Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lykiltölur valda ótta hjá fjárfestum á Wall Street Háskólinn í Michigan birti í dag nýja væntingavísitölu meðal bandarískra neytenda og olli hún ótta meðal fjárfesta á Wall Street sem tóku til við að selja hluti af miklum ákafa þannig að vísitölur þar fóru í mínus. 16.10.2009 15:21
Makríldeila Norðmanna og ESB tekur nýja stefnu Deila Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðar á makríl í lögsögu ESB tók nýja stefnu í gær er norsk stjórnvöld sendu öllum aðildarlöndum sambandsins bréf, þar sem hvatt er til þess að þau beiti sér fyrir því opnað verði fyrir makrílveiðar innan lögsögu ESB að nýju. 16.10.2009 10:41
Sjælsö Gruppen að rétta úr kútnum Sjælsö Gruppen, stærsta fasteignafélag Danmerkur, er að rétta úr kútnum eftir erfitt ár. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er skammt í að fjárhagslegri endurskipulaginu þess sé lokið. Aðeins eigi eftir að ganga frá lánalengingum og staðfesta áætlanir. 16.10.2009 10:30
Kreppumálsóknir eru að sliga danska dómstóla Danskir dómstólar fá nú svo mörg mál tengd efnahagskreppunni inn á borð til sín að þeir geta engan veginn annað vinnuálaginu. 16.10.2009 09:42
Google siglir úr kreppunni, skilar methagnaði Google hefur tilkynnt um mesta hagnað fyrirtækisins á einum ársfjórðungi. Hagnaður Google nam einum milljarði punda, eða rúmlega 200 milljörðum kr., á þriðja ársfjórðungi ársins. 16.10.2009 09:07
Magasin opnar netverslun Stjórnendur Magasin undirbúa opnun netverslunar þessa dagana. Strax í næstu viku verður hægt að kaupa meira en sjö þúsund vörur á netinu. Gert er ráð fyrir að innan skamms verði netverslunin orðin jafn umsvifamikil og aðrar verslanir Magasin keðjunnar. 15.10.2009 23:44
Putin vill að Renault hjálpi framleiðanda Lada Renault þarf að veita stærsta bílaframleiðanda í Rússlandi mikla aðstoð til að forðast gjaldþrot, annars missa 50 þúsund manns vinnuna. Þetta hefur Bloomberg fréttastofan eftir Vladimir Putin forsætisráðherra Rússa. 15.10.2009 22:03
Fyrsta tap Nokia frá aldamótum Finnska farsímafyrirtækið Nokia skilaði sínu fyrsta tapi frá aldamótum á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Tapið nam tæplega 560 milljónum evra eða yfir 100 milljörðum kr. Í fréttum erlendra fjölmiðla segir að tapið hafi komið á óvart. 15.10.2009 14:48
Hlutir í Goldman Sachs lækka þrátt fyrir ofuruppgjör Hlutir í bandaríska bankanum Goldman Sachs hafa lækkað um 2% í utanmarkaðsviðskiptum í morgun þrátt fyrir að bankinn hafi skilað ofuruppgjöri eftir þriðja ársfjórðung að mati sérfræðinga. 15.10.2009 12:09
Harrods hefur sölu á gullstöngum og gullmyntum Hin þekkta breska stórverslun Harrods mun frá og með deginum í dag bjóða viðskiptavinum sínum gullstangir og gullmyntir til sölu. 15.10.2009 09:35
Norski olíusjóðurinn stækkaði um 500 milljarða Norski olíusjóðurinn stækkaði um 23 milljarða norskra kr. eða rúmlega 500 milljarða kr. milli mánaðana ágúst og september. Stærð hans er nú í 2.545 milljörðum norskra kr. eða um 56.000 milljörðum kr. 15.10.2009 09:05
Landsbankinn var fordæmi í Bretlandi Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur bannað banka frá Lettlandi að opna útibú í Bretlandi. Þetta segir dagblaðið Telegraph, sem bendir á að bannið sé í samræmi við kröfur breskra fjármálayfirvalda um endurskoðun á reglum um starfsemi erlendra banka. 15.10.2009 04:00
Dow Jones fór yfir 10 þúsund stig Dow Jones vísitalan náði 10 þúsund stigum í dag. Meira en ár er liðið síðan hún náði yfir 10 þúsund stigin síðast. Það var þann 7. október í fyrra að Dow Jones var síðast yfir 10 þúsund stigum. Síðan þá hefur ein versta efnahagskrísa í manna minnum skekið heiminn og Dow Jones vísitalan hefur mælst eftir því. En nú blasir annað við og Dow Jones mældist 10.018 fyrir lokun í dag. 14.10.2009 21:39
Íslenskur athafnamaður í 18 milljarða verkefni í Svíþjóð Íslenski athafnamaðurinn Guðjón Halldórsson heldur áfram með 18 milljarða kr. verkefni í suðurhluta Svíþjóðar. Ætlunin er að byggja nýtt þorp við Allarp í suðurhluta landsins, skammt frá Malmö, þar sem 800 til 1.000 manns geta búið. 14.10.2009 15:25
Ölreikningur til IBM eftir að netþjónabú sló út Rafmagnsleysi hjá einu netþjónabúi IBM í Bröndby í Danmörku í nótt hefur valdið verulegu tekjutapi hjá Carlsberg bruggverksmiðjunum. Ætlar Carlsberg af þessum sökum að krefja IBM um skaðabætur. 14.10.2009 14:14
Evrusvæðið stígur stórt skref út úr kreppunni Hagfræðideild Danske Bank segir að evrusvæðið hafi stigið stór skref út úr keppunni. Iðnaðarframleiðslan á svæðinu jókst um 0,9% í ágúst samkvæmt nýjustu tölum. Á sama tíma voru endurskoðaðar tölur birtar fyrir júlí sem breyttu samdrætti upp á 0,2% í aukningu upp á 0,3%. 14.10.2009 13:09
JPMorgan skilar mjög góðu uppgjöri JPMorgan Chase & Co bankinn skilaði mjög góðu uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung. Mun betra en flestir sérfræðingar áttu von á. 14.10.2009 11:22
Lyfjarisinn GlaxoSmithKline í verulegum vandræðum Breski lyfjarisinn GlaxoSmithkKline (GSK) er í verulegum vandræðum eftir að dómstóll í Pennsylvaníu dæmdi móður skaðabætur frá GSK upp á 2,5 milljónir dollara. Móðirin hafði fætt barn með hjartagalla eftir að hafa notað þunglyndislyfið Paxil meðan á meðgöngunni stóð. 14.10.2009 10:59
Ford innkallar 4,5 milljónir bíla Bílaframleiðandinn Ford hefur innkallað 4,5 milljónir bíla og vill fá þá á verkstæði til að gera við gallaðan hnapp í mælaborði þeirra. Vegna hnappsins er hætta á að eldur kvikni í bílunum, jafnvel þegar þeir eru ekki í gangi. 14.10.2009 10:23
David Sullivan í viðræðum um kaup á West Ham David Sullivan hefur átt óformlegar viðræður við CB Holding um kaup á enska úrvalsdeildarliðinu West Ham að því er segir í frétt í blaðinu Evening Standard. Sullivan er einn af fyrrum eigendum Birmingham liðsins. 14.10.2009 09:29
Risabónusar bíða eftir strákunum á Wall Street Stærstu bankar og fjármálafyrirtæki Bandaríkjanna eru á leiðinni að borga starfsfólki sínu launabónusa upp á samtals um 140 milljarða dollara eða rúmlega 17.000 milljarða kr. Þetta er metupphæð og sýnir að öll umræðan um að lækka þessar bónusgreiðslur í kjölfar kreppunnar hefur ekkert haft að segja. 14.10.2009 09:01
Góðar hagtölur frá Kína og dollar hækka olíuverðið Heimsmarkaðsverð á olíu fór í morgun yfir 75 dollara á tunnuna en þetta er hæsta verð á olíu hingað til í ár. Það eru góðar hagtölur frá Kína og áframhaldandi veiking dollarans sem valda olíuverðhækkunum í augnablikinu. 14.10.2009 08:46
Sérsveit lögreglu í skipulögðum glæpum rannsakar JJB Sports Sérsveit á vegum bresku lögreglunnar sem rannsakar skipulagða glæpastarfsemi (Serious Organised Crime Agency eða SOCA) er nú að kanna mál fyrrum yfirmanna íþróttavörukeðunnar JJB Sports. Rannsókin beinist meðal annars að Chris Ronnie fyrrum viðskiptafélaga Existu í Bretlandi. 14.10.2009 08:21
Danir dæla peningum inn á bankareikninga Danir leggja peninga inn á bankareikninga nú sem aldrei fyrr. Á einu ári hafa innistæður danskra heimila í bönkunum aukist úr 690 í 741 milljarð danskra króna, eftir því sem fram kemur í Jyllands-Posten. 13.10.2009 23:18
Norsk stjórnvöld ganga á olíusjóðinn Norsk stjórnvöld ætla að ganga á olíusjóðinn í meira mæli en áður hefur þekkst. Þetta kemur fram í fjárlögum norsku ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Ætlunin er að dæla olíupeningunum út í ýmis samfélagsverkefni því að atvinnuleysið er enn að aukast frá þeim 3% sem það stendur nú í. 13.10.2009 10:37
Álverðið aftur að nálgast 2.000 dollara á tonnið Heimsmarkaðsverð á áli er aftur að nálgast 2.000 dollara á tonnið eftir miklar sveiflur á markaðinum í London (London Metal Exchange) undanfarinn mánuð. Í morgun var verðið komið í rétt tæpa 1.950 dollara m.v. þriggja mánaða framvirka samninga. 13.10.2009 08:28
Makrílstríð í uppsiglingu milli Noregs og ESB Norskir fjölmiðlar greina frá því í dag að í uppsiglingu sé makrílstríð milli Noregs og Evrópusambandsins. LÍÚ fjallar um málið á vefsíðu sinni og vitnar til formanns systursamtaka sinna í Noregi. 12.10.2009 14:21
Þráðlausir peningar eru handan við hornið Víða erlendis er að ryðja sér til rúms tækni þar sem farsímar virka sem greiðslukort, bankareikningar og seðlar. Það verður sum sé hægt að borga fyrir innkaup og reikninga með því að ýta á einn takka á farsímanum. 12.10.2009 13:50
Fyrsta konan sem fær Nóbelsverðlaunin í hagfræði Elinor Ostrom er fyrsta konan til að fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði en tilkynnt var um verðlaunahafa í morgun. Alls eru 40 ár frá því að þessi verðlaun voru veitt í fyrsta sinn. 12.10.2009 13:05
Dynasty stjarnan Joan Collins verslar í lágvöruverslun Hin 76 ára gamla fyrrum Dynasty stjarna Joan Collins hefur orðið fyrir barðinu á kreppunni eins og flestir aðrir og upplýsir nú að hún sé byrjuð að versla í lágvöruverslunarkeðjunni Primark. Hún hafi ekki lengur efni á að kaupa sér hátískuföt. 12.10.2009 10:27
Ferðaskrifstofa gjaldþrota áður en fyrsta ferðin seldist Mosaik Travel, ferðaskrifstofa í Kaupmannahöfn, hefur verið úrskurðuð gjaldþrota áður en henni tókst að selja eina einustu ferð á sínum vegum. 12.10.2009 10:06
Seðlabankar heimsins á flótta frá dollaranum Dollarinn virðist vera að tapa hlutverki sínu sem gjaldeyrisforðamynt seðlabanka heimsins. Seðlabankarnir eru nú á flótta frá dollaranum og vilja frekar hafa gjaldeyrisforða sinn í evrum og jenum. 12.10.2009 09:05
Vilja meira en fimmtungshlut Finnska fjármálafyrirtækið Sampo er nú stærsti hluthafi Nordea, umsvifamesta banka Norðurlanda. Þetta kemur fram á nýjum hluthafalista Nordea sem birtur var á föstudag. 12.10.2009 04:00
Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings á lista yfir grunaða Fyrrverandi starfsmaður í lánadeild Kaupþings, sem nú hefur umsjón með norrænum eignum bankans fyrir kröfuhafa, er sagður á lista yfir grunaða í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Al-Thanis á hlut í Kaupþingi. 11.10.2009 11:59
Störf í boði fyrir bankamenn á Wall Street Fjármálafyrirtæki á Wall Street í New York eru byrjuð að ráða til sín fjölda starfsmanna. Síðustu tvö ár hafa tæplega 200 þúsund starfsmenn í bönkum og öðrum fjarmálastofnunum í fjármálahluta borgarinnar misst vinnuna. 10.10.2009 18:16
Enn meiri niðurskurður boðaður í Lettlandi Valdis Dombrovskis, forsætisráðherra Lettlands, boðar frekari niðurskurð en tilgreinir ekki hvað felst í aðgerðunum. Nú þegar hefur ríkisstjórn landsins skorið mikið niður í ríkisútgjöldum. 10.10.2009 13:34
Iceland-stjórar á 800 milljóna ráðstefnu í Disney World Yfirmannaráðstefna verslunarkeðju sem kostar 4 milljónir punda eða rúmlega 800 milljónir kr. gæti talist yfirdrifið í kreppunni. Það er ekki mat Malclom Walker forstjóra Iceland keðjunnar í Bretlandi sem bauð öllum 800 verslunarstjórum, svæðisstjórum og öðrum yfirmönnum Iceland á ráðstefnu í Disney World í Flórída í síðustu viku. Landsbankinn fer nú með tæplega 14% hlut í Iceland sem var áður í eigu Baugs. 9.10.2009 11:08
Dönsk skattayfirvöld á auðæfaskaki í skattaskjólum Dönsk skattayfirvöld eru nú að leita að leyndum auðæfum danskra ríkisborgara í skattaskjólum eða aflandseyjum víða um heiminn. Danski skatturinn reiknar með að þetta skak muni skila þeim fleiri hundruð milljónum danskra króna í ríkiskassann. 9.10.2009 09:36
Bankahlutir í blóðbaði í kauphöll Kaupmannahafnar Hlutir í Amagerbanken féllu um 31% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í gærdag og við upphaf markaðarins í dag féllu hlutirnir um 40%. Yfir helmingur af verðmæti hlutanna hefur gufað upp á tveimur dögum. 9.10.2009 08:54
Yfir 300 hótel í Kaliforníu eru gjaldþrota Yfir 300 hótel í Kaliforníu hafa orðið gjaldþrota frá áramótum og er það um fimmföld aukning á slíkum gjaldþrotum í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Ástæðan er bæði að eigendur geta ekki staðið í skilum af lánum sínum og að verulega hefur dregið úr ferðalögum innan ríkisins vegna kreppunnar. 8.10.2009 13:33
Íbúðasala ekki jafn léleg í 30 ár í Danmörku Árið í ár lítur út fyrir að verða það lélegasta í 30 ár hvað varðar sölu íbúða í Danmörku. Þetta kemur fram í nýjum sölutölum frá fasteignasölukeðjunni EDC. 8.10.2009 09:45
Alcoa: Óvæntur hagnaður, hlutabréf hækka um 6% Bandaríski álrisinn Alcoa skilaði óvæntum hagnaði á þriðja ársfjórðungi. Nam hagnaðurinn 39 milljónum dollara, eða 4,9 milljörðum kr. sem gerir 4 sent á hlutinn. Sérfræðingar höfðu hinsvegar spáð tapi upp á 9 sent á hlutinn. Hlutir í Alcoa hækkuðu um 6% á eftirmarkaði þegar uppgjörið var tilkynnt eftir lokun markaða í gærkvöldi. 8.10.2009 08:27
Kreppan leikur Finna grátt Finnar upplifa nú mestu niðursveiflu í efnahagslífi sínu síðan að kreppan þar hófst á síðasta ári. Samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu Finnlands dróst efnahagslíf landsins saman um 11,6% í júlí miðað við sama mánuð í fyrra. 7.10.2009 14:49
Alcoa: Reiknað með minnsta ársfjórðungstapi ársins Bandaríski álrisinn Alcoa birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung í dag eftir lokun markaða vestan hafs. Sérfræðingar reikna með minnsta ársfjórðungstapi ársins hjá Alco að þessu sinni að því er segir á Bloomberg fréttaveitunni. 7.10.2009 13:29
Gætu tapað hundruðum milljarða á nýrri löggjöf í Lettlandi Sænskir og danskir bankar gætu tapað hundruðum milljarða kr. ef áform stjórnvalda í Lettlandi um nýja löggjöf fyrir íbúðaeigendur þar í landi verður að veruleika. Löggjöfin, sem nú er til umræðu á lettneska þinginu gengur út á að takmarka mjög möguleika bankanna á að fá íbúðalán sín endurgreidd. 7.10.2009 10:22