Fleiri fréttir

iPhone 5 væntanlegur á næstu dögum

Sá orðrómur er nú í hámæli að Apple hyggist sleppa frá sér nýrri útgáfu af iPhone 12. september og "iPad mini" - smækkaðri gerð af spjaldtölvunni vinsælu - einhvern tíma í október.

Kínverjar kaupa Airbus vélar fyrir 420 milljarða

Kínversk stjórnvöld hafa gengið frá samningi við flugvélaframleiðandann Airbus um kaup á 50 flugvélum fyrir um 3,5 milljarða dala, eða sem nemur um 420 milljörðum krónum. Gengið var frá kaupunum á fundi sem skipulagður var í tengslum við opinbera tveggja daga heimsókn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, til Kína.

Apple og Google leggja niður vopn í einkaleyfadeilu

Talið er að tæknirisarnir Apple og Google hafi nú samið um vopnahlé en stjórnarformenn og aðrir hátt settir stjórnendur fyrirtækjanna hafa fundað síðustu daga um hönnun snjallsíma og vernd hugverka.

Eiffel turninn er verðmætasta mannvirki Evrópu

Mannvirki sem trekkja að ferðamenn geta verið fjárhagslega mikils virði sem slík. Ítalskir talnaspekúlantar tóku sig til á dögunum og reiknuðu út fjárhagslegt virði nokkurra helstu mannvirkja heims. Þar trónir Eiffel turninn á toppnum, en turninn er 67 billjóna króna virði miðað við frétt Túrista.is.

Amazon kynnir nýja spjaldtölvu í næstu viku

Vefverslunin og tæknifyrirtækið Amazon tilkynnti í dag að spjaldtölva félagsins, Kindle Fire, væri ekki lengur fáanleg. Talið er að Amazon hafi nú hætt allri framleiðslu á spjaldtölvunni.

Meðstofnandi Facebook losar sig við hlutabréf

Dustin Moskovitz, meðstofnandi Facebook og fyrrverandi herbergisfélagi Mark Zuckerberg, seldi í dag 450 þúsund bréf í samskiptamiðlinum. Moskovitz fékk 8.7 milljónir dollara í sinn hlut fyrir bréfin eða það sem nemur tæplega 1.1 milljarði íslenskra króna.

Antony Jenkins ráðinn forstjóri Barclays

Antony Jenkins hefur verið ráðinn nýr forstjóri breska bankans Barclays. Bob Daimond, fyrrum forstjóri bankans, sagði starfi sínu lausu eftir að bankinn viðurkenndi stórfelld lögbrot sem snéru að fölsun vaxtaálags á skuldir bankans. Bankinn greiddi 290 milljónir punda, tæplega 56 milljarða króna, í sekt til breska fjármálaeftirlitsins vegna málsins.

Sony reynir á ný við spjaldtölvumarkaðinn

Tækniráðstefnan IFA í Berlín stendur nú sem hæst. Raftækjaframleiðandinn Sony kynnti í gær nýja vörulínu en þar á meðal er vatnsheld spjaldtölva og þrír spánýir snjallsímar.

Samsung gefur ekkert eftir - kynnir nýja vörulínu

Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung kynnti nýjustu vörulínu sína á IFA tækniráðstefnunni í Berlín í gær. Enginn uppgjafartónn er í Samsung, þrátt fyrir slæma niðurstöðu í dómsmáli gegn Apple á dögunum.

Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim.

Eyjafjallajökull? - Google skilur nú íslensku

Íslensku hefur nú verið bætt við raddleit tæknirisans Google. Háskólinn í Reykjavík og Máltæknisetur hafa unnið að verkefninu síðustu ár og það í samstarfi við Google. Notendur geta nú nýtt sér þessa þjónustu. Trausti Kristjánsson, athafnarmaður og starfsmaður Google, segir tæknina bjóða upp á margskonar möguleika.

Velgengni Amazon nær nýjum hæðum

Vefverslunarrisinn Amazon tilkynnti fyrr í vikunni að rafbækur sem einskorðaðar eru við Kindle-lesbrettið hafa verið keyptar, halað niður og lánað rúmlega hundrað milljón sinnum. Rétt rúmlega 180 þúsund rafbækur eru á bókaskrá Amazon.

Lögbannskrafa á hendur Samsung tekin fyrir í desember

Krafa Apple, um að nokkrir snjallsímar raftækjafyrirtækisins Samsung verði teknir af markaði í Bandaríkjunum, verður tekin fyrir af dómstólum í desember á þessu ári. Upphaflega var áætlað að krafan yrði tekin fyrir í næsta mánuði.

Repúblikanar skoða gullfót undir dalinn

Repúblikanaflokkurinn, annar af stóru flokkunum tveimur í Bandaríkjunum, hyggst kalla eftir því í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar í haust að stofnuð verði nefnd til að skoða tengingu Bandaríkjadals við gullfót.

Samkomulag um sparnaðaraðgerðir í Grikklandi

Grísku stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um víðtækar sparnaðaraðgerðir í ríkisfjármálum landsins en þessar aðgerðir eru skilyrði þess að landið fái áframhaldandi neyðaraðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Verkfall boðað sem lamar starfsemi Lufthansa

Allar líkur eru á að starfsemi þýska flugfélagsins Lufthansa, sem er það stærsta í Evrópu, muni lamast á næstunni þar sem verkfall um 19.000 flugliða er framundan hjá félaginu.

Fjölmiðlageirinn að breytast hratt

Tækniframfarir hafa opnað fyrir nýja möguleika á miðlun efnis með ýmsum hætti. Sérstaklega er það ör útbreiðsla snjallsíma og spjaldtölva sem er að valda miklum breytingum.

Slagurinn harðnar - Apple krefst lögbanns á Samsung síma

Fjarskipta- og hugbúnaðarrisinn Apple hefur krafist lögbanns á sölu á Samsung símum, en krafan var lögð fram í Kaliforníu, þar sem höfuðstöðvar Apple eru, seinni partinn í gær. Krafan byggir á niðurstöðu dómstóla í Bandaríkjunum um að Samsung hafi brotið gegn Apple með því að nýta sér höfundarréttarvarinn hugbúnað fyrirtækisins. Var Samsung gert að greiða einn milljarða dala, jafnvirði um 120 milljarða króna, í sekt vegna málsins.

Forsvarsmenn Samsung ætla að grípa til varna

Forsvarsmenn tæknirisans Samsung ætla að grípa til varna og gera "allt sem hægt er til þess að verja fyrirtækið“, að því er segir í minnisblaði sem stjórn Samsung sendi starfsmönnum fyrirtækisins fyrr í dag.

Allt fellur með Norðmönnum - finna enn meira af olíu

Norska olíufyrirtækið Statoil, þar sem norska ríkið á tæplega 70 prósent eignarhlut, staðfesti í morgun að félagið hefði fundið vinnanlega olíu á svokölluðu Geitungen-svæði, sem er nærri Johan Sverdrup-svæðinu í Norðursjó.

Aukinn áhugi á Surface eftir sigur Apple

Talið er að niðurstaðan í dómsmáli Apple gegn suður-kóreska raftækjaframleiðandanum Samsung muni greiða veginn fyrir Microsoft. Tæknirisinn hefur brátt inngöngu sína inn á spjaldtölvumarkaðinn.

Hlutabréf í Samsung falla í verði

Hlutabréf í suður-kóreska fyrirtækinu Samsung, sem sektað var um einn milljarð dala, liðlega 120 milljarða króna, fyrir að nýta sér höfundarréttarvarinn hugbúnað Apple í Galaxy-símum fyrirtækisins, féllu um sjö prósent í fyrstu viðskiptum þegar markaðir opnuðu í Asíu í morgun.

Nýjar höfuðstöðvar Facebook slá öllu við

Facebook heldur áfram að vaxa, en í þetta sinn eru það híbýli fyrirtækisins sem stækka. Nýverið tilkynnti fyrirtækið að stjörnu-arkitektinn Frank Gehry myndi hanna nýjar höfuðstöðvar Facebook ætlaðar fyrir 3.400 starfsmenn.

Samsung ætlar að áfrýja

Samsung mun áfrýja dómnum frá því í gær þar sem fyrirtækið var dæmt til að greiða tölvurisanum Apple einn milljarð bandaríkjadala, eða 120 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur fyrir að hafa rænt hugmyndum af fyrirtækinu.

Samsung þarf að borga Apple 120 milljarða

Raftækjarisinn Samsung var í gærkvöldi dæmdur af bandarískum dómsstól til þess að borga tölvurisanum Apple einn milljarð bandaríkjadala, eða sem nemur 120 milljörðum íslenskra króna í skaðabætur fyrir að brot á hugverkarétti.

Kaup Facebook á Instagram staðfest

Alríkisráð viðskiptamála í Bandaríkjunum hefur samþykkt kaup Facebook á smáforritinu Instagram. Tilkynnt var um kaupin fyrir rúmlega fjórum mánuðum og var kaupverðið metið á einn milljarð dala. Nú er hins vegar ljóst að upphæðin er mun minni eða 747 milljónir dollara, eða það sem nemur 89 milljörðum íslenskra króna.

Færeyingar ætla sér umskipunarhöfnina

Færeyskir ráðamenn vinna nú ötullega að því að gera Færeyjar að umskipunarhöfn vegna siglinga um Norðurpólinn og er búist við að málið verði rætt við kínverska sendiherrann í Danmörku, sem nú er í heimsókn í Færeyjum. Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Johannesen, fjallaði sérstaklega um málið í ræðu á Ólafsvökunni, þjóðhátíð Færeyinga, í síðasta mánuði, og kom þar glöggt fram að hann sér fram á mikil tækifæri fyrir Færeyjar þegar siglingaleiðin opnast yfir Norðurpólinn.

Ferðamannaiðnaður á Spáni í blóma

Ferðamannaiðnaðurinn blómstrar á Spáni en aldrei hafa jafn margir ferðamenn sótt landið heim og í síðasta mánuði. Mesta aukningin er meðal þýskra ferðamanna. Ferðamannaheimsóknum fjölgar um 4,4% milli ára en alls komu 7,7 milljónir ferðamanna til Spánar í júlí. Ferðamannaiðnaðurinn er ein mikilvægasta atvinnugreinin í landinu, en 10% af vergri landsframleiðslu kemur frá greininni.

Egyptaland fer fram á lán frá AGS

Mohamed Mursi, forseti Egyptalands, hefur beðið Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um aðstoð. Forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins greindi frá þessu að loknum fundi með forsetanum í Kaíró í dag.

Finnar í sóknarhug

Þrátt fyrir erfiðleika í Evrópu hafa Finnar náð að halda lánshæfismati sínu í góðu, en ríkissjóður landsins hefur enn AAA-lánshæfiseinkunn frá stærstu lánshæfismatsfyrirtækjum landsins. Það er þó ekki þar með sagt að allt gangi vel, eða sé auðvelt.

Vilja fá lengri frest til að greiða skuldir

Antonis Samaras, forsætisráðherra Grikklands, segir nauðsynlegt að gríska ríkið fái lengri tíma til að vinna sig út úr efnahagsþrengingum. Lánadrottnar eigi að gefa þeim lengri frest til að greiða skuldir sínar. Í dag mun forsætisráðherran funda með Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar og forseta Efnahags- og myndbandalags Evrópu, þar sem rætt verður um skuldavanda landsins. Grikkjum ber að skera niður ríkisútgjöld um 11,5 milljarða evra á næstu tveimur árum, að því er fram kemur á vef BBC.

Tekjur Best Buy falla saman - keppinautar á netinu að vaxa

Gengi hlutabréfa í raftækjaverslunarrisanum Best Buy féll um 9 prósent í dag eftir að uppgjör félagsins fyrir annan fjórðung þessa árs var birt, en það sýndi tekjuminnkun frá fyrra ári um 12 milljónir dala, eða sem nemur um 1,4 milljörðum króna.

Fréttaskýring: Blóðugur bardagi Facebook við fjárfesta

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því samfélagsmiðillinn Facebook var skráður á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum, 18. maí sl. Gengi bréfa félagsins er tæplega 20 dalir á hlut en við skráningu var félagið verðmetið á 38 dali á hlut, eða næstum tvöfalt meira en verðlagning þess á markaði nú segir til um. Miðað við skráningargengið var félagið verðmetið á 104 milljarða dala, eða sem nemur liðlega 12.500 milljörðum króna. Nú er þessi verðmiði tæplega helmingi lægri eða sem nemur 6.500 milljörðum króna.

Soros kaupir tæplega tvö prósent hlut í Man. Utd.

Hinn 82 ára gamli áhættufjárfestir, George Soros, hefur nú veðjað á Manchester United í fjárfestingum sínum, en hann hefur keypt tæplega 2 prósent hlut í félaginu fyrir ríflega 40 milljónir dala, eða sem nemur tæplega fimm milljörðum króna, að því er greint er frá í fréttum breska ríkisútvarpsins BBC.

Ævintýralegur uppgangur Apple

Hugbúnaðar- og fjarskiptarisinn Apple varð í gær verðmætasta fyrirtæki sögunnar, þegar markaðsvirði þess, miðað við gengi hlutabréfa félagsins, fór í 622 milljarða dala, eða sem nemur tæplega 78 þúsund milljörðum króna.

Fjármálaráðuneytið vísar ásökunum Víglundar á bug

Fjármálaráðuneytið hafnar því að hafa ekki brugðist við málaleitan Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi forstjóra BM Vallár. Á blaðamannafundi í dag sagði Víglundur að ráðuneytið hefði neitað að veita upplýsingar um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþing hf. yfir í Ariobanka.

BBA ætlar að selja Stansted flugvöll

Rekstrarfélagið BBA, sem rekur flugvelli víðs vegar um Bretland, hefur ákveðið að selja Stansted flugvöll í útjaðri London. Félagið hefur átt í deilum við samkeppnisyfirvöld í Bretlandi frá árinu 2009, en þau fóru fram á að BBA seldi Stansted til þess að örva samkeppni á flugvallareksturssviði, en félagið hefur rekið sjö flugvelli í Bretlandi þar sem um 60 prósent af flugfarþegum fer um að hverju ári. Á meðal þeirra eru Heathrow flugvöllur og Gatwick, auk Stansted flugvallar.

Rússar í „yfirgír“

Sjóðsstjórinn John Connor, segir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að olíuiðnaðurinn í Rússlandi hafi mikil áhrif á efnahag landsins, mun meiri en fyrir nokkrum árum síðan.

Gengi bréfa Facebook fellur enn

Gengi bréfa í Facebook féll í gær um tæplega 6,3 prósent og fór gengið við það niður fyrir 20 dali á hlut, en þegar bréf samfélagsmiðilsrisans voru tekin til viðskipta, í maí síðastliðnum, var gengið 38 og það hefur því lækkað nær látlaust.

Sjá næstu 50 fréttir