Fleiri fréttir

EasyJet í hópmálsókn vegna eldgossins

Lággjaldaflugfélagið EasyJet hyggst fara í hópmálsókn til þess að fá bætur vegna flugbanns sem flugmálayfirvöld í Evrópu lögðu á í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. EasyJet á í viðræðum við önnur flugfélögum um að taka þátt í málsókninni gegn flugmálayfirvöldum. Þetta kemur fram í frétt Timesonline.

Aberdeen ræður fyrrum Kaupþingsstjóra í Finnlandi

Pia Michelsson hefur verið ráðin sem yfirmaður viðskiptaþróunar í Finnlandi hjá eignaumsýslufélaginu Aberdeen. Pia Michelsson var áður aðstoðarframkvæmdastjóri Kaupthing Bank í Finnlandi.

Hver Dani á tæpar 4 milljónir í sparifé

Frændur vorir Danir hafa verið iðnir við að spara frá því að fjármálakreppan skall á landinu árið 2008. Nú á hver Dani að meðaltali 179.000 danskar kr. inn á bankareikningum eða tæplega 4 milljónir kr.

Áfram dregur úr atvinnuleysi í Danmörku

Atvinnuleysi í Danmörku heldur áfram að minnka en milli mánaðanna mars og apríl fór það úr 4,2% og niður í 4,1% sem þýðir að 114.300 manns hafi verið atvinnulausir í apríl.

Alcoa segir Norðmenn þurfa samkeppnishæft orkuverð

Álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaráls, segir að norsk stjórnvöld verði að stuðla að því að orkuverð í Noregi sé samkeppnishæft á alþjóðavísu ef takast á að laða að frekari fjárfestingar í áliðnaði til landsins.

Pólverjar vilja fá seðlabankastjóra frá AGS

Bronislaw Komorowski starfandi forsætisráðherra Póllands vill að næsti seðlabankastjóri landsins verði Marek Belka. Belka gegnir sem stendur starfi forstjóra Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).

Asda kaupir Netto í Bretlandi fyrir 146 milljarða

Dansk Supermarket hefur selt Netto verslanir sínar í Bretlandi til Asda Stores Ltd. Um er að ræða 193 verslanir og staðgreiddi Asda 6,8 milljarða danskra kr. eða um 146 milljarða kr. fyrir þær.

Ætlar að breyta öryggisstillingum á Fésbókinni

Mark Zuckerberg, stofnandi Fésbókarinnar, segist ætla að breyta öryggisstillingum á vefsíðunni. Tilgangurinn er að bregðast við gagnrýni frá notendum. Zuckerberg viðurkennir að öryggisstillingarnar séu orðnar of flóknar. Nauðsynlegt sé að einfalda þær. Hann sagðist, í samtali við

Apple orðið stærra en Microsoft

Apple fyrirtækið, sem framleiðir iPod og iPhone, er orðið stærra en Microsoft og þar með stærsta tæknifyrirtæki í heiminum.

Sumir sjá tækifæri í fallinu

Helstu hlutabréfavísitölur í kauphöllum í Asíu og Evrópu leituðu upp á við í gær. Netútgáfa Börsen segir fjárfesta hafa séð tækifæri í hagstæðu gengi eftir verðfall síðustu daga.

Markaðir aftur í uppsveiflu eftir hrun

Hlutabréfamarkaðir beggja vegna Atlantshafsins eru aftur í uppsveiflu eftir hrun undanfarna tvo daga. Góðar hækkanir voru í Evrópu í dag og opnunin á Wall Street fylgir lit.

Markaðshlutdeild Iceland eykst á Bretlandseyjum

Markaðshlutdeild Iceland verslunarkeðjunnar á Bretlandseyjum jókst úr 1,7% og í 1,9% eða um 0,2 prósentustig á þriggja mánaða tímabili fram til 16. maí s.l. Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá markaðsrannsóknafélaginu Nielsen.

Aalborg Portland í Danmörku fékk ólöglegan ríkisstyrk

Framkvæmdastjórn ESB metur það svo að tveggja ára gömul löggjöf sé í raun ólöglegur ríkisstyrkur til sementframleiðandans Aalborg Portland í Danmörku. Aalborg Portland muni hagnast um 100 milljónir danskra kr. eða tæpa 2,2 milljarða kr. þar sem löggjöfin losaði fyrirtækið undan greiðslum á mengunargjöldum.

Seðlabankar verða að vera sjálfstæðir

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir að seðlabankar hvarvetna í heiminum verði að geta tekið ákvarðanir um stýrivexti án afskipta stjórnmálamanna. Hann segir að ef sjálfstæði seðlabanka sé skert leiði það til efnahagslegs óstöðugleika.

Blóðbað á Wall Street

Hlutabréf hafa lækkað mikið á mörkuðunum á Wall Street frá því þeir opnuðu nú eftir hádegið. Dow Jones vísitalan hefur lækkað um 3% og Nasdag er 3,2% í mínus í fyrstu viðskiptum dagsins.

Straumur selur 10% í viðbót í West Ham

Straumur hefur selt þeim félögum David Sullivan og David Gold 10% hlut í enska úrvaldsdeildarliðinu West Ham og eiga þeir því nú 60% í félaginu. Sullivan og Gold borguðu 8 milljónir punda eða rúman 1,5 milljarð kr. fyrir 10% að því er segir í frétt í Guardian um málið.

Lego veðjar á Prince of Persia í Bandaríkjunum

Lego í Danmörku, stærsti leikfangaframleiðandi Evrópu, ætlar að veðja á kvikmyndina Prince of Persia til að tvöfalda sölu sína á Bandaríkjamarkaði á næstu fimm árum. Ætlunin er að setja Legokubbasett á markaðinn í Bandaríkjunum sem yrði byggt á myndinni.

Norðursjávarolían undir 70 dollara á tunnuna

Verð á Norðursjávarolíunni fór undir 70 dollara á tunnuna í morgun en það hefur ekki gerst síðan í febrúar s.l. Verðið stendur nú í 69,7 dollurum sem er lækkun um 2,1%. Bandaríska WTI olían selst nú á 68,6 dollara tunnan en verið á henni fór undir 70 dollara fyrir helgina.

Verðfall á öllum mörkuðum

Verð hafa fallið á öllum helstu hlutabréfa í heiminum frá því í gærkvöldi. Í morgun opnuðu allar helstu kauphallir Evrópu í rauðu eftir svipaða þróun í Asíu í nótt.

AGS hefur þungar áhyggjur af Spáni

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lýst yfir miklum áhyggjum yfir veiku hagkerfi Spánar og segir ríkið langt því frá að ná nauðsynlegum umbótum til þess að rétta af efnahagskerfið sem hefur mátt þola þung högg undanfarið.

Nígeríumaður vill hlut í Arsenal

Nígerískur auðjöfur að nafni Aliko Dangote á í viðræðum um kaup á 16% hlut í enska knattspyrnuliðinu Arsenal. Hluturinn sem er til sölu er í eigu Lafði Ninu Bracewell-Smith, en hún er fjórði stærsti hluthafinn í

Heimsins dýrasta frímerki selt

Heimsins dýrasta frímerki var selt á uppboði í Genf í gær, fullyrðir Ritzau fréttastofan. Frímerkið er svokallaður „Gulur þrískildingur“ og er hluti af frímerkjaröð sem byrjað var að gefa út í Svíþjóð árið 1855. Gulur þrískildingur var prentaður í grænu. Það sem gerir eintakið sem seldist um helgina svo sérstakt er að það var óvart prentað í gulum lit.

Neðri deildin samþykkti björgunarpakkann

Neðri deild þýska þingsins samþykkti í gær hlut Þýskalands í eitt þúsund milljarða evra björgunarpakka í Evrópu. Angela Merkel, kanslari, hafði varað við því að evran væru í hættu. „Ef evran bregst þá bregst Evrópa," sagði Merkel fyrr í vikunni þegar hún hvatti neðri deild þingsins til að samþykkja hlut Þýskalands. 319 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu en 73 á móti.

Betur horfir í efnahagslífinu

Bankastjórn japanska seðlabankans ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,1 prósenti. Almennt var reiknað með þessari ákvörðun bankastjórnarinnar í skugga hræringa á fjármálamörkuðum.

Hertar reglur um bankana

Öldungadeild Bandaríkjanna samþykkti á fimmtudag nýjar og strangar reglur um fjármálastarfsemi, sem eiga að koma í veg fyrir nýtt hrun.

Tíundi hver banki vestan hafs í vandræðum

Tíundi hver banki í Bandaríkjum er í fjárhagsvandræðum. Þetta sýna tölur úr uppgjörum í bandaríska bankakerfinu fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs.

Böndum komið á fjármálakerfi Bandaríkjanna

Bandaríska öldungadeildin hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér mestu umbætur á fjármálareglum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum frá fjórða áratugi síðustu aldar.

British Airways tapa sem aldrei fyrr

Breski flugrisinn British Airways skírði frá mesta tapi í sögu félagsins í dag. Félagið tapaði 531 milljónum sterlingspunda eða rétt tæplega hundrað milljörðum íslenskra króna síðasta reikningsárið sem laik í mars.

Veislan á Wall Street stöðvuð

Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi nýtt frumvarp sem setur verulegar skorður á fjármálastarfsemi banka, fyrirtækja og félaga í Bandaríkjunum. Samþykktin þykir töluverður sigur fyrir Barack Obama bandaríkjaforseta enda málið eitt af stefnumálum hans í síðustu kosningum.

Álverðið lækkar mikið, komið undir 2.000 dollara á tonnið

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hríðfallið undanfarin mánuð og er nú komið undir 2.000 dollara á tonnið. Verðið m.v. þriggja mánaða framvirka saminga stendur nú í 1,997 dollurum á tonnið. Hefur verðið ekki verið lægra í ár síðan í febrúar.

Angela Merkel veldur dýfu á evrópskum mörkuðum

Sú ákvörðun stjórnar Angelu Merkel kanslara Þýskalands að banna ákveðnar tegundir af skortstöðum á þýska markaðinum hefur valdið því að hlutabréfamarkaðir um alla Evrópu byrja daginn í frjálsu falli.

ESB þrengir reglur um fjárfestingar- og vogunarsjóði

Löndin innan ESB eru sammála um þörfina á því að herða og þrengja reglurnar um starfsemi fjárfestingar- og vogunarsjóða innan landamæra sambandsins. Fjármálaráðherrar ESB hafa samþykkt að unnið skuli að nýjum reglum um þessa sjóði og að þær eigi að lögfesta árið 2012.

Svissneskur franki ekki lengur flóttaleið í óvissuástandi

Sókn alþjóðlegra fjárfesta í gjaldmiðlana Kanadadollar og jen er hefðbundin flóttaleið í óvissuástandi, en svissnenskur franki er vanalega einnig í þeim hópi. Nú hafa fjárfestar forðast hann vegna tengsla við Evrópu.

Prófessor líkir Grikklandi við Lehman

Efnahagsvandi Grikkja, Portúgals og Spánar mun ganga af evrunni dauðri. Þetta segir breski hagsöguprófessorinn Niall Ferguson í grein í nýjasta hefti vikuritsins Newsweek.

Miðlarar veðja á að evran veikist áfram

Gengi evrunnar gagnvart dollaranum hefur ekki verið veikara í fjögur ár. Gjaldeyrismiðlarar veðja á að gengið muni veikjast enn frekar en fram kemur á Bloomberg fréttaveitunni að verðið fyrir að tryggja sig gegn frekari veikingu evrunnar hefur ekki verið hærra í sjö ár.

Verkfall áfram hjá Carlsberg, bjórþurrkur hjá Dönum

Meiri harka er nú hlaupin í verkfallsaðgerðir starfsmanna brugghússins Carlsberg í Danmörku en starfsmennirnir samþykktu að halda verkfalli sínu áfram á stórum fundi í morgun. Danskar verslanir og krár eru að verða uppiskroppa með Carlsberg og Tuborg bjóra.

Olíuverð lækkar hratt, tunnan fór undir 70 dollara

Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að lækka á töluverðum hraða og fór í morgun undir 70 dollara á tunnuna. Verðið stendur nú í rétt rúmum 70 dollurum. Það er einkum ótryggur efnahagur í Evrópu sem veldur þessum lækkunum.

Sjá næstu 50 fréttir