé sitt. Nýjar tölur frá seðlabanka landsins sýna að sparnaðurinn jókst um 36 milljarða danskra króna eða um nærri 800 milljarða króna á síðustu 12 mánuðum.

Dráttarvextir hækka í 13%

Dráttarvextir hafa verið hækkaðir um 0,25 prósentur og verða því 13% í desembermánuði.

Danir kaupa níu Seahawk þyrlur af bandaríska flotanum

Meirihluti danska þingsins hefur samþykkt að danski herinn fái að kaupa níu Sikorsky Seahawk þyrlur frá bandaríska flotanum. Kaupverðið er um fjórir milljarðar danskra kr. eða vel yfir 80 milljörðum kr.

Ekkert samkomulag um næstu greiðslu til Grikkja

Ekkert samkomulag náðist á fundi fjármálaráðherra evrusvæðisins í Brussel í gær um útborgun á næsta hluta neyðarláns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins til Grikkja.

Forsætisráðherra Spánar horfir til Suður-Ameríku eftir fjárfestingu

Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy, horfir nú til Suður-Ameríku þegar kemur að að því að efla erlenda fjárfestingu, en í ræðu sem hann hélt á laugardaginn sagði hann að spænsk yfirvöld myndu taka fjárfestingu frá Suður-Ameríku "opnum örmum“. Greint er frá ræðu hans í The New York Times í dag.

Cisco að kaupa Meraki fyrir 152 milljarða

Cisco systems, sem er stærsti framleiðandi hugbúnaðar fyrir netið á heimsvísu, er að ganga frá kaupum á bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu Meraki fyrir um 152 milljarða króna (1,2 ma. dala), en það fyrirtæki einblínir á þjónustu sem hjálpar fyrirtækjum að stýra netnotkun. Meraki hefur vaxið hratt en að sögn breska ríkisútvarpsins BBC, er litið til þess að sú starfsemi sem Meraki hefur boðið upp muni vaxa hratt á næstu árum.

Heimsmarkaðsverð á olíu hækkar töluvert

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað töluvert yfir helgina eða um allt að 1,5%. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 110 dollara og tunnan af bandrísku léttolíunni er komin í tæpa 88 dollara.

Helmingslíkur á að hægt verði að bjarga SAS

Fundað er um það í kvöld hvort hægt verði að bjarga SAS flugfélaginu frá gjaldþroti. Fram kemur á viðskiptavefnum epn.dk að von sé á niðurstöðu um klukkan ellefu í kvöld að íslenskum tíma. Forstjóri félagsins hefur sagt að það séu um helmingslíkur á því að hægt verði að bjarga félaginu. Áður en niðurstaða liggur fyrir þurfa stjórnendur SAS og starfsmenn að vera sammála um niðurskurðaraðgerðir. Þar er meðal annars um að ræða lækkun launa og skerðingu á lífeyrisréttindum. Stjórnendur SAS segjast ætla að senda tilkynningu þegar niðurstaða hefur fengist.

JP Morgan og Credit Suisse greiddu 55 milljarða í sektir

Tveir af stærstu bönkum heims, JP Morgan Chase og Credit Suisse, greiddu samtals 417 milljónir dala, jafnvirði um 55 milljarða króna, í sektir til fjármálaeftirlitsins í New York, vegna sölu bankanna á skuldatryggingum er tengjast húsnæðislánum til fjárfesta, en eignirnar reyndust því sem næst verðlausar eignir.

Segja SAS aðeins nokkrum vikum frá gjaldþroti

Danskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að í raun sé SAS flugfélagið aðeins nokkrum vikum frá því að verða gjaldþrota. Áður hefur komið fram í fréttum að ríkisstjórnir Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs séu farnar að undirbúa sig undir gjaldþrot SAS.

Nokia í verulegum vanda

Sala á snjallsímum eykst stöðugt, en Nokia símaframleiðandinn á í vök að verjast. Tölur frá greiningafyrirtækinu Gartner sýna að snjallsímasala jókst um tæp 47% á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabili í fyrra. Sala á öðrum farsímum dróst hins vegar saman um 3,1%.

Klámmyndaframleiðendur vilja yfirgefa Los Angeles

Klámmyndaframleiðendur í Los Angeles eru nú að íhuga að flytja starfsemi sína úr borginni. Ástæðan er sú að borgarbúar samþykktu nýlega í atkvæðagreiðslu að héðan í frá yrði það skylda að karlleikarar í klámmyndum notuðu smokka.

SAS fækkar starfsmönnum um 40%

Norræna flugfélagið SAS mun á næstunni fækka starfsmönnum sínum um 40% eða um 6.000 manns með uppsögnum og sölu dótturfélaga. Þá verða laun og lífeyrisgreiðslur starfsmanna lækkuð til að létta undir rekstri félagsins sem á í verulegum fjárhagsvandræðum.

Spænskir bankar hætta að bera fólk út af heimilum sínum

Spænskir bankar hafa ákveðið að hætta við að bera fólk út af heimilum sínum eftir að viðkomandi hefur tapað fasteign sinni í hendur banka á nauðungaruppboði. Mun þetta sjálfskipaða bann við útburði fólks af heimilum sínum á Spáni gilda næstu tvö árin.

Grikkir þurfa lengri tíma og meira fé

Í minnisblaði sem sett var saman fyrir fjármálaráðherra ríkja á evrusvæðinu, sem nú funda í Brussell, kemur fram að grísk stjórnvöld þurfi að fá 32 milljarða evra, jafnvirði um 5.200 milljarða króna, til viðbótar við lán sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa þegar veitt til landsins vegna efnahagsvanda.

SAS rekur 800 manns og lækkar laun um 15%

SAS flugfélagið hefur ákveðið að reka 800 starfsmenn til að byrja með og lækka laun almennt um 15%. Til lengri tíma á að fækka starfsmönnum SAS úr 15.000 og niður í 9.000.

Verð á gulli hækkar

Verð á gulli hefur farið hækkandi undanfarin misseri á mörkuðum í Bandaríkjunum. Svo virðist sem fjárfestar séu farnir að veðja á að verðbólga muni aukast í Bandaríkjunum og verð á gulli hækka, að því er segir á vef Wall Street Journal (WSJ).

Sjá næstu 50 fréttir